Feykir


Feykir - 16.06.2020, Blaðsíða 5

Feykir - 16.06.2020, Blaðsíða 5
Það var kátt á gervigrasinu á Króknum á laugardaginn þegar meistaraflokkar Tindastóls unnu báða sína leiki í annarri umferð Mjólkurbikar- keppninnar og komu sér áfram í keppninni. Stelpurnar fengu Völsung frá Húsavík í heimsókn og strákarnir lið Samherja úr Eyjafirði en ljóst er að mótherjar næstu umferðar verða mun erfiðari. Stelpurnar mæta Pepsí- deildarliði KR syðra og strákarnir mæta ÍBV í Vestmannaeyjum en þeir leika í Lengjudeildinni í ár. Stelpurnar hófu sinn leik kl. 14 og var ekki langt liðið á leikinn þegar fyrsta markið kom en þá skoraði Hugrún Pálsdóttir sitt fyrsta mark í sumar á 7. mínútu. Hún var aldeilis ekki hætt því á 28. mínútu bætti hún öðru marki við og kom Stólum í 2-0. Þriðja markið er skráð sjálfsmark Völsungs en svo virtist sem Hrafnhildur Björnsdóttir hafi potað boltanum inn eftir hornspyrnu en fór í varnarmann á leið sinni í netið. En það var Hugrún sem var mætt á skotskónum sem fullkomnaði þrennu sína og fjórða mark heimastúlkna á 53. mínútu og gerði þar með út um leikinn. Rétt fyrir leikslok náði Hildur Anna Brynjarsdóttir að laga stöðu gestanna með síðasta marki leiksins. Stelpurnar komnar áfram og leika næst við KR stúlkur á Meistaravöllum þann 10. júlí og eiga harma að hefna frá því í fyrra er liðin áttust við í bikarnum. Þá náði KR að merja sigur 1-0 á sínum heimavelli. „Frábært að byrja tímabilið á flottum sigri! Við vorum flottar sóknarlega, náðum að fylgja okkar leikskipulagi og klára færin vel. Varnarlega þá vorum við fínar og erum að byggja ofan á varnarleikinn,“ segir Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls. Henni finnst liðið koma vel út eftir veturinn og segir það verða gaman að halda áfram að þróa leik liðsins. „Deildin byrjar í næstu viku og við þurfum að einbeita okkur að einum leik í einu til að stíga í átt að markmiði okkar. Þetta verður erfitt þar sem leikjaskipulagið er þétt en við höfum góða breidd í liðinu sem er lykilatriði. Vil hvetja alla Tindastólsmenn að mæta á leikina hjá okkur í mfl. kvenna og karla í sumar til að styðja við bakið á okkur. Áfram Tindastóll!“ Á leið til Eyja Seinni leikur dagsins var karla- leikurinn á móti Samherjum úr Eyjafirði en þeir voru aðeins sýnd veiði en ekki gefin þrátt fyrir að leika í deild neðar en Stólarnir. Gestirnir komust yfir er tæpur hálftími var liðinn af leiknum þegar Hreggviður Heiðberg Gunnarsson skoraði úr vítaspyrnu og 1-0 staðreynd sem var staðan í hálfleik. Það glaðnaði heldur yfir stuðnings- mönnum heimamanna þegar Luke Morgan Conrad Rae jafnaði metin eftir klukkutíma leik og ekki minnkaði gleðin þegar Jónas Aron Ólafsson tryggði Stólunum farseðilinn til Eyja undir lok leiksins en þangað er ferðinni heitið eftir að dregið var í 3. umferð Mjólkurbikarsins. Fer sá leikur fram 24. júní á Hásteinsvelli. „Leikurinn í gær reyndist okkur erfiður. Þeir lágu svolítið til baka og lokuðu á það sem við reyndum að gera, svo fá þeir mjög ódýrt víti að mínu mati og þá heppnaðist þeirra leikplan fullkomlega. Gátu verið enn þéttari til baka og gekk illa hjá okkur að brjóta þá niður en það tókst á endanum og við unnum sætan sigur og komumst áfram sem skiptir öllu máli,“ segir Ísak Sigurjónsson, fyrirliði Stólanna um leik gærdagsins. Næsti leikur er á móti Hugin/Hetti hér heima og býst Ísak við hörkuleik. „Huginn/Höttur er með flott lið og við líka og við stefnum á að verja heimavöllinn og sækja fyrstu þrjú stigin i deildinni. Ég sé okkur berjast um að fara upp en við þurfum að slípa okkur aðeins betur saman. Við höfum bara æft saman í tvær vikur og þetta er allt farið að líta vel út, svo eigum við Tanner inni sem á flug 24. júní svo ég er mjög bjartsýnn á framhaldið,“ segir Ísak sem er þakklátur fyrir góða mætingu á völlinn í síðustu tveimur leikjum. „Ég vona að þetta sé það sem koma skal í sumar því stuðningur frá fólkinu gefur okkur heilmikið og vonast ég til að enn fleiri komi á leiki hjá kvenna- og karlaliðinu í sumar og vona ég að bæði lið fari upp um deild og tel ég þau vera með það góð lið að þau geti það og Áfram Tindastóll!“ /PF Tveir sigrar Stóla í Mjólkurbikar Tindastóll Er betri en sá gamli í fótbolta Hinn knái knattspyrnumaður hjá Tindastól, Jóhann Daði Gíslason, tók áskorun frá pabba sínum sem svaraði spurningum í Liðinu mínu í Feyki fyrir skömmu. Jóhann Daði starfar nú sem ráðgjafi hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á Sauðárkróki meðfram stífum æfingum með Stólunum, sem ætla að gera góða hluti í sumar. Alla vega eru þeir komnir áfram í Mjólkurbikarnum eftir sigur á Samherjum úr Eyjafirði sl. laugardag og fyrsti deildarleikur sumarsins verður svo nk. laugardag gegn Hetti/Hugin í 3. deildinni á Sauðárkróksvelli. Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Uppáhalds liðið mitt er Arsenal. Ég hef haldið með Arsenal síðan ég var fjögurra ára, minnir mig. Byrjaði líklegast að halda með þeim út af því að faðir minn heldur með þeim. Ég sé ekki eftir því að byrja að halda með Arsenal. „Once a Gunner always a Gunner“. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Tímabilið er að verða búið svo það er varla hægt að spá okkur ofarlega. En ef við stöndum okkur vel á leikmannamarkaðinum í sumar þá er ég bjartsýnn á að við náum meistaradeildarsæti á næsta tímabili. Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Er ekki beint sáttur við stöðuna eins og hún er í dag, en er bjartsýnn á framtíðina. Mikel Arteta er rétti maðurinn til að snúa gengi liðsins við. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Já, já. Ég lendi alltaf í einhverjum deilum við vini mína. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Thierry Henry er minn uppáhalds. Svo koma menn eins og Messi og Ronaldinho á eftir honum. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já, ég hef farið tvisvar á leik hjá Arsenal. Fékk ferð á leik í fermingargjöf frá mömmu og pabba. Sú ferð fór ekki vel þar sem Arsenal tapaði á móti Man Utd. Svo fór ég í feðgaferð með pabba, Fannari bróður mínum, og tókum við Sigga afa með okkur á hans fyrsta leik. Sá leikur endaði með jafntefli á móti Wolves. Held að það sé langt í næsta leik hjá mér á Emirates þar sem ég fer víst aldrei á sigurleiki. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Já, ég á alveg helling af hlutum tengt félaginu. Kaupi mér allavega eina, tvær, treyjur á hverju tímabili. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Ég er alltaf eitthvað að reyna að fá litla frænda minn til að halda með Arsenal. Er búinn að kaupa treyju og allt fyrir hann, en hann er ekki enn búinn að velja sér lið. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Ég kýs að tjá mig ekki um það mál. Uppáhalds málsháttur? -Úff, er svo lélegur með þessa málshætti. „Það er eins og það er“, ef það er einhver málsháttur. Einhver góð saga úr boltanum? -Vá, þær eru svo margar. Alltaf gaman að rifja upp útileiki í yngri flokkunum þegar maður fór og gisti í einhverjum skóla. Svo eru æfingaferðirnar til útlanda í miklu uppáhaldi. En gleymi aldrei þegar ég fór í ferð með 2. flokk vestur að keppa á móti Vestra á Bolungarvík. Við fórum tíu í leikinn og enduðum níu eftir að Jón Grétar þurfti að ná flugi suður frá Ísafirði. En leikurinn tapaðist bara 3-0, þótt við værum færri allan leikinn. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Nei, ég er ekki mikið í að hrekkja. Læt aðra um það, eins og hann Martein Jónsson frænda minn. Spurning frá Gísla Sig: -Hvenær ætlar þú að verða góður í fótbolta eins og pabbi þinn? Svar: -Úff, þetta er erfið spurning. Mun kannski ekki ná eins langt og hann. En ég er betri en hann í fótbolta. Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Ég ætla að skora á Eystein Ívar Guðbrandsson að svara þessum spurningum. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hvenær ætlar þú að slá markametið sem pabbi þinn á fyrir Tindastól? Jóhann Daði á Emirates stadium, heimavelli Arsenal. AÐSEND MYND ( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is Jóhann Daði Gíslason/ Arsenal ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Hugrún Pálsdóttir skoraði þrennu í leiknum á laugardaginn. MYND: ÓAB 24/2020 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.