Feykir - 13.05.2020, Page 3
Vestfjarðastofa
Sigurður Líndal
ráðinn verkefnastjóri
Sigurður Líndal Þórisson
hefur verið ráðinn
verkefnastjóri Vestfjarðastofu
á Hólmavík. Sigurður hefur
síðastliðin fjögur ár verið
framkvæmdastjóri Selaseturs
Íslands og þar áður var hann í
stjórnunarstöðu hjá
risafyrirtækinu Expedia í
London. Hann er með
mastersgráðu í stefnumótun
og stjórnun listastofnana frá
Birkbeck College, University
of London og var í tólf ár
stundakennari við
sviðslistadeildir listaháskóla í
London.
Á vef Vestfjarðastofu segir
að Sigurður komi til starfa í
byrjun júní og muni hann leiða
verkefnið Brothættar byggðir í
Strandabyggð auk þess að sinna
öðrum verkefnum tengdum
atvinnu- og byggðaþróun hjá
Vestfjarðastofu.
Á Facebooksíðu sinni segir
Sigurður að hann kveðji
Selasetrið með trega og stolti.
„Hér hefur margt áorkast þessi
tæpu fimm ár sem ég hef leitt
setrið. Eitt sinn sagði Napóleon
sem svo að engu skipti hvort
hershöfðingjar væru góðir, bara
að þeir væru heppnir. Og ég hef
sannarlega verið heppinn hér,
átt gott samstarfsfólk og getað
byggt á vinnu forvera minna,“
segir Sigurður.
Ennfremur segir Sigurður að
Illeppar sem hlýjuðu fótum fyrr á öldum
Byggðasafn Skagfirðinga, Byggðasafn
Húnvetninga og Strandamanna og
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi hafa
undanfarin tvö ár verið að efla faglegt
samstarf safnanna. Nú standa söfnin fyrir
sameiginlegri vefsýningu á menningar-
sögulega gagnasafninu Sarpur.is. Sýningin
ber heitið Illeppar sem hlýjuðu fótum fyrr á
öldum og inniheldur nokkur sýnishorn af
fallegum og skrautlegum illeppum sem
varðveittir eru hjá söfnunum þremur.
Lepparnir, sem hlýjuðu fótum barna og full-
orðinna fyrr á öldum, eru rammíslenskur
menningararfur. Fallegir leppar voru oft nýttir
til gjafa og dæmi eru um að sum hjónabönd
hafi orðið til fyrir tilstilli fagurlega prjónaðra
leppa.
Viðræður um hvernig efla mætti faglegt
samstarf safnanna hófust árið 2018. Út frá þeim
þreifingum kviknuðu hugmyndir um samnýt-
ingu á starfsfólki og faglegan stuðning í tíma-
bundin verkefni, s.s. skráningarverkefni,
sýningagerð, greiningarvinnu o.s.frv. Slíkt
samstarf nýtist sérlega vel ef eitt safn býr yfir
meiri sérfræðikunnáttu á ákveðnu sviði, t.d. við
greiningu á safngripum eða skráningu á Sarp.
Faglegt samstarf felst einnig í sameiginlegri
símenntun starfsfólks, s.s. með námskeiðs- og
fyrirlestrahaldi. Slík námskeið nýtast jafnframt
vel fyrir aðila sem starfa á setrum og við
sýningar. Söfnin stóðu t.a.m. fyrir tveggja daga
forvörslunámskeiði á Reykjum í febrúar 2019
og var það sótt af starfsfólki byggðasafna, bóka-
safna og setra á svæðinu. Söfnin halda ótrauð
áfram vinnu við þróun samstarfsins og kynna
nú með stolti fyrstu sameiginlegu vefsýninguna
á Sarpur.is, að þessu sinni um illeppa.
Samsýning á veraldarvefnum
Illeppar sem í daglegu tali eru nefndir leppar
eru varðveittir í mörgum söfnum landsins.
Lepparnir áttu líka fleiri nöfn s.s. íleppar, skó-
leppar, sparileppar og hversdagsleppar. Þá var
algengt að nefna þá „barða“, einkum á Suður-
landi sem og „spjarir“ norðanlands. Lepparnir
voru notaðir sem innlegg í skó og þóttu
nauðsynlegir bæði í roðskó og sauðskinnsskó,
vermdu þeir fótinn auk þess sem mýkra var
undir fæti.
Algengast var að leppar væru prjónaðir en
þeir voru líka oft saumaðir úr bútum eða
prjónuð voð og þeir sniðnir upp úr voðinni. Þá
voru leppar stundum saumaðir upp úr gömlum
fötum eða prjónatuskum en slíkir leppar voru
eingöngu notaðir hversdags og fyrst og fremst
til þægindaauka. Sparilepparnir voru öllu
skrautlegri, litríkir og skreyttir með munstrum,
oft rósum s.s. áttablaðarós og nefndir rósa-
leppar. Sem dæmi um önnur munstur, fyrir
utan litríkar rendur, má nefna tígla, kafla,
stundaglös, blómakörfur og krossa en hug-
myndir og litbrigði í munsturgerð virðast hafa
verið ótrúlega fjölbreyttar. Líkt og fram kemur í
upphafi greinar, þá hlýjuðu lepparnir okkar
fótum, barna og fullorðinna, fyrr á öldum og
eru rammíslenskur menningararfur.
Í vefsýningu safnanna er aðeins stiklað á
stóru um þennan einstaka menningararf sem
núlifandi kynslóð þekkir lítið til. Sýninguna má
nálgast á slóðinni: https://sarpur.is/Syning.
aspx?ID=811.
Greinaritarar:
Berglind Þorsteinsdóttir
Elín S. Sigurðardóttir
BYGGÐASAFNSPISTILL | Samstarf viðurkenndra safna á Norðurlandi vestra
Sigurður Líndal. MYND AF NETINU.
síðasta verkefni hans fyrir
Selasetrið sé að koma
rekstrinum í öruggt skjól svo
ferðaþjónustuhluti setursins
geti skriðið úr híði sínu þegar
dregur frá sólu, og vísar þar til
afleiðinga COVID-faraldur-
sins. Rannsóknastarfið standi
jafn sterkt eftir sem áður.
Sigurður hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum og dregur sig
nú út út stjórn Markaðsstofu
Norðurlands, auk þess sem
hann mun ekki gefa kost á sér
sem formaður Ferðamálafélags
Húnaþings vestra á næsta
aðalfundi félagsins og mun þar
með ljúka setu í Fagráði
ferðaþjónustunnar á Norður-
landi vestra.
„Ég hlakka til samstarfsins við
Strandamenn, og hef heyrt að
það sé einstaklega fagurt útsýni
frá Ströndum til austurs,“ segir
Sigurður í lok Facebookfærslu
sinnar. /FE
TIL SÖLU
Suzuki Grand Vitara, bensín, árgerð
2010. Beinskiptur, hátt og lágt
drif, ekinn 120 þús km. Upplagður
dreifbýlisbíll, dráttarkrókur, á
góðum Toyo heilsársdekkjum.
Upplýsingar hjá Herði
í síma 453 5744.
19/2020 3
Fallegir illeppar skarta sýningu Byggðasafnanna í Skagafirði og Húnavatnssýslu og Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi.