Feykir


Feykir - 06.05.2020, Blaðsíða 1

Feykir - 06.05.2020, Blaðsíða 1
18 TBL 6. maí 2020 40. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 7 BLS. 6 Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð í vísnaspjalli Steinhættur að rembast við að gera vísu BLS. 10 Arnþrúður Heimisdóttir útskýrir Bók-haldið Bækur eins og eðalvín og sérvitringar, batna með árunum Síðasti vinnudagur Sigurðar Guðjónssonar Kveður Vélaverkstæðið algjörlega sáttur Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum. Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar á sandföngum, fitu- og olíugildrum. Holræsa- og stífluþjónusta Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Meirapróf - Vinnuvélanámskeið Ökunám - Endurmenntun Birgir Örn Hreinsson Ökukennari S: 892-1790 bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400 www.facebook.com/velavalehf www.facebook.com/velavalehf & 453 88 88 velaval@velaval.is Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Stórprent í toppgæðum Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum Á miðnætti aðfaranótt 4. maí sl. tóku gildi nýjar reglur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Fjöldamörk hafa verið hækkuð úr 20 í 50 manns, takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum hafa verið felldar niður og sömuleiðis vegna íþróttaiðkunar og æskulýðs- starfs barna á leik- og grunnskóla- aldri. Framhalds- og háskólar hafa verið opnaðir á ný og ýmsir þjónustuveit- endur opnuðu dyr sínar fyrir viðskipta- vinum strax um morguninn. Á heima- síðu heilbrigðisráðuneytisins segir að áfram gildi reglan um tveggja metra nálægðartakmörk hjá fullorðnum og gæta þarf að hreinlæti og sóttvörnum líkt og áður. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir þá tilslökun á sam- komubanni sem felst í nýjum reglum mikilvægt skref í mörgu tilliti: „Þessu fylgja margvísleg jákvæð áhrif á daglegt líf okkar sem smám saman færist nær þeim veruleika sem við áttum áður að venjast. Það er mikilvægt að við höldum áfram vöku okkar, stöndum saman og fylgjum gildandi reglum. Það hefur reynst okkur vel hingað til og er ein meginástæða þess að hér á landi hefur tekist eins vel og raun ber vitni að hafa stjórn á útbreiðslu veirunnar, verja heilbrigðiskerfið og síðast en ekki síst að vernda þau sem eru viðkvæmust fyrir veikindum,“ segir Svandís. Auglýsing um takmörkun á sam- komum vegna farsóttar með þeim reglum sem nú hafa tekið gildi er hægt að nálgast á Covid.is þar sem einnig má sjá má spurningar og svör um framkvæmd þeirra. Leiksýningar í uppnámi Á blaðamannafundi aðgerðarstjórnar almannavarna sl. mánudag sagði Þór- ólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, að hann teldi að hin svokallaða tveggja metra regla þyrfti helst að gilda út árið þrátt fyrir tilslakanir og jafnvel ætti fólk alltaf að hafa hana í heiðri. RÚV greindi frá því í gær að forseti Sviðslistasambands Íslands segi lista- menn vera í lausu lofti vegna tveggja metra reglunnar og á samvinnuhópur sviðslistafyrirtækja fund með yfirvöld- um í dag vegna málsins. Stjórn Leik- félags Sauðárkróks fundar í dag og ræður ráðum sínum með sýningu nýs leikverks sem frestað var fram á haust- ið en ljóst má vera að erfiðlega muni ganga að fylgja tveggja metra reglunni í Bifröst. Bubbi Morthens, einn vinsæl- asti tónlistarmaður landsins, segir í samtali við RÚV að tveggja metra reglan geri hann nánast atvinnulausan út árið enda verði ekki hægt að halda tónleika þannig. /PF Sviðslistamenn í kröppum dansi COVID-19 | Nýjar reglur um takmarkanir á samkomum hafa tekið gildi Starfsfólk og nemendur Kletts í leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki brugðu undir sig betri fætinum í gær og röltu í bæinn, enda ærið tilefni vegna tilslakana landlæknis á Covid-reglum. Að sögn Aðalheiðar Þorgrímsdóttur, leikskólastjóra, er allt að færast í eðlilegt horf á ný í skólastarfinu og allir kátir. MYND: PF Slakað á Covid-reglum

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.