Feykir


Feykir - 06.05.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 06.05.2020, Blaðsíða 7
Það var þann fyrsta ágúst 1984 sem Siggi hóf störf hjá Vélaverkstæði KS á Freyjugötu en áður hafði hann verið hjá Fiskiðju Sauðárkróks frá 1. apríl 1977 þar sem hann vann mest í beinamjölsverksmiðjunni sem lengi var starfrækt á Eyrinni. Hjá Vélaverkstæðinu hefur hann því unnið í 36 ár og þegar hann er spurður við hvað hann hefur mest starfað, segir hann ákveðinn: „Stutta svarið er: Við allan andskotann!“ og bætir við að hann hafi verið í öllu því sem unnið er á svona verkstæði. „Ég var mikið í kringum frystihúsin. Var í afleysingum í vélasalnum í Fiskiðjunni í yfir 30 ár og á VIÐTAL Páll Friðriksson Hofsósi og Hvammstanga. Svo var ég í samlaginu í mörg ár og víðar. En hvað hefur maður verið að gera? Jú, sjóða eitthvað saman, skera eitthvað í sundur, skrúfa sundur og saman og smíða. En mikið í kringum kæli- og frystidótið allan tímann,“ segir hann. Þá segir hann að mörg fyrstu árin sín á Vélaverkstæðinu hafi hann mikið verið að vinna í skip- unum. „Kosturinn við þennan vinnustað er sá að þetta er svo fjölbreytt vinna. Maður getur lent í mjög misjöfnum verk- efnum og oft veit maður ekkert hvar maður endar þegar mætt er í vinnuna.“ En hver skyldi vera mesta breytingin sem hann hefur upplifað í járninu? Siggi er Síðastliðinn fimmtudag, síðasta dag aprílmánaðar, stimplaði Sigurður Guðjónsson, ætíð kallaður Siggi á Borg, eða Sjávarborg, sig úr vinnu á Vélaverkstæði KS í síðasta sinn eftir 43 ára starf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og tengdum fyrirtækjum. Þrátt fyrir fullt starfsþrek og áhuga á viðfangsefninu var komið að þeim tímamótum að segja skilið við daglauna- vinnuna og snúa sér að því að njóta eftirlaunaáranna. Feykir hitti Sigga þennan dag og forvitnaðist örlítið um fortíðina og eilítið um framtíðina sem virðist enn óráðin. fljótur til svars: „Þegar við flutt- um hingað út eftir af Freyju- götunni veturinn 1990. Það er langstærsta breytingin. Fara úr gömlu sláturhúsi og hingað, með þeim tólum og tækjum sem voru keypt hingað í því tilefni. Það var langstærsta breytingin.“ Er eitthvað sem stendur upp úr? „Það hefur allur fjandinn gerst, eðlilega, en þetta rennur allt saman. En ég má til með að minnast genginna samstarfs- félaga sem voru alveg magnaðir karlar, eins og Haukur Þorsteins, Valli Jóns og Jón Ingólfs sem voru hérna og svo Sölvabræður, Kiddi og Sölvi og svo náttúrulega Stebbi Kemp. Þeir voru með mér í Fiskiðjunni. Þessir menn allir saman krydduðu hvers- dagsleikann og vinnustaðinn.“ En nú er síðasti vinnudag- urinn hjá manni sem aldrei hefur fallið verk úr hendi og því forvitnilegt að vita hvernig líðanin sé. „Já, hvernig er hún? Ætli hún sé ekki þolanleg bara,“ svarar kappinn og jafnvel má greina að hann sé kannski ekki alveg búinn að átta sig á sínu nýja hlutverki og því er hann spurður hvað taki við. „Þegar stórt er spurt. Það er algerlega óráðið. Ég veit það ekki. Þetta er náttúrulega rosa- lega stór breyting hjá karli þar sem vinnan hefur verið afger- andi þáttur í lífi hans plús það að hafa verið að stórum hluta til á Síðasti vinnudagur Sigurðar Guðjónssonar á Sjávarborg Kveður Vélaverkstæðið algjörlega sáttur Þrír ættliðir náðu að vinna saman á Vélaverkstæði KS í eitt ár. Sigurður Guðjónsson, Þorgeir og Jóhann Þór. MYND: PF áhugasviði. Ja, ætli maður verði ekki bara að reyna að eldast vel. Nú er komið að þessum tíma- mótum í mínu lífi en fyrir fáeinum árum var eilífðin fram- undan en svo saxast á hana einhvern veginn og allt í einu er runninn upp dagur sem er ákveðinn og þá hættir maður.“ Þrír ættliðir Það er ekki algengt að þrír ættliðir starfi á sama vinnustað en svo er þó farið á Véla- verkstæðinu, og það líklega í fyrsta sinn, sonur Sigga, Þorgeir, og sonur hans Jóhann Þór en þeir hafa unnið saman síðasta árið. „Já það hefur ekki skeð hérna áður, mér vitanlega,“ segir Siggi og ber þeim vel söguna. „Það hefur verið mjög fínt að vinna með þeim, algjörlega. Þorgeir kominn hingað aftur en hann lærði hérna og svo fór hann á rafmagnsverkstæðið og svo til Svíþjóðar og hingað aftur. Þetta hefur gengið átakalaust,“ segir Siggi og og þeir félagar taka undir. „Það slapp bara furðu vel,“ segir Þorgeir. „Ég lenti í því strax á fyrsta degi að vinna við hliðina á honum. Fórum í Skagfirðing og það var bara fínt. Svo skildu leiðir að einhverju leyti.“ Hafið þið aldrei lent í ágrein- ingi um hvernig eigi að leysa málin? „Nei!“ segir Sigurður ákveðinn og Þorgeir bætir við: „Best að leyfa honum bara að ráða“, segir hann og upphefjast mikil hlátrasköll. Jóhann Þór er ungur að árum en er ákveðinn í að feta í fótspor feðranna og stundar nú nám í vélstjórn við FNV sam- hliða vinnu. Hann hóf störf á síðasta ári og hefur því fengið að kynnast afa sínum í gegnum starfið. En hvernig ætli honum hafi líkað það? „Bara ágætlega. Hef því miður ekki fengið að vinna með afa mínum eins mikið og ég hefði viljað en það er alltaf jafn gott að vinna með honum.“ Þegar þeir feðgar eru spurðir út í það hvað þeir haldi að sá gamli taki sér fyrir hendur eftir helgina segir Þorgeir kankvís- lega: „Spurning hvort hann fær sér áskrift að Mogganum,“ og uppsker hlátur á ný hjá föður sínum sem segir að það geti vel verið að það eigi eftir að gerast. Áður en við slítum samtal- inu biður Siggi um að koma á framfæri þökkum til vinnu- félaga. „Það má þakka þeim öllum fyrir samstarfið og ég kveð þennan vinnustað algjör- lega sáttur og óska honum alls hins besta.“Sigurður við vinnu sína ásamt Jónatan Sævarssyni fyrir nokkrum árum síðan. AÐS. MYND 18/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.