Feykir - 27.05.2020, Síða 6
Samgöngusafnið í Stóragerði
er bíla og vélasafn, staðsett í
Óslandshlíðinni milli Sauðár-
króks og Hofsóss. Fyrir þá
sem ekki þekkja til þá
stofnuðu Gunnar Kr.
Þórðarson og kona hans,
Sólveig Jónasdóttir, safnið 26.
júní 2004 og fer nú í hönd 16.
rekstrarsumarið hjá safninu.
Þar sem Gunnar lést í febrúar
2019 eftir harða baráttu við
MND sjúkdóminn reka nú
Sólveig, börn og tengdabörn
þeirra hjóna safnið í dag.
Það kennir ýmissa grasa á
Samgöngusafninu en það hefur
að geyma um 100 tæki innan-
dyra, allt frá mótorhjólum upp í
slökkvibíla. Það er svo margt
annað sem gleður augað annað
en bílar og tæki sem tengist ekki
samgöngusögunni en gefur
safninu meira gildi og má þar
t.d. nefna derhúfu-, lyklakippu-,
glasa- og Coca cola safn. Fyrir
utan safnið og í kringum það
eru svo um 200 tæki sem
mörgum þykir gaman að skoða,
sérstaklega þegar vel viðrar.
Formleg opnun safnsins er
frá 1. júní til 30. september og er
opið alla daga vikunnar frá kl.
11-18. Aðsókn á safnið hefur
farið ört vaxandi seinustu árin
og eru Íslendingar þar mjög stór
hluti gesta. Þrátt fyrir skrítna
tíma og svartar spár í ferða-
þjónustunni vonast eigendur til
þess að Íslendingar haldi áfram
að sækja safnið heim því þar er
alltaf eitthvað nýtt að sjá á
hverju ári. Þess má geta að
vinsælu traktorsvöfflurnar eru í
boði alla daga á meðan opið er
og eru þær bornar fram með
ekta rjóma og sultu. Aðstaðan
til að taka á móti hópum, allt að
70-80 manns, er mjög góð og ef
óskað er eftir veitingum er hægt
að fá það sem óskað er eftir en
vinsælust eru margrómuðu
kökuhlaðborðin sem minna
helst á gömlu fermingarveisl-
urnar þar sem boðið var upp á
brauðtertur, maregns, hnallþór-
ur og alls konar annað heima-
bakað góðgæti. Þá má ekki
gleyma að nefna útsýnið frá
Stóragerði yfir fjörðinn fagra og
hvergi betra að sitja og njóta
náttúrunnar í kyrrðinni en á
safninu.
Í ár verður sýningin opnuð
með mjög mörgum nýjum
gripum eins og t.d nýjum
slökkvibíl, amerískum trukk,
nokkrum GT bílum, vélsleðum
ásamt ýmsu öðru smádóti.
Gaman er að segja frá því að
slökkvibíllinn sem um ræðir er
fyrsti slökkvibíll Skagafjarðar
og var í geymslu fyrir sveitar-
félagið í um 20 ár hjá Þ. Hansen
en er nú kominn á safnið og er
til sýnis fyrir gesti og gangandi.
GT bílasafnið stækkar með
hverri vikunni og má þar nefna
Nissan 100NX, Corolla SI,
Mazda GTR, Toyota Celica og
mikið breytta Toyota Corolla í
anda Fast and furious mynd-
anna. Þá er von á Ford Excort
RS Turbo á næstu vikum sem er
sá eini sem eftir er á landinu í
dag. Þá er einnig gaman að
segja frá því að safnið fékk til
varðveislu Citroen DX, árgerð
81, en hann er með vökva-
fjöðrun sem lyftir bílnum upp
þegar honum er startað en
þetta þótti það flottasta fyrir
nokkrum áratugum síðan. Þá
fékk safnið að láni Toyota
Crown Delux árgerð 1967 frá
Þorsteini á Kárastöðum í
Hegranesi og verður hún til
sýnis seinna í sumar þegar búið
er að standsetja hana eftir
nokkurra ára geymslu.
Það er nokkuð ljóst að
kynslóðaskiptin eru að setja
nýjan drifkraft í rekstur safnsins
þar sem ný hugsjón er að fæðast
hjá sonum þeirra hjóna, þeim
Jónasi Kr. og Brynjari Morgan
Gunnars-sonum. Þeirra áhugi
liggur að sjálfsögðu í fornbílum
en einna helst þeim yngri sem
vonandi dregur að nýjan
markhóp sem hefur kannski
hingað til ekki sýnt eldri
fornbílum mikinn áhuga, þó
flottir séu. Þarna er verið að tala
um bíla sem eru frá árinu 1987
og yngri.
Það er því um að gera að
fylgjast með Samgöngusafninu í
Stóragerði á samfélagmiðlum
og heimsækja þetta skemmtilega
og flotta safn í sumar og að
sjálfsögðu gæða sér á traktors-
vöfflu í leiðinni.
Alltaf fjölgar sýningargripunum
Fyrsti slökkvibíll Skagafjarðar er kominn á safnið og er til sýnis fyrir gesti og gangandi.
MYNDIR: Sigríður Garðarsdóttir og Brynjar Morgan Gunnarsson
AÐSENT I Samgöngusafnið í Stóragerði
Citroen DX, árgerð 1981, fékk að fara í smá bíltúr í góða veðrinu um daginn. Þessi fallega Toyota Crown Delux, árgerð 1967, er í eigu Þorsteins frá Kárastöðum
í Hegranesi og verður til sýnis á safninu seinna í sumar þegar synir Gunnars, þeir
Jónas og Brynjar hafa aðeins ,,klappað" henni.
Þessi rauða Toyota Corolla Liftback (EAT-ME) árgerð 94 er enginn venjulegur bíll í
dag þar sem búið er að leggja óendanlega mikla vinnu í ALLT sem hefur verið gert
og smíðað í hann. Eins og sést á myndinni er búið að setja Playstation tölvu í skottið
sem hægt er að spila á.
Hér má sjá nokkra bíla úr GT safninu sem er að myndast hægt og rólega á
Samgöngusafninu í Stóragerði.
Traktorsvafflan í Stóragerði.
6 21/2020