Feykir


Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 11

Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Hár. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Nýttir þú þér afslætti á Svörtum fössara? Spurt á Facebook UMSJÓN : klara@nyprent.is „Já ég gerði það, bæði hér í heimabæ og á netinu.“ Guðrún Vigdís Jónasdóttir Bókaútgáfan Hólar gaf út fyrir jólin 140 vísnagátur eftir Pál Jónasson frá Hlíð á Langanesi. Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum: Ótrúlegt - en kannski satt... Dime er bandarísk mynt, sem samsvarar tíu sentum eða einum tíunda hluta úr dollara. Orðið dime kemur úr fornfrönsku disme (nú dîme), sem þýðir tíund eða tíundi hluti. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eru 118 rákir á brún, hringinn í kringum, bandaríska dime myntarinnar. Tilvitnun vikunnar Friður hefst með brosi. – Móðir Teresa „Nei ég nýtti mér ekki þennan afslátt sérstaklega. Mér finnst afslátturinn ekkert vera meiri þennan dag þó hann heiti einhverju flottu nafni.“ Haukur Skúlason „Nei klikkaði alveg á því. “ Hákon Ingi Sveinbjörnsson „Já ég henti í eina - tvær pantanir.“ Bjarnveig Rós Bjarnadóttir LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Eins gott að halda ró sinni. Sá þessa uppskrift á MS.is og ákvað að yfirfæra hana aðeins á það sem mér þykir best. Saltkaramella: 200 g sykur 100 g smjör 120 ml rjómi frá Gott í matinn 1 tsk. salt Aðferð: Best er að byrja á karamell- unni og leyfa henni að kólna á meðan kökurnar eru bakaðar. Setjið sykur í pott yfir meðalháum hita og hrærið stanslaust þar til sykurinn hefur bráðnað og er orðinn gullinbrúnn að lit. Setjið svo smjör saman við og hrærið vel saman. Blandið rjómanum varlega saman við og hrærið. Látið kara- melluna sjóða í rúma mínútu. Slökkvið undir pottinum og setjið salt saman við og hrærið vel. Marengs: 3 eggjahvítur 180 g sykur ½ tsk. vínsteinslyftiduft ½ tsk. maísenamjöl ½ tsk. salt Aðferð: Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og myndið níu jafn- stóra hringi, eða fleiri. Það fer eftir því hversu stórar kökur þú vilt hafa. Stillið ofninn á 120 gráður. Þeytið eggjahvítur ásamt vínsteins- lyftidufti og salti. Blandið saman maísenamjöli og sykri í skál. Blandið sykrinum smátt og smátt saman við eggjahvíturnar og þeytið þar til marengsinn er orðinn stífur og stendur. Setjið um 2 msk. af marengs inn í hvern hring og lagið marengsinn til með skeið. Setjið um 1 tsk. af karamellu ofan á hverja marengsköku og hrærið kara- mellunni saman við með tannstöngli. Gott er að mynda smá holu í miðjunni á kökunni fyrir ostakökuna. Bakið í 40 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þurr viðkomu. Ostakaka: 180 ml rjómi 4 msk. flórsykur 170 g rjómaostur 1 msk. sýrður rjómi 2 tsk. vanilludropar hunangsristaðar hnetur Aðferð: Þeytið rjóma og flórsykur saman þar til rjóminn stendur. Passið þó að þeyta hann ekki of mikið. Setjið rjómann í aðra skál. Þeytið því næst rjómaostinn ásamt sýrða rjómanum og vanilludropum þar til ostablandan er orðin slétt og fín. Blandið rjómanum saman við ostablönduna með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Setjið rjómaostablönduna ofan á hverja marengsköku, um 2 msk. Saxið hneturnar eða lakkrís eða það sem ykkur langar að hafa ofan á og setjið á hverja köku fyrir sig ásamt karamellu. Steikarsamloka og smá sætt í eftirrétt Ég veit um fátt betra en góða steikarsamloku með nautakjöti, bearnaise og fröllum. Þegar ég var að vinna í Reykjavík, nánar tiltekið á Laugarveginum, elskaði ég að rölta á veitingastaðinn Vegamót í hádeginu og fá mér eina slíka – því hún klikkaði aldrei. Við Binni gerum stundum svipaða samloku þegar við komumst yfir gott nautakjöt því það skiptir svo miklu máli ásamt sósunni. AÐALRÉTTUR Steikarsamloka Nautakjöt snittubrauð úr Sauðárkróksbakaríi rauðlaukur sveppir hvítlaukskrydd salt og pipar Aðferð: Takið sveppina og laukinn og skerið í bita. Ekki of fína og ekki of grófa. Steikið á pönnu með smjöri og hvítlaukskryddi. Hitið grillið og saltið og piprið nauta- kjötið áður en þið setjið á grillið í nokkrar mínútur á hvorri hlið, ekki of lengi því þá verður það þurrt. Skerið svo í þunnar sneiðar þegar það hefur fengið að kólna smá. Svo er það bernaisesósa 3 eggjarauður 300 g íslenskt smjör 2 msk. estragon 1 tsk. nautakraftur í duftformi 2 msk. bernaise essense pipar eftir smekk Aðferð: Eggjarauðurnar eru þeytt- ar mjög vel þangað til þær eru orðnar léttar og ljósar. Smjörið sett í skál og hitað í örbygjunni í u.þ.b. eina mínútu kannski örlítið lengur. Kryddunum og essense bætt við eggjarauðurnar. Því næst er smjör- inu hellt, mjög varlega og hægt, út í eggjablönduna og munið að hræra á meðan. Þá er sósan tilbúin. Settu eitt skorið snittubrauð á disk, stundum rista ég það aðeins á pönnu áður. Set slummu af sósu á brauðið. Set svo kjötbita, sveppina og laukinn og svo aftur sósu og brauðlok. EFTIRRÉTTUR Litlir maregnsostaplattar með saltkaramellu ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is F Steikarsamloka með bernaise og fröllum. Marengsostaplattar meða saltkaramellu. MYND: MS.IS 46/2020 11 Vísnagátur Páls Jónassonar Aldur minn er ansi … Óli hefur glóbjart … Villi minn er voða … nú veistu svarið upp á …

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.