Feykir


Feykir - 10.06.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 10.06.2020, Blaðsíða 7
Fáðu Líf í tún og akra Fjölbreytt úrval áburðar í Líflandi Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 540 1138 eða við verslun okkar á Blönduósi í síma 540 1155 og fáðu nánari upplýsingar um áburðarúrvalið. Einnig er hægt að senda tölvupóst á aburdur@lifland.is REYKJAVÍK LYNGHÁLSI 3 SÍMI: 540 1125 LÍFLAND SÖLUDEILD BRÚARVOGI 1-3 SÍMI: 540 1100 lifland@lifland.is AKUREYRI ÓSEYRI 1 SÍMI: 540 1150 BORGARNESI BORGARBRAUT 55 SÍMI: 540 1154 BLÖNDUÓSI EFSTUBRAUT 1 SÍMI: 540 1155 HVOLSVELLI ORMSVELLI 5 SÍMI: 487 8888 4. flokki við að þróa líkamlega hlið leiksins. Victor er reyndur þjálfari sem hefur lokið prófi í knattspyrnuþjálfun við Uni- versity Campus of Football Business í London. Hann mun vinna með 3., 4. og 5. flokki á margþættan hátt, þar á meðal með myndbandsgreiningu og persónulegum tæknifundum. „Þeir munu síðan þurfa að láta verkin tala á vellinum!“ segir Jamie en hann vill bæta við einum sterkum leikmanni til viðbótar til að styrkja hópinn. Í hverju felst starf þitt hjá Tindastóli? „Ég er yfirþjálfari meistaraflokka karla en auk þess er ég einnig yfirþjálfari unglingaliðanna. Ég þjálfa 3., 4. og 5. flokk stráka og aðstoða aðra þjálfara félagsins við störf sín. Ég sé fram á mjög annasamt sumar!“ Að mati Jamie er starf hans þríþætt. „Í fyrsta lagi að hjálpa þjálfurum félagsins okkar til að þróa og framkvæma æfingaplan sem hjálpar sem flestum ung- mennum að elska fótbolta. Við erum að reyna að gera þetta með æfingum sem eru skemmtilegar og með því að skapa umhverfi sem hvetur þau til að læra. Í öðru lagi að þróa æfingaplan sem býr til leikmenn sem eru tilbúnir til að keppa í meistaraflokki við 18 ára aldur. Þetta er mjög mikilvægt. Við erum með fullt af leikmönnum sem eru með góða tækni en það er ekki það sama og að vera góður leikmaður. Til að vera góður leikmaður verður þú að skilja leikinn. Fallegar spilæfingar, dans milli keilna og notkun sérstaks æfingabúnaðar lítur vel út fyrir fólk úr fjarlægð en kennir það ungu leikmönnunum hvernig þeir eiga að spila leikinn? Hæfileikinn til að senda boltann eða reka hann snýst um tímasetninguna, þetta snýst um að geta framkvæmt undir pressu, þetta snýst um ákvarðanir sem leikmennirnir taka. Þeir sem geta framkvæmt það sem þeir kunna þegar allt í kringum þá er á hreyfingu og hitt liðið er að reyna að stöðva þá – það eru góðir leikmenn. Í þriðja lagi að byggja upp og þjálfa lið í meistaraflokki karla sem vekur ástríðu hjá bæjarbúum og getur keppt í Inkasso-deildinni – þar sem ég tel að lið frá Sauðárkróki eigi heima. Það er langt bil í næstu kynslóð leikmanna hjá okkur en það eru strákar sem eru 15- 16 ára núna. Við verðum að vera snjöll þegar kemur að félagaskiptum og þróa mögu- leika fyrir leikmenn til að koma hingað og mynda sterkan hóp með okkar hæfileikaríku leikmönnum. Ég tel að þetta sé mögulegt og ég vona að við getum áunnið okkur stuðning bæjarbúa í leiðinni!“ Ragmagnsofn, frosinn matur og kertaleysi í vetrarstormi Hvernig hefur þessi tími verið síðan þú gekkst til liðs við Tindastól síðasta sumar? „Tími minn á Íslandi hefur verið frábær hingað til. Þetta er eitt fallegasta land sem ég hef ferðast um og ég fæ aldrei nóg af því að upplifa eitthvað spennandi á mismunandi stöðum á Íslandi. Ég skemmti mér meira að segja vel í vetur. Ég mun þó sjá til þess að eiga nægan mat og kerti fyrir óveðrin næsta vetur. Ég komst að því síðasta vetur að rafmagnsofn, frosinn matur og kertaleysi er ekki besti undirbúningurinn fyrir vetrarstorm í norðri!“ Hvað varst þú að fást við áður en þú komst á Krókinn? „Áður en ég kom til Íslands starfaði ég í London hjá Enska knatt- spyrnusambandinu við að kenna knattspyrnuþjálfurum og sá um kennslu á ensku útgáfunni af KSÍ 1 og 2 námskeiðunum og einnig UEFA námskeiðunum. Ég vinn enn við UEFA námskeiðin og þess vegna hverf ég stundum í viku eða tvær til að kenna í London.“ Hvað finnst þér um íþróttaaðstöðuna hér á Sauðárkróki? „Mér finnst aðstæður til íþróttaiðkunar hérna alveg ótrúlegar. Það er gaman að sjá tækifærin sem krakkarnir hér hafa til að æfa allt árið um kring, bæði körfubolta og fótbolta. Mér finnst magnað að rölta upp á völl, stundum klukkan 22:00 á sumrin, og þar eru börn að spila fótbolta. Að stunda sitt hvort sportið og fá tækifæri til að æfa stanslaust, ég held að þetta sé eitt það besta sem fullorðnir geta gert fyrir börnin. Hvað varðar íþróttir fullorðinna þá elska ég þá hugmynd að strákarnir spili allir fyrir sitt lið og sinn bæ. Það er skuldbinding hér sem er sjaldgæf á öðrum stöðum í heiminum þar sem ég þekki til. Við erum með 14–15 leikmenn sem vilja aðeins spila fyrir Tindastól og það er magnað að vinna við slíkar aðstæður! Aðstaðan er líka mögnuð og miklu betri en hjá svipuðum félögum í Englandi og á öðrum stöðum sem ég hef heimsótt í Evrópu. En ef einhver getur byggt fyrir okkur hús í kringum gervigrasvöllinn, þá verð ég ofsakátur!“ Hvaða væntingar hefurðu til sumarsins og hver eru helstu markmið Tindastóls-liðsins? „Fyrir utan að fá þrjá mánuði af sólskini?“ segir Jay eldhress og heldur svo áfram: „Það eru þrjú takmörk fyrir okkur sem félag: 1. VINNA 3. deildina. 2. Komast áfram í 3. umferð Mjólkurbikarsins. Ef við náum því þá væri gaman að fá eitt af stóru liðunum hingað heim á Krókinn. 3. Að halda áfram að koma á fót faglegu fótboltaumhverfi sem mun gera okkar félag samkeppnishæft við liðin sem við viljum keppa við í Inkasso-deildinni. Allt frá faglegri greiningu í að setja á laggirnar fjölmiðlateymi. Það eru nokkur mjög góð lið í 3. deildinni. KV og Augnablik gætu orðið okkur hættuleg vegna leikmanna sem þeir geta kallað til frá KR og Breiðabliki. Það eru fleiri lið sem hafa náð að bæta við nokkrum góðum erlendum leikmönnum og það eru líka nokkrir mjög góðir þjálfarar í þessari deild. Ég tel að við og fjögur önnur lið muni berjast núna um toppsætin og ef okkur tekst að ná síðustu tveimur félagaskiptunum í gegn myndi ég líta á okkar lið sem það líklegasta til að vinna þessa deild.“ Hvernig fannst þér leikurinn gegn nágrönnum okkar í Kormáki/Hvöt? „Mér fannst leikurinn áhugaverður. Það var frábært að sjá hversu margir stuðningsmenn mættu og vonandi verður framhald á því. Við verðum að muna að strákarnir hafa ekki spilað alvöru leik í átta mánuði og ensku strákarnir hafa ekki einu sinni æft síðustu fjóra mánuði. Lið gestanna spilaði vel, þeir voru með gott leikskipulag sem gerði okkur erfitt fyrir. Að skora fyrsta markið í leiknum hjálpaði þeim líka. Okkar frammistaða var ekki frábær en við áttum von á því. Við höfðum rætt það dagana fyrir leikinn að það yrði ekki auðvelt að fara að spila á ný. En við náðum í þau úrslit sem við þurftum og við höldum áfram að bæta okkar leik,“ segir Jamie að lokum en næsti leikur Tindastóls er nú á laugardag þegar lið Samherja kemur á Krókinn í 2. umferð Mjólkurbikarsins. 23/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.