Feykir


Feykir - 27.05.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 27.05.2020, Blaðsíða 7
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Póstur Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Feykir spyr... Hvernig var svo tilfinningin að komast aftur í ræktina? Spurt á Facebook UMSJÓN : SHV „Tilfinningin var mjög góð og gaman að komast aftur í félagsskapinn. Mér finnst hann vera svo stór partur af hreyfingunni og ánægjunni.“ Kolbrún Marvia Passaro Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt - en kannski satt... Asni er hófdýr af hestaættkvísl, sem maðurinn tamdi sem húsdýr fyrir eitthvað um fimm þúsund árum. Hestar og asnar geta átt afkvæmi saman og kallast afkvæmi asna og hryssu múldýr en afkvæmi ösnu og hests kallast múlasni. Sebrahestur og asna eiga ógjarnan afkvæmi saman, þótt það hafi komið fyrir í dýragörðum og samkvæmt WikiPedia hefur verið stungið upp á því að kalla þá dýrategund sebraasna. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eru augu asna þannig staðsett á höfðinu að þeir geta séð alla fjóra fætur sína öllum stundum. Tómatasalat og tvær góðar kökur Bændurnir í Miðhúsum í Vatnsdal, þau Berglind Hlín Baldursdóttir og Eiður Magnússon, eru matgæðingar þessarar viku. Þau deila með lesendum uppskrift að frísklegu og fljótlegu tómatasalati og tveimur spennandi kökuuppskriftum. „ Við erum sex í heimili og rekum kúabú í Vatnsdal. Þar sem tími er oft af skornum skammti á okkar heimili þá hafa uppskriftir sem taka stuttan tíma og eru einfaldar frekar verið uppi á pallborðinu í kaffitímum frekar en flóknari bakstur og eldamennska,“ segja Berglind og Eiður. Það er oft slett í þessar ef gesti ber að garði eða á sunnudögum með kaffinu. Líttu djúpt í eigin barm, þar er uppspretta styrks sem streymir ætíð fram ef þú leitar hennar.” /Marcus AureliusBell KAKA 1 Hraðkaka 1 bolli hveiti 1 bolli sykur 1 tsk. matarsódi ½ tsk. salt 1 stk. egg 1 lítil dós kokteilávextir Aðferð: Hrærið saman og setjið í smurt eldfast mót á 180°C í u.þ.b. 20 mínútur, þá er stráð yfir blöndu af púðursykri og kókosmjöli og látið bakast í 10 - 20 mínútur í viðbót. Borið fram með ís eða rjóma. KAKA 2 Besta eplakakan Þessa fann ég á netinu og er mjög hrifin af. Hún er fljótleg og einföld að gera þó að baksturstíminn sé í lengri kantinum og bragðast dásamlega. 200 g smjör (við stofuhita) 3 egg 4 dl hveiti 2½ dl sykur 1 tsk. lyftiduft 1 dl rjómi 1½ tsk. vanilludropar og/eða vanillusykur (ég nota bæði) 2 epli kanilsykur Aðferð: Byrjð á því að flysja epli, kjarnhreinsa og skera í bita. Hrærið saman smjör og sykur í ljósa blöndu. Hrærið næst eggjunum saman við, einu í einu. Blandið hveiti og lyftidufti saman og hrærið síðan saman við blönduna. Loks er „Sú tilfinning var mögnuð og stórkostlegt að komast aftur í ræktina og mjög hressandi fyrir alla að samfélagið sé aftur að komast í eðlilegan gang.“ Gunnar Örn Jónsson „Óskaplega góð.“ Sigríður Gunnarsdóttir „Ég átti yngsta gaurinn minn í byrjun apríl svo ég fann í raun lítið fyrir lokuninni en það var dásamlegt að komast aftur í ræktina.“ Erla Hrund Þórarinsdóttir ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is Berglind Hlín og Eiður í Miðhúsum matreiða Eiður og Berglind á góðri stund. MYND: ÚR EINKASAFNI rjóma og vanilludropum bætt út í og hrært. Setjið í smurt 24 sm form. Stingið eplabitunum ofan í deigið og sáldrið loks um tveimur matskeiðum af kanilsykri yfir. Bakið við 175°C í um 45 mínútur. Leyfið að kólna aðeins og berið fram með þeyttum rjóma eða ís. SALAT Tómatasalat Þetta salat geri ég oft í veislum. Það er einstaklega fljótlegt og gott á snittubrauð eða hvítlauksbrauð. 1 dós kirsuberjatómatar ½ bakki fersk basilika dass af góðri ólífuolíu 1 dós mossarellaostakúlur frá MS salt og pipar eftir smekk Aðferð: Skerið niður tómata, mossarella og basiliku í skál dassið olíunni yfir. Salt og pipar eftir smekk og volia, salatið er tilbúið. Verði ykkur að góðu! Berglind og Eiður skora á Sigríði Bjarneyju Aadnegard, skólastjóra á Húnavöllum, að vera næsti matgæðingur. Tilvitnun vikunnar 21/2020 7 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Flutningur ég einatt er. Einnig sá sem skilar mér. Gáðu vel að gluggunum, gjöldum jafnt og tekjunum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.