Feykir


Feykir - 01.04.2020, Qupperneq 12

Feykir - 01.04.2020, Qupperneq 12
COVID-19 | Rabbað við Króksarann Ómar Braga Stefánsson sem stofnaði Facebook-síðu Skín við sólu slær í gegn Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 13 TBL 1. apríl 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 síðunni? „Ég held að þeir séu að nálgast 3.500 sem er með ólíkindum. Mig grun- aði ekki að þetta myndi vinda svona upp á sig þegar ég fór af stað. En svona er staðan og ég er pínu rosalega glaður með þessar móttökur. En til að viðhalda henni í einhvern tíma þá þarf fólk að setja inn myndir o.fl. Þar held ég að flokkarnir skipti öllu máli,“ segir Ómar Bragi en þess má geta að þegar Feykir fór í prentun voru meðlimir orðnir rúmlega 4.000. Hvað hefur komið þér mest á óvart varðandi síðuna? „Það er auðvitað sá fjöldi sem kominn er. Það var eitthvað sem ég lagði nú ekki sérstaklega af stað með en hefur komið skemmtilega á óvart. Svo er það jákvæðnin og gleðin sem ég skynja hjá fólki sem er að skoða þetta. Enda lagði ég áherslu á að inn á þessa síðu kæmi bara jákvæðni og gleði, ekkert annað væri í boði.“ Einhver skilaboð til fólks á þessum sér- stöku tímum? „Halda áfram að vera gott við hvort annað og hugsa vel um sína nánustu og þá sem minna mega sín í samfélaginu. Við höfum allt til alls hér í Skagafirði og þegar þetta gengur yfir þá mun lífið halda áfram. Skagafjörður verður enn fegursti fjörðurinn og fólkið sem hér býr verður áfram það góða og duglega fólk sem hann byggir. Svo auðvitað að fara á síðuna Skín við sólu og setja inn efni og hafa gaman af,“ segir Ómar Bragi að lokum. /ÓAB Ein af myndunum sem smellt hefur verið inn á Skín við sólu á Facebook. Þar kennir margra grasa, myndir frá gömlum tíma og nýrri. Það má skoða og skemmta sér endalaust. MYNDIR AF NETINU Ný menntastefna tekur gildi Skagafjörður Sagt er frá því á heimasíðu Svf. Skagafjarðar að ný Menntastefna Skagafjarðar hafi nú verið gefin út og tekið gildi. Vinna við mótun menntastefnunnar hefur staðið yfir í u.þ.b. eitt ár. Menntastefnan var unnin í samstarfi leik-, grunn- og Tónlistarskóla Skagafjarðar, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Frístundar og Fræðsluþjónustu Skagfirðinga. Alls komu rúmlega 90 ein- staklingar að mótunarferlinu; nemendur allra skólastiga, starfsfólk skóla/frístundar, starfsfólk fræðsluþjónustu, kjörnir fulltrúar í fræðslu- nefnd ásamt þátttakendum á íbúafundum. Menntastefnan nær til allra barna og ungmenna í Skaga- firði frá upphafi skólagöngu í leikskóla til loka náms í framhaldsskóla. Áhersla er lögð á að nám barna og ungmenna eigi sér stað bæði innan skólans sem og í frístundastarfi og aukna samvinnu ólíkra skólastiga, skólagerða og frístundar til að tryggja samfellu í námi. Nánar um menntastefnuna á Skagafjörður.is. /ÓAB Það er ekki að spyrja að því þegar Ómar Bragi Stefánsson fær ein- hverja hugmynd – þær eiga það til að vinda duglega upp á sig. Ómar er til dæmis höfundur Króksblóts og Jólahlaðborðs Rotary, svo eitthvað sé nefnt. Sunnudaginn 22. mars sl. stofnaði hann síðuna Skín við sólu á Facebook og hvatti fólk til að ganga til liðs við sig og smella einhverju skemmtilegu á síðuna og þá ekki síst myndum. Undirtektirnar létu ekki á sér standa og liggur við að allir Skagfirðingar fyrr og síðar séu mættir til leiks með myndir og myndbönd, sér og öðrum til ánægju. Feykir hafði samband við Ómar og lagði fyrir hann nokkrar spurningar tengdar síðunni góðu. Hvers vegna stofnaðir þú Face- book-síðuna Skín við sólu og hver var hugmyndin með þessu fram- taki? „Það var nú bara þannig að þegar ég vaknaði á sunnudaginn var þetta bara í höfðinu á mér. Ég stóð upp, fór fram í stofu og settist aðeins niður þar og þetta varð smátt og smátt skýrara fyrir mér. Ég held að á laugardeginum, daginn áður hafi ég verið að dást að hve samheldnin væri mikil í samfélaginu, ekki bara hér, heldur um land allt. Það var svo frábært að sjá að klappað væri fyrir heil- brigðisstarfsfólki, sungið fyrir aldraða og af svölum fyrir nágrannana. Hjálpast til við að fara með mat og nauðsynjavörur til þeirra sem ekki geta náð í slíkt og þannig mætti lengi áfram telja. Ég ræddi þetta smástund við hana Maríu mína en hún veit það líklega best allra að þegar ég fæ einhverja svona hugmynd og vil framkvæma hana þá er fátt sem stoppar það. Síðan settist ég við tölvuna og stofnaði þessa síðu. Ég sá fyrir mér að byrja á því að setja inn landslagsmyndir úr Skagafirði því þar er nú af nægu að taka. Núna er kominn mikill fjöldi landslagsmynda þar inn sem myndu sóma sér vel á hvaða sýningu sem væri. Síðan hvatti ég til að næst yrðu settar inn íþróttamyndir enda stendur það mér næst. Núna [25. mars] er síðan verið að setja inn myndir og myndbönd sem tengjast tónlist- inni hér í Skagafirði og þar eigum við nú aldeilis fjársjóði. Svona sá ég þetta fyrir mér, nýr flokkur, ný við-fangsefni og nýjar myndir. Þarna ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og flokk sem tengist þeim.“ Hversu margir meðlimir eru á Það eru til óteljandi myndir af íþróttaliðum og þeir sem hafa gaman af því að rýna í andlit úr fortíðinni hafa sannarlega fundið gullkistu á Skín við sólu. Þekktasti ábúandi Ytra- Skörðugils [í Skagafirði] er án efa sagnaritarinn Gísli Konráðsson sem þar bjó í 18 ár, frá 1819- 1837. Þangað fór hann nauðugur frá Bakka í Vallhólmi og orðar það svo í ævisögu sinni, að Ytra-Skörðugil væri ,,niðurnítt, heyskaparlítið með óræktartúni meinþýfðu, þó 20 hundruð, með hundr- aðsleigu og tveimur kúgildum, klausturjörð með prjónles landskuld. Fluttist hann þangað og varð að lóga einni kúnni fyrsta haustið.“ Eftir Jón Espólín genginn varð Gísli þekktasti sagnaritari á Íslandi á sinni tíð. Um fjörutíu ára skeið, 1807-1847, bjó Gísli á ýmsum jörðum í Skagafirði, lengst á Ytra-Skörðugili. Gísli fluttist úr Skagafirði með Indriða syni sínum árið 1850 en settist að í Flatey á Breiðafirði 1852. Þar varð hann í raun fyrsti atvinnurithöfundur á Íslandi á seinni öldum, því að efnamenn eyjarinnar settu hann niður í húsi þar og sáu honum fyrir viðurværi en Gísli sat öllum stundum og skrifaði allt fram undir lokadægur. Hann lést níræður að aldri árið 1877. Gísli Konráðsson hefur orðið einhver afkastamesti skrifari og rithöfundur á Íslandi fyrr og síðar. Langt væri að telja öll hans skrif og margt af því er óprentað, en fullyrða má, að hefði hans söfnun og skráning ekki komið til væri stórum meiri vöntun en ella í vitneskju um mannlíf og sögu Skagafjarðar og raunar margra annarra landshluta á 18. og 19. öld. Byggðasögumoli | palli@feykir.is Sagnameistarinn

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.