Feykir


Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 12

Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 12
Frá tendrun jólaljósa við kirkjuna á Blönduósi. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON Covid setur strik í hátíðarhöldin COVID-19 | Tendrun jólaljósa Tendrun jólaljósa hafa verið með breyttu sniði um allt land vegna Covidáhrifa og fáir útvaldir fengið að vera viðstaddir. Grýla og jólasveinarnir hafa farið varlega en þó sést hér og hvar og hafa þeir lofað að láta sig ekki vanta þegar kíkt verður á glugga og jafnvel einhverju smáræði laumað í skó á aðventunni. Ljósin voru tendruð á jólatrénu við Blönduós- kirkju fimmtudaginn 26. nóvember þar sem Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri, taldi niður og kveiktu tveir fulltrúar yngri kynslóðarinnar á ljósunum en einungis 1. og 2. bekkur Blönduskóla var viðstaddur. Tréð, sem er sitkagreni, kom úr Gunnfríðarstaðarskógi og mældist ellefu og hálfur metri. Daginn eftir voru ljósin á jólatrénu á Kirkjutorginu á Sauðárkróki tendruð samhliða friðargöngu Árskóla sem einnig fór fram með breyttu sniði. Að þessu sinni var friðarljósið ekki látið ganga milli manna eins og venja er en nemendur 10. bekkjar sáu um að flytja ljósið frá kirkju og upp Kirkjustíginn þar sem ljósin voru kveikt á krossinum sem stendur fremst á Nafarbrúninni. Nemendur á yngsta stigi gengu fylktu liði inn á íþróttavöllinn þar sem friðarljós gekk þeirra á milli og fylgdust með þegar ljósið kviknaði á krossinum á Nöfunum. Aðrir fóru í bæinn og héldu sig í sínum hópum við Kirkjutorgið en 5. bekkingar fengu að dansa í kringum jólatréð eftir að það varð uppljómað. Á eftir fengu allir nemendur kakó, pipar- kökur og kleinur í bekkjarstofum sínum. Síðastliðinn mánudagsmorgun voru ljósin tendruð á jólatrénu við Félagsheimilið á Hvammstanga. Börn í 1. - 4. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra voru viðstödd, gengu kringum jólatréð og sungu jólalög. Giljagaur leit við og Þórey Edda Elíasdóttir flutti ávarp. /PF Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 46 TBL 2. desember 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981Hjónin Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir, sem búa á bænum Sölvanesi í Skagafirði, bjóða upp á ýmislegt góðgæti í bíl smáframleiðenda þegar hann er á ferðinni. Í Sölvanesi er rekinn búskapur með sauðfé og hross en einnig bjóða þau upp á gistingu þar sem náttúruunn- endur og útivistarfólk ætti að hafa nóg fyrir stafni því margar góðar gönguleiðir eru í námunda við bæinn. Það var fyrir þremur árum að þau hjón ákváðu að prófa að framleiða vörur úr eigin hráefni í Vörusmiðju Biopol á Skaga- strönd og má segja að tilraunin hafi undið vel upp á sig því nú bjóða þau upp á nokkrar mis- munandi vörur. Má þar nefna bláberjagrafinn og reyktan ærvöðva, grafinn ærvöðva, ítalskar kjötbollur, beykireykt kindabjúgu, fars og gúllas. Úr folaldakjöti hafa þau meðal annars framleitt JÓR sem er berjagrafið og reykt folaldakjöt. „Við höfum selt vörurnar okkar heima á býlinu, á bænda- mörkuðum t.d. á Hofsósi, Hvanneyri og víðar, á heimasíðu Beint frá býli, í gegnum REKO og nú síðast í Sælkerabílnum SMÁFRAMLEIÐENDUR Á FERÐINNI og í vefverslun Vörusmiðjunnar. Viðtökurnar í sölubílnum hafa verið frábærar og vonandi verður framhald á því verkefni. Býlið er í lífrænni aðlögun eins og er og vonandi náum við að fá lífræna vorrun á næsta ári.“ Við fengum svo hjónin til að koma með nokkrar uppskriftir þar sem vörurnar þeirra fá að njóta sín og mælum við með því að fara inn á netverslunina Eydís og Rúnar Máni, smáframleiðendur frá Sölvanesi í Skagafirði. AÐSENDAR MYNDIR UMSJÓN Sigríður Garðarsdóttir Smáframleiðendur á Norðurlandi vestra | Spjallað við Eydísi og Rúnar Mána Lamba-, ær-, og folaldakjöt frá Sölvanesi vorusmidja.is og panta þessar girnilegu vörur sem þau hjón eru að framleiða. FORRÉTTUR Bláberjagrafið ærfille á snittubrauði AÐFERÐ: Bræðið smjör og smá sítrónusafa á pönnu. Skerið snittubrauðið og ristið öðru megin í smjörinu. Raðið á fat. Setjið smá blá- berjasultu á brauðið. Svo kemur Laugarmýrarsalat, klettasalat og sneið af grafna kjötinu, einnig má setja sneið af Brie osti ef vill. Skreytið fatið með bláberjum og setjið svo smávegis af balsamik gljáa yfir. Namm! AÐALRÉTTUR Marokkóskur pottréttur Þessi marokkóski pottréttur með lamba- eða ærgúllasi er í miklu uppáhaldi hjá Eydísi en upphaf- lega uppskriftin er frá Nönnu Rögnvaldar, þó aðeins breytt: 700 g ærgúllas salt og pipar 2 msk. olía 1–2 laukar, smátt skornir (má sleppa) 2–3 kramin hvítlauksrif 2–3 gulrætur í sneiðum 100 g þurrkaðar apríkósur 2 tsk. cumin 2 tsk. kóríanderduft 1 tsk. túrmerik ½ tsk. kanill 100 ml chilitómatsósa eða önnur sterk tómatsósa chiliflögur eftir smekk pínu cayennapipar ½ l vatn 1 dós kjúklingabaunir 50 g möndlur (ef vill) AÐFERÐ: Hitið ofninn í 170°C. Þerrið kjötið, skerið í litla bita og kryddið með salti og pipar. Brúnið í olíu á pönnu eða steypujárnspotti, takið svo upp með gataspaða og setjið til hliðar. Bætið olíu á pönnu og mýkið gulrætur, hvítlauk og lauk, stráið kryddunum yfir, hrærið chili- sósunni út í og loks apríkósunum og kjötinu. Síðast fara baunirnar og möndlurnar í. Færið í eldfast mót eða setjið bara lok á steypu- járnspottinn og inn í ofn í u.þ.b. klukkutíma. Þetta er einn af þessum rétt- um sem er ennþá betri daginn eftir. Bláberjagrafið ærfille á snittubrauði. Marokkóskur pottréttur. Viltu vera memm? Það er bara gaman að vera áskrifandi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.