Feykir - 02.12.2020, Qupperneq 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Hár.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Nýttir þú
þér afslætti
á Svörtum
fössara?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Já ég gerði það, bæði hér í
heimabæ og á netinu.“
Guðrún Vigdís Jónasdóttir
Bókaútgáfan Hólar gaf út fyrir jólin
140 vísnagátur eftir Pál Jónasson
frá Hlíð á Langanesi.
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Dime er bandarísk mynt, sem samsvarar tíu sentum eða einum
tíunda hluta úr dollara. Orðið dime kemur úr fornfrönsku disme (nú
dîme), sem þýðir tíund eða tíundi hluti. Ótrúlegt, en kannski satt, þá
eru 118 rákir á brún, hringinn í kringum, bandaríska dime myntarinnar.
Tilvitnun vikunnar
Friður hefst með brosi.
– Móðir Teresa
„Nei ég nýtti mér ekki
þennan afslátt sérstaklega.
Mér finnst afslátturinn
ekkert vera meiri þennan
dag þó hann heiti einhverju
flottu nafni.“
Haukur Skúlason
„Nei klikkaði
alveg á því. “
Hákon Ingi Sveinbjörnsson
„Já ég henti í
eina - tvær pantanir.“
Bjarnveig Rós Bjarnadóttir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Eins gott að halda ró sinni.
Sá þessa uppskrift á MS.is og ákvað
að yfirfæra hana aðeins á það sem
mér þykir best.
Saltkaramella:
200 g sykur
100 g smjör
120 ml rjómi frá Gott í matinn
1 tsk. salt
Aðferð: Best er að byrja á karamell-
unni og leyfa henni að kólna á
meðan kökurnar eru bakaðar.
Setjið sykur í pott yfir meðalháum
hita og hrærið stanslaust þar til
sykurinn hefur bráðnað og er
orðinn gullinbrúnn að lit. Setjið
svo smjör saman við og hrærið vel
saman. Blandið rjómanum varlega
saman við og hrærið. Látið kara-
melluna sjóða í rúma mínútu.
Slökkvið undir pottinum og setjið
salt saman við og hrærið vel.
Marengs:
3 eggjahvítur
180 g sykur
½ tsk. vínsteinslyftiduft
½ tsk. maísenamjöl
½ tsk. salt
Aðferð: Setjið bökunarpappír á
bökunarplötu og myndið níu jafn-
stóra hringi, eða fleiri. Það fer eftir
því hversu stórar kökur þú vilt
hafa. Stillið ofninn á 120 gráður.
Þeytið eggjahvítur ásamt vínsteins-
lyftidufti og salti. Blandið saman
maísenamjöli og sykri í skál.
Blandið sykrinum smátt og smátt
saman við eggjahvíturnar og þeytið
þar til marengsinn er orðinn stífur
og stendur. Setjið um 2 msk. af
marengs inn í hvern hring og lagið
marengsinn til með skeið. Setjið
um 1 tsk. af karamellu ofan á hverja
marengsköku og hrærið kara-
mellunni saman við með
tannstöngli. Gott er að mynda smá
holu í miðjunni á kökunni fyrir
ostakökuna. Bakið í 40 mínútur
eða þar til marengsinn er orðinn
þurr viðkomu.
Ostakaka:
180 ml rjómi
4 msk. flórsykur
170 g rjómaostur
1 msk. sýrður rjómi
2 tsk. vanilludropar
hunangsristaðar hnetur
Aðferð: Þeytið rjóma og flórsykur
saman þar til rjóminn stendur.
Passið þó að þeyta hann ekki of
mikið. Setjið rjómann í aðra skál.
Þeytið því næst rjómaostinn ásamt
sýrða rjómanum og vanilludropum
þar til ostablandan er orðin slétt og
fín. Blandið rjómanum saman við
ostablönduna með sleif og hrærið
þar til allt hefur blandast vel saman.
Setjið rjómaostablönduna ofan á
hverja marengsköku, um 2 msk.
Saxið hneturnar eða lakkrís eða
það sem ykkur langar að hafa ofan
á og setjið á hverja köku fyrir sig
ásamt karamellu.
Steikarsamloka og
smá sætt í eftirrétt
Ég veit um fátt betra en góða steikarsamloku með nautakjöti,
bearnaise og fröllum. Þegar ég var að vinna í Reykjavík, nánar
tiltekið á Laugarveginum, elskaði ég að rölta á veitingastaðinn
Vegamót í hádeginu og fá mér eina slíka – því hún klikkaði aldrei.
Við Binni gerum stundum svipaða samloku þegar við komumst
yfir gott nautakjöt því það skiptir svo miklu máli ásamt sósunni.
AÐALRÉTTUR
Steikarsamloka
Nautakjöt
snittubrauð úr
Sauðárkróksbakaríi
rauðlaukur
sveppir
hvítlaukskrydd
salt og pipar
Aðferð: Takið sveppina og laukinn
og skerið í bita. Ekki of fína og ekki
of grófa. Steikið á pönnu með
smjöri og hvítlaukskryddi. Hitið
grillið og saltið og piprið nauta-
kjötið áður en þið setjið á grillið í
nokkrar mínútur á hvorri hlið, ekki
of lengi því þá verður það þurrt.
Skerið svo í þunnar sneiðar þegar
það hefur fengið að kólna smá.
Svo er það bernaisesósa
3 eggjarauður
300 g íslenskt smjör
2 msk. estragon
1 tsk. nautakraftur í duftformi
2 msk. bernaise essense
pipar eftir smekk
Aðferð: Eggjarauðurnar eru þeytt-
ar mjög vel þangað til þær eru
orðnar léttar og ljósar. Smjörið sett
í skál og hitað í örbygjunni í u.þ.b.
eina mínútu kannski örlítið lengur.
Kryddunum og essense bætt við
eggjarauðurnar. Því næst er smjör-
inu hellt, mjög varlega og hægt, út í
eggjablönduna og munið að hræra
á meðan. Þá er sósan tilbúin.
Settu eitt skorið snittubrauð á
disk, stundum rista ég það aðeins á
pönnu áður. Set slummu af sósu á
brauðið. Set svo kjötbita, sveppina
og laukinn og svo aftur sósu og
brauðlok.
EFTIRRÉTTUR
Litlir maregnsostaplattar
með saltkaramellu
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
F
Steikarsamloka með bernaise og
fröllum.
Marengsostaplattar meða saltkaramellu.
MYND: MS.IS
46/2020 11
Vísnagátur Páls Jónassonar
Aldur minn er ansi …
Óli hefur glóbjart …
Villi minn er voða …
nú veistu svarið upp á …