Feykir


Feykir - 13.05.2020, Blaðsíða 8

Feykir - 13.05.2020, Blaðsíða 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 19 TBL 13. maí 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Formleg afhending nýrrar slökkvistöðvar á Blönduósi fór fram sl. föstudag en Brunavarnir Austur-Húnvetninga (BAH), sem er byggðarsam- lag Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps um brunavarnir í sveitarfélögunum, festi kaup á hús- næðinu sem stendur stakt að Efstubraut 2 á Blönduósi, þar sem áður var lager fyrirtækisins Léttitækni. Á Facebooksíðu BAH kemur fram að húsnæðið hafi verið byggt árið 2007 og er 486 fm. Eftirfarandi texta má finna í færslu Ingvars Sigurðssonar, slökkviliðsstjóra Brunavarna Austur- Húnvetninga: „Unnið er að því að klára hugmyndir að skipulagi húsnæðisins sem verður síðan sett í lokahönnun svo hægt verði að hefja framkvæmdir við breytingar á húsnæðinu í takt við þarfir slökkviliðsins. Bæta þarf við iðnaðarhurðum og útbúa ýmis aðstöðurými. Lofthæð er mikil og því góðir möguleikar að gera milliloft fyrir aðstöðu. Bætt aðstaða slökkviliða, bæði til viðbragða, þjálfunar og fræðslu er fyrsta skrefið í þá átt að stór- bæta brunavarnir. Slökkviliðið hefur búið við þröngan kost á núverandi slökkvistöð liðsins að Norðurlandsvegi 2 en það húsnæði var byggt 1975 og einungis 223 fm. Má því segja að langþráð og þörf uppbygging aðstöðu liðsins sé í augsýn. Slökkviliðið hefur ekki haft nægt rými eða aðstöðu sem skyldi til að sinna þjálfun og þeim fjölbreyttu verkefnum sem liðið þarf að sinna. Leigja hefur þurft auka húsnæði síðastliðin ár fyrir tankbíl liðsins vegna plássleysis en það er mjög slæmt gagnvart viðbragðstíma liðsins í útköllum. Í nýju húsnæði verður því hægt að hafa allar bifreiðar og búnað liðsins undir sama þaki, ásamt því að útbúa kennsluaðstöðu, búningsklefa, sauna afeitrunarklefa, þvottaaðstöðu, skrifstofur, stjórnstöð og ýmis aðstöðurými. Með auknu rými verður möguleiki á að reyna að halda aðskilnaði milli hreinna og óhreinna rýma, sérstaklega í ljósi baráttu gegn aukinni tíðni krabbameins hjá slökkviliðs- mönnum. Brunavarnir Austur-Húnvetninga Ný slökkvistöð afhent formlega Mynd með færslu Brunavarna Austur Húnavatnssýslu á Facebooksíðu sinni um afhendingu nýrrar slökkvistöðvar á Blönduósi. Einn af sérstæðum mönnum 19. aldar í Skagafirði var Kristinn Pétursson sem á síðari árum sínum var kenndur við Kjartans- staði. Þar var hann húsmaður mörg síðustu æviár sín og þar lést hann 21. júní 1899. Fæddur var hann 1830, vandaður maður og sannorður, greindur ekki meira en í meðallagi og þótti stundum bera á geðveilu þar sem hann var á stundum ofsakátur en í annan tíma fámáll og þungsinna. Um þrítugsaldur veiktist Kristinn alvarlega og lá lengi. Náði hann sér ekki til fulls fyrr en eftir ár. Eftir að hann komst aftur til heilsu dreymdi hann draum, að maður kæmi til hans og segði honum að hann skyldi framvegis predika guðsorð. Sagði draummaður honum ýmislegt fleira þessu viðvíkjandi en bannaði honum stranglega að segja frá því. Þetta enti Kristinn trúlega til æviloka. ,,Fáum nóttum eftir þetta byrjaði Kristinn að predika upp úr svefni og þeim sið hélt hann upp frá því. Oftar predikaði hann er hann var gestur, sérstaklega væri hann þreyttur eða hefði smakkað vín, en sjaldnar heima fyrir. Hann predikaði jafnt á nóttu sem degi, úti sem inni, oftast fann hann á sér áður en hann sofnaði, hvort hann mundi predika eða eigi. Hann svaf mjög fast og þótti miður ef hann var vakinn, því hann taldi það sínar sælustu stundir er hann var að predika. Ætíð þegar Kristinn predikaði mundi hann eftir því er hann vaknaði. Hann þóttist þá ætíð vera staddur í hinu sama húsi og var það ólíkt öllum öðrum húsum er hann hafði séð. Ekki gat hann skýrt frá úr hvaða efni það var byggt. Engir gluggar vóru á því og engin ljós loguðu þar en þó var þar glansandi birta. Kristinn þóttist vera í ræðustól, er hann predikaði, og stóð allur söfnuðurinn. Engan af söfnuði þessum hafði hann séð í vöku, en marga af þeim þekkti hann í svefninum af því að þeir vóru ætíð við predikanir hans. Oft sá hann líka nýja vera viðstadda er hann hafði eigi séð áður. Honum virtist söngflokkur, sem ævinlega var sá sami, syngja og svara sér, og hinn sami maður vera meðhjálpari við embættisgjörðina.“ Byggðasögumoli | palli@feykir.is Kristinn predikari Í tilefni af afhendingunni kom hluti slökkvi- liðsmanna BAH saman og skoðaði húsnæðið með tveggja metra regluna í heiðri. Í ljósi aðstæðna er ekki hægt að boða til viðburðar svo íbúar geti skoðað húsnæðið að svo stöddu en tækifæri gefst vonandi þegar fram líða stundir og breytingum á húsnæðinu jafnvel lokið. Undirritaður vill óska íbúum Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps til hamingju með húsnæðið og á sama tíma þakka sveitarstjórnum sveitarfélaganna fyrir að standa dyggilega að baki mikilvægri uppbyggingu í brunavörnum en hún á tvímælalaust eftir að hjálpa til við að auka öryggi svæðisins enn meira á komandi árum.“ /PF www.skagafjordur.is UMHVERFISDAGAR Skagafjarðar 2020 15. – 16. maí Umhverfisdagar Skagafjarðar verða haldnir dagana 15. – 16. maí nk. Íbúar, fyrirtæki og félagasamtök í Skagafirði eru hvött til að taka höndum saman, tína rusl, taka til og fegra í sínu nærumhverfi og umfram allt, njóta umhverfisins. Áskorendakeppni fyrirtækja og félagasamtaka stendur yfir alla vikuna. FÖSTUDAGUR 15. MAÍ – HAFNA- OG FJÖRUHREINSUN Tökum höndum saman og hreinsum við hafnarsvæði og strendur í Skagafirði. LAUGARDAGUR 16. MAÍ – NJÓTUM UMHVERFISINS Íbúar eru hvattir til að hreinsa til og fegra sitt nærumhverfi og nýta einnig daginn til þess að njóta umhverfisins, t.d. fara í göngu eða fuglaskoðun. Við höldum áfram að hlýða Víði og virðum fjöldatakmarkanir og fjarlægðarmörk. DEILDU ÞÍNU FRAMTAKI Á #UMHVERFISDAGAR20

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.