Feykir - 06.05.2020, Blaðsíða 6
Einar þykir afar snjall hag-
yrðingur og ýmsir sem vit hafa á
málum gefa honum hin vænstu
meðmæli. Feykir sendi nokkrar
spurningar yfir Vatnsskarðið og
langaði að forvitnast aðeins um
eitt og annað vísnatengt.
Er þetta meðfæddur hæfileiki
að setja saman góða vísu, er
þetta í ættinni eða er það bara
æfingin sem skapar meistar-
ann? „Þetta veltur allt á ástríðu
og æfingu ásamt máltilfinningu
og orðaforða. Sjálfsagt hafa
erfðir eitthvað með þessa
grunnþætti að gera en ég held
að „skáldagenið“ sé ekki til. Afi
minn í móðurætt, Friðrik Ing-
ólfsson í Laugarhvammi, var
hagmæltur og gerði töluvert af
vísum.“
Verða til vísur hjá þér á hverj-
um degi? „Á alllöngu tímabili á
þroskabrautinni einsetti ég mér
að gera vísu á hverjum einasta
degi til æfingar. Ég er löngu
hættur því og núna skiptast á
tímabil þar sem allt og ekkert
verður að vísu og svo hin þar
sem þetta liggur að mestu
niðri.“
Manstu hvenær þú settir
saman vísu í fyrsta skipti og
manstu hana? „Þetta man ég
hvorki né kann og líklega
lánlegt að svo skuli vera. Ég var
eitthvað að rembast við þetta á
unglingsárum með afar tak-
mörkuðum árangri en var
kominn vel á þrítugsaldur
þegar þetta fór að ganga
eitthvað.“
VIÐTAL
Óli Arnar Brynjarsson
Er eitthvert frí frá ferskeytl-
unni – er hugurinn alltaf í þess-
um gír? „Núorðið koma tímabil
þar sem hugsunin fellur ekkert
endilega í hendingar. Ég er
steinhættur að rembast við að
gera vísu, þær bara koma eða
koma ekki.“
Er einhver vísa sem þú ert
verulega montinn með eða í
sérstöku uppáhaldi? „Framan
af lá metnaðurinn í því að yrkja
dýrt og sigra alla mögulega
bragarhætti, hversu snúnir sem
þeir kunnu að vera. Þegar því
var lokið vék þessi hugsun fyrir
lipurðinni og nú er ég þar
kominn að mér finnst hún
dýrmætust. Af því leiðir að mér
finnst þær vísur bestar sem
koma án fyrirhafnar og orða-
leitar í skúmaskotum hugans.
Ég man í svipinn t.d. eina gamla
og í sjálfu sér nauðaómerkilega,
sem varð til þegar ég heyrði
frétt í útvarpi um mannfjölda
og fæðingar- og dánartíðni á
Íslandi.
Tölfræðingar telja þá,
sem tölta lífsins vegi,
og Íslendingar falla frá
fimm á hverjum degi.“
Hvenær er vísa góð og er
einhver vísnagerðarmaður í
sérstöku uppáhaldi hjá þér?
„Fyrst og fremst þarf hún að
vera rétt kveðin og brag-
fræðilega lýtalaus. Afsláttur frá
því er viðlíka og leggja kapal og
svindla til að hann gangi upp.
Hún þarf að renna létt og ganga
upp efnislega þannig að öll
vísuorðin hafi þýðingu fyrir
umfjöllunarefnið og samheng-
ið. Oft vill fyrri parturinn,
Í Bólstaðarhlíð býr Einar Kolbeinsson sem sýslar
ýmislegt og segist vera alls konar bóndi. Eins og er í
tísku um þessar mundir þá er fjölskyldan með
ferðaþjónustu undir nafninu Heimafengið ehf., bjóða
gistingu í Bólstaðarhlíð og leigja út þrjú herbergi og
tvær litlar íbúðir. „Þetta hefur gengið afar vel en
auðvitað er ansi rólegt yfir því þessi dægrin,“ segir
Einar. Ástæðan fyrir því að Feykir ákvað að banka upp
á hjá Einari er ekki tengd ferðaþjónustu eða
bústörfum – það er annars konar ræktun sem vekur
forvitni að þessu sinni. Nefnilega vísnaræktin sem
Einar stundar annað veifið og þar var sprettan með
skásta móti nú í apríl.
einkum önnur línan, verða eins
og uppfyllingarefni til að klára
vísuna og koma seinni
partinum að en hefur sáralítið
eða ekkert með efni hennar eða
boðskap að gera. Skreyting
með einhverri orðsnilld og
undirliggjandi boðskap milli
línanna er svo rúsínan í
pylsuendanum. Ég vil ekki gera
upp á milli núlifandi félaga
minna opinberlega (enda fengi
ég það stuðlað og rímað beint í
andlitið) en held alltaf mikið
upp á gömlu snillingana af
Laxárdalnum, Rósberg G. Snæ-
dal og Svein Hannesson.“
Hefurðu eitthvað fengist við
annars konar ljóðagerð –
blundar í þér að gefa út ljóða-
bók? „Ég hef gert töluvert af
háttbundnum ljóðum, orti t.d.
sonnettusveig sem reyndist
mér mesta áskorunin sem ég
hef tekist á við í kveðskap. Í
seinni tíð hef ég svo leyft mér
að raða stundum saman orðum
án ríms og reglna mér til
gamans. Ætli ég verði ekki að
vera ærlegur og játa að hafa velt
útgáfu fyrir mér einhvern
tímann. Hins vegar er það svo
að mér finnst vísnabækur
yfirleitt leiðinlegar aflestrar,
hver vísa á sinn stað, sína stund
og stemmingu, sem einhvern
veginn fylgir sjaldnast á
bókarsíðu. Ég er því afhuga
hugmyndinni sem stendur
hvað sem síðar kann að verða,“
segir Einar að lokum.
Einar Kolbeinsson ásamt einum kátum vísnavini. MYND AF FB
Hagyrðingurinn Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð tekinn tali
„Ég er steinhættur að
rembast við að gera vísu“
Eins og sagði í inngangi þá
hefur Einar verið iðinn við
kolann nú í apríl. Enda biðin
eftir vorinu erfið þegar
veturinn hefur verið harður í
horn að taka, vopnaður
vindum, óveðrum og vírusum.
Hér eru vísurnar sem Einar
hefur deilt með okkur á
samfélagsmiðl-
inum Facebook:
2. apríl
Illa á kjaftinn andinn fær,
óðum dvínar kraftur,
vorið hætti við í gær
og veturinn kom aftur.
3. apríl
Vöflulaust hér veiran drap,
-verðum því að una-
fjölbreytni í félagsskap
og ferðaþjónustuna.
6. apríl
Bíður dagsins basl og önn,
en bráðum léttist sporið,
ég dunda við að draga úr fönn
draumana um vorið.
15. apríl
Æ, mér fannst það ósköp næs,
– já alveg konungborið –
þegar ég heyrði gamla gæs
garga til mín vorið!
16. apríl
Fæ til gullnar sólar séð,
sendi bull úr hlaði,
þegar fullur vona veð
í vorsins drullusvaði.
21. apríl
Vonargleði í sinni og sál,
syngur forug áin,
og glittir loks í græna nál
gegnum fölu stráin.
22. apríl
Drjúg mun verða dagsins önn,
drengjum hroll að setur,
enda að koma undan fönn
allt sem fauk í vetur.
23. apríl
Til að kaupa mat til munns,
minnkar allra skerfur,
og framtíðinni er frestað uns
fjandans veiran hverfur.
26. apríl
Hann að mæla hefur lög,
hafnar öllu flani,
trúr í verki og traustur mjög,
Tóti veirubani.
Vísnarækt Einars í apríl 2020
6 18/2020