Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 4
Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin | Kafli úr bók eftir Sigurð Ægisson
Mikil ráðgáta í kringum helsingjann
Bókaútgáfan Hólar gaf út fyrir þessi jól tug bóka af ýmsum toga. Ein þeirra, Íslensku fuglarnir og
þjóðtrúin eftir Sigurð Ægisson sóknarprest á Siglufirði, er afrakstur 25 ára heimilda-söfnunar og
eru teknir til skoðunar allir íslenskir, reglubundnir varpfuglar í hérlendri og erlendri þjóðtrú. Auk
þess eru birt ljóð og annað forvitnilegt efni sem þeim tengist að ógleymdum ríflega 1000
alþýðuheitum. Jafnframt er að finna vel á þriðja hundrað mynda, sem og útbreiðslukort hverrar
tegundar fyrir sig. Feykir fékk leyfi til að birta kafla úr bókinni og berum við niður þar sem
helsinginn er tekinn fyrir.
Helsingi
Branta leucopsis
Önnur heiti: Bíldgæs, gagl, Grænlandsgæs, helsingja-
gæs, helsingur, hrúðurkarlafugl, kinnótt gæs, krank-
fugl, prompa, sjófarhrafli, trégæs.
Ísland
Helsingjar verptu áður fyrr á Austur-Grænlandi,
Svalbarða og nyrst í Rússlandi, en er nú líka að
finna í Norður-Evrópu. Grænlensku fuglarnir eiga
viðkomu á Íslandi vor og haust, á leið sinni til og frá
vetrarstöðvum á Bretlandseyjum, aðallega í Skot-
landi. Þeir halda einkum til í Skagafirði og Húna-
vatnssýslum á vorin en í Skaftafellssýslum á haustin.
Á Íslandi hafa fuglarnir verpt nokkuð samfellt frá
árinu 1964, fyrst nokkur pör í Breiðafirði, en einnig
í Austur-Skaftafellssýslu frá því laust fyrir 1990 og í
vestursýslunni frá 1999. Þá eru auk þess smærri vörp
hér og þar á landinu.
En þá að hinu.
Reyndar er nauðsynlegt að leyfa erlendu þjóð-
trúnni að komast strax að, enda er þetta allt
samtvinnað. Menn héldu nefnilega á öldum áður,
að helsinginn verpti ekki eins og aðrir fuglar, hvað
þá lægi á eggjum, enda kom hann fullskapaður á
vetrarstöðvarnar og aldrei fundust hreiðrin þar á
vorin. Þetta var mikil ráðgáta.
Loks þóttist Giraldus Cambrensis hinn velski,
annálaskrifari og háskólakennari í París og síðar
biskup, hafa komist að hinu sanna, þegar örlítinn
helsingja, á fósturstigi, bar fyrir augu hans á Írlandi.
Þessi kynduga skepna var þá ekki eiginlegur fugl
eftir allt, það gaf augaleið, enda átti hún uppruna
sinn — og nærðist í fyrstu — í hafinu.
Þetta var mikil uppgötvun og átti eftir að hafa
gríðarleg áhrif á matarvenjur kaþólskra manna
næstu aldirnar á föstutímanum, þegar kjötát var
bannað.
Næsta stig þessarar mýtu er, að ævafornar sagnir,
allt frá Indlandi og vestur um, fóru að blandast inn
í þetta og nú tóku helsingjarnir — og nokkrar aðrar
tegundir — að vaxa á trjám á sjávarbökkum. Talið er,
að upphafið megi jafnvel rekja til Þrakíu, um 2.000 f.
Kr., ríkis, sem í fornöld náði yfir mestan hluta þess
sem nú er Búlgaría, norðausturhluti Grikklands og
partur af Tyrklandi, auk austurhluta bæði núverandi
Serbíu og Makedóníu.
Agnar Ingólfsson og Finnur Guðmundsson rit-
uðu grein í Náttúrufræðinginn árið 1968 og höfðu
meðal annars þetta að segja:
Á rekavið, sem skolar á land á Íslandi, sitja
stundum einkennileg dýr. Oftast eru þau mörg
saman og mynda því klasa á viðnum. Þessi dýr sitja
á vöðvalegg, sem er festur við viðinn, en dýrið sjálft
myndar eins konar „höfuð“ (capitulum) á leggnum
og er það umlukt 5 bláleitum kalkskeljum. Þetta eru
hin svonefndu helsingjanef, en eina tegund þeirra,
sem vitað er til að hafi fundizt á íslenskum rekavið,
þ.e.a.s. við, sem rekið hefur á íslenzkar fjörur, heitir
á vísindamáli Lepas anatifera.
Helsingjanef eru krabbadýr, þótt þau minni
raunar lítið á krabba við fyrstu sýn. Þau teljast til
þess ættbálks krabbadýra, sem hlotið hefur nafnið
Cirripedia, en á íslenzku hafa slík dýr verið nefnd
skelskúfar. Svo virðist sem Benedikt Gröndal sé
höfundur íslenzka nafnsins. Að minnsta kosti virðist
það hvergi koma fyrir á prenti fyrr en í 5. hefti af
Gefn, en það er tímarit, sem Gröndal gaf út meðan
hann dvaldist í Kaupmannahöfn. Fimmta og síðasta
hefti þessa tímarits, sem kom út árið 1874, fjallar
einvörðungu um náttúru Íslands. Þar er allmikið af
nýyrðum, sem Gröndal hefur smíðað, og hafa mörg
þeirra festst í málinu.
Helsingjanef er hins vegar gamalt alþýðunafn,
sem er arfur frá þeim tíma, þegar menn töldu, að
helsingjanefin væru aðeins tiltekið þróunarstig
helsingja og/eða margæsa líkt og egg hjá öðrum
fuglum. Þessi trú var ríkjandi frá því á 12. öld og
fram á öndverða 18. öld. Að vísu vefengdu stöku
fræðimenn þessa kenningu, og var Albertus Magnus
(ca. 1200–1280) einn þeirra. En hún reyndist
samt ótrúlega lífseig. Til dæmis um það má nefna,
að árið 1678 birtist ritgerð í „The Philosophical
fæðingu helsingja segi „landar vorir hér um bil
hið sama sem Petrus Pomponalius skrifaði forðum
um brenta eða bernicla“. Og Gísli biskup Oddsson
kemst þannig að orði um þetta efni í Íslandslýsingu
sinni frá 1638: ,,En svo skal ég ekki fara út fyrir
efnið og þá kem ég að öðrum líkum fuglum af
sama kyni, en lítið eitt minni, sem halda sig mest
við sjávarstrendur og eru því nefndir margæsir.
Þeim eru líkastir helsingjar, sem menn halda að
hafi tvöfalda æxlun, fæðist annað kynið af trjáviði
nokkrum (sjá Gyðingasögu Jósephusar), en hitt
komi fram við egg. Hefur eftir því verið tekið hér
á landi, að hið síðarnefnda hendi sjaldan hér, og
fullyrða menn því einum munni, að allir helsingjar
vorir séu karlfuglar.“ Meðal almennings á Íslandi
mun lengi hafa eimt eftir af þessari trú, því að í
dagbók sinni frá 1797 víkur Sveinn Pálsson að þessu
efni og gefur í skyn, að hin gamla trú um „Lepades
anatiferas“ sé ekki með öllu úr sögunni.
Þessi lífseiga trú um hinn dularfulla uppruna
helsingja og margæsa hefur eflaust átt rætur sínar
að rekja til þess, að lengst af þekktu menn ekki varp-
heimkynni þessara tegunda, en þau eru í nyrztu Ís-
hafslöndum. Hins vegar voru báðar tegundirnar al-
gengar við strendur Vestur-Evrópu vetur, vor og haust.
Annars var það aldrei ætlunin að rekja hér til
neinnar hlítar hinar fjölmörgu heimildir um þetta
efni, enda eru þær miklu fremur menningarsögulegs
en náttúrufræðilegs eðlis. En geta má þess, að auk
íslenzka nafnsins helsingjanef bera nafngiftir á
ýmsum málum enn merki þessarar fornu trúar. Á
ensku heita t.d. helsingjanef goose barnacles og á
þýsku Entenmuscheln. Vísindaheiti margæsarinnar
er Branta bernicla og á ensku nefnist helsinginn
barnacle-goose.
Víkur nú sögunni til Jóns Guðmundssonar hins
lærða á 17. öld, en hann ritar eftirfarandi:
Þad smæsta fuglakyn kalla menn sjófarhrafla,
varla þridie partur úr selning. Þar af kalla menn
hrafl sniós, þegar jörd er sumstadar ber; hann er
fleckóttur með hvijtt og svart.
Erfitt er að sjá á þessum orðum hvort Jón er með á
nótunum, en samt er eins og hann viti eitthvað af
umræðunni. Í sama riti minnist hann bara á gæs og
álft og er ekki með neina frekari sundurliðun.
Þorlákur Markússon kannast í Íslandslýsingu
sinni frá um 1730 við söguna af uppruna helsingjanna
og Snorri Björnsson á Húsafelli líka, 1792, og segir
um fuglinn:
[U]m hann og hans nätturu hafa menn margt
dicktad sem einga vissu hefur, þessi fugl kemur Helsingi verður til. Vatnslitamynd eftr bandaríska háskólakennarann og listakonuna Jennifer Landin.
Transactions“ í London
þar sem höfundurinn,
Robert Moray, heldur
enn fast við þessa kenn-
ingu og lýsir því, hvernig
helsingjanefin breytist í
hinar umræddu fugla-
tegundir. Og árið 1689
birtist meira að segja enn
í fræðiriti mynd af tré, sem
hinar umræddu gæsir áttu
að hafa vaxið á.
Það er því ekki tiltöku-
mál, þótt í elztu ritum
um náttúru Íslands sé
vikið að þessu efni. Meðal
annars segir Oddur biskup
Einarsson í Íslandslýsingu
sinni frá 1589, að um
4 46/2020