Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 9
Stundum er komist svo að orði, að
allt sem fari upp komi niður aftur, í
ríki náttúrunnar er þetta vitaskuld
staðreynd og helgast einfaldlega af
þyngdaraflinu sem er náttúru-
lögmál. Yfir hinu má frekar velta
vöngum, sem er hvort allt sem fari
niður komi upp aftur – það er mikil
spurning. Telja má þó líklegra en
ekki að svo sé, haldi það sem um
ræðir lífi yfir höfuð. Framvindan sé
þannig í formi boglínuferils frekar
en línulegs. Þannig var það einmitt
1970 eins og fjallað hefur verið um,
að hestamennskan sem leitast hafði
verið við að glæða auknu lífi við
gerbreyttar þjóðfélagsaðstæður var
komin í visst þrot; lægsta punkt má
segja sé líkingin við boglínuna
notuð áfram. Þá vaknaði nýr
frjóangi, á landsmótinu það ár var
forkeppni fyrir fyrsta Evrópumótið
haldin, sem fór svo fram þá um
haustið úti í Rínarlöndum, FT var
stofnað og ungt fólk þess tíma fór að
líta til nýrra þátta innan hesta-
mennskunnar en með sér við hlið
fullorðnar, jafnvel aldnar kempur
sem stóðu traustum fótum í
þjóðararfi hestamennskunnar.
Strax árið á eftir bar svo eitt og annað
til tíðinda sem spor markaði, frá því
segir m.a. í 1. tbl., 12. árg. Hestsins
okkar árið 1971, á bls. 2-14 í greininni
„Reiðskóli L.H. og Fáks“, höfundur
merkir greinina með upphafsstöfunum
H.G. sem er næsta víst sr. Halldór
Gunnarsson sóknarprestur í Holti
undir Eyjafjöllum sem þá var nýtekinn
við ritstjórn blaðsins af öðrum presti,
sr. Guðmundi Óla Ólafssyni í Skálholti
(1927-2007). Hesturinn okkar, tímarit
Landssambands hestamannafélaga,
hafði þá komið út frá árinu 1960, fyrsti
ritstjóri þess var Vignir Guðmundsson
(1926-1974) blaðamaður á Morgun-
blaðinu og ritstýrði hann fyrstu þrem-
ur árgöngunum en þá tók sr. Guð-
mundur Óli við. Í grein Halldórs segir
frá hinni rómuðu heimsókn Feldmann
feðga og reiðnámskeiðinu sem haldið
var í Fáki í Víðidal en þá hafði verið
komið upp þar einu af alfyrstu tamn-
ingagerðunum á landinu í stærðinni
20x40 m en fyrsta gerðið af þessari
stærð, sem oft var kölluð lögleg stærð,
var sett upp hjá reiðskólanum í Vestra-
Geldingaholti árið 1964. Formaður
Fáks á þessum merku tímamótum var
Sveinbjörn Dagfinnsson (1927-2018)
og beitti hann sér fyrir hvoru tveggja,
byggingu reiðgerðisins og námskeiðs-
haldinu.
Meðal þátttakenda á námskeiðinu
var sá kunni hestamaður Bogi Eggerts-
son (1906-1987) sem ritað hafði
kennslubókina Á Fáki ásamt Gunnari
Bjarnasyni og var gefin út af Lands-
sambandi hestamannafélaga 1953, um
námskeið þeirra Feldmann feðga sagði
hann m.a. þetta aðspurður um hvað
væri þarna að eiga sér stað: „Það sem
koma skal. Nákvæmlega það og ekkert
annað. Menn, sem kunna sitt fag, eru
að reyna að kenna okkur rétta
reiðmennsku, sem við höfum ekkert
þekkt fram til þessa.“ (HO, 1. tbl., 13.
árg., bls. 11). Í sama tölublaði Hestsins
okkar birtist greinin „Undirstaða
reiðmennskunnar“ eftir Ragnheiði
Sigurgrímsdóttur (1933-2017) en hún
hafði m.a. aflað sér menntunar í
reiðmennsku í Þýskalandi, Ragnheiður
tók þátt í stofnun FT og var formaður
félagsins 1972 til 1978 og svo aftur frá
1984 til 1986. Greinin sem hér um
ræðir var hluti af formála rits um
grundvallaratriði hlýðniæfinga sem
Ragnheiður tók saman og FT gaf út.
Þá var og í sama tölublaði grein sem
Sveinbjörn Dagfinnsson og Ragn-
heiður Sigurgrímsdóttir þýddu úr
þýsku og nefndist „Eðli og tilgangur
þjálfunar í tamningagerði“. Þarna var
fram komið efni sem var notað afar
mikið á námskeiðum næstu árin en sá
mikilvægi skilningur var að skapast að
hestamennsku mætti læra, væri áhugi
til staðar en væri ekki þær launhelgar
sem aðeins lægju opnar fáeinum
útvöldum.
Íþróttakeppnir fyrstu árin
Næsta ár, 1972, var svo fyrsta próf
FT haldið sem markaði upphaf
áratugaferils um hvernig inntöku í
félagið var háttað sem varð mjög í
samspili við þróun íþróttakeppninnar,
ekki síst hlýðnikeppnina. Annað
Evrópumeistaramótið fór svo fram í
St. Moritz í Sviss það sama ár, íslenska
keppnissveitin var valin í sérstakri
úrtökukeppni sem fram fór samhliða
fjórðungsmótinu á Hellu þá um
sumarið. Í yfirlitsgrein um Evrópu-
mótin og þátttöku Íslendinga í bók-
inni Hestar og menn 1987, höfundar
Guðmundur Jónsson og Þorgeir Guð-
laugsson, útgefandi Skjaldborg 1987,
segir svo um mótið í St. Moritz: „Í
hugum margra mun nokkur skuggi
hvíla yfir þessu móti. Mörg vandamál
komu upp og stundum vantaði upp á
skipulagið væri sem best.“ (Bls. 200 í
tilv. riti). Ekki vantaði þó neitt upp á
náttúrufegurðina í þessum svissneska
fjallabæ sem er í 1800 m hæð yfir
sjávarmáli. Útkoma Íslendinga var
léleg á mótinu, höfnuðu í fimmta sæti
í stigakeppninni en þátttökuþjóðir
voru sex.
Næsta Evrópumót fór fram að
þremur árum liðnum, árið 1975 og
voru Evrópumótin þar með komin á
oddatöluár sem þau hafa verið allar
götur síðan, það mót fór líka fram í
Mið-Evrópu eða í smáþorpinu
Semriach í suðurhluta Austurríkis,
ekki langt frá landamærum Júgóslavíu.
Íslenska liðið var valið í sérstakri
forkeppni sem fram fór á Kjóavöllum í
Garðabæ. Útkoman á mótinu var
HESTAR OG MENN | palli@feykir.is
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Íþróttakeppnir og skóluð reiðmennska ryðja sér til rúms
Sigurfinnur Þorsteinsson á Núpi frá Kirkjubæ, sigurvegara í A-flokki gæðinga á landsmótinu 1974. Sigurfinnur er verðugur
fulltrúi nýrrar kynslóðar keppnismanna sem fram kom um 1970; keppandi á Evrópumótum o.m.fl. MYND ÚR SAFNI SÍH ÚR
ÍSLENSKI HESTURINN, ÚTG. MM OG SÍH, 2004, BLS. 260. LJM. FRIÐÞJ. ÞORKELSS.
mikið betri en á mótinu á
undan; þátttökuþjóðum
hafði og fjölgað, voru nú
átta en Frakkar og
Norðmenn höfðu bæst
við. Ekki var stigakeppni
á milli þjóðanna en
fullvíst er að Íslendingar
hefðu hafnað ofarlega
hefði svo verið gert.
Reynir Aðalsteinsson
(1944-2012) sigraði í tölti
á Degi frá Núpum en á
mótinu á undan, í St.
Moritz, féll Dagur úr
keppni vegna veikinda en
ýmsir hestanna þar þoldu
illa hið súrefnisþunna
háfjallaloft. Fleiri íslensk-
ir knapar auk Reynis
náðu góðum árangri á
téðu móti.
Niðurlagsorð
Áður en Evrópumótið í
Semriach 1975 fór fram
var landsmótið haldið á
Vindheimamelum árið
1974, það landsmót
heppnaðist mjög vel, þó að ekki sæjust
þar nein áhrif af íþróttakeppnun-
um enn þá. Keppnisgreinar Evrópu-
mótanna voru enda í mótunarferli og á
næsta móti, því fyrsta sem haldið var í
Skandinavíu, í Skivern á Norður
Jótlandi. „Nú var tignarlegum fjöllum
Alpanna ekki fyrir að fara en þrátt fyrir
það stóð mótssvæðið fyrir sínu,“ eins
og sagði á bls. 201 í áður tilvitnaðri
heimild. Þetta varð þó fjölmennasta
Evrópumótið hingað til, enda er
náttúrufegurð m.t.t. vals á mótsvæðum
aukaatriði. Gestum á Evrópumótunum
var nú tekið að fjölga; 4000 gestir sóttu
mótið; einnig fjölgaði þátttökuþjóðum
um tvær til viðbótar en Belgía og
Svíþjóð bættust í hópinn og voru þar
með orðnar tíu talsins. Keppnis-
greinarnar voru að auki farnar að
færast mjög í núverandi horf. Úrtöku-
keppni fyrir mótið hér heima fór fram
í Víðidal í Reykjavík og náði keppnis-
sveit Íslands góðum árangri þegar út
var komið.
Í næstu grein verður enn haldið
áfram þar sem frá er horfið í þessari
heillandi sögu. Nú eru hins vegar
tímamót í augsýn, árið 2020, sem fáir
koma líklega til með að sakna, hverfur
brátt í aldanna skaut. Framundan er
jólahátíðin, óska ég öllum sannrar
gleði, árs og friðar.
Kristinn Hugason
46/2020 9