Fréttablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 56
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
nova.is
Apple
Apple TV 4K
2021 32GB
33.990 kr.
Gleðilegt
gláp!
Jibbí á 0 kr.
í desember!
Ætlarðu að njóta jólanna með félögunum, kæró eða
krökkunum og eiga notalega stund í sófanum? Þú finnur
allskonar glápgræjur hjá okkur til að horfa á jólamyndirnar.
Við elskum jólin og langar að njóta þeirra með þér
og fjölskyldunni. Þess vegna er Jibbí á 0 kr. í desember
á NovaTV! Skoðaðu þig um — það er allt á íslensku!
Samsung Galaxy Tab A7 Lite
að verðmæti 29.990 kr.
Nova
Bíókort
4.690 kr.
Apple
iPhone 13
128GB
159.990 kr.
5G
Samsung
The Frame
QLED 50”
169.990 kr.
199.990 kr.
30.000
króna
afsl.
5G
Samsung
Galaxy S21+
128GB
185.990 kr.
Kaup-
auki
NÁTTÚRUVÆN EINANGRUN
ÚR ÍSLENSKRI ULL
BYLTING Á
HEIMSVÍSU
icewear.is
ULLARJAKKAR
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Ég átti smá móment um daginn
með Hófí kærustunni minni og
eldri konu.
Við vorum í göngutúr í Stokk-
hólmi og stoppuðum hjá lítilli
kirkju þarna einhvers staðar
í Södermalm. Það var sunnu-
dagur, klukkan var þrjú og það
var smá kalt. Hjá kirkjunni voru
runnar og í runnunum voru litlir
fuglar og litlu fuglarnir voru að
tína berjaafganga af runnunum.
Við Hófí stóðum og horfðum á
runnana og fuglana og Hófí sagði
að það væru allavega tíu fuglar
þarna og þegar ég var að telja
þá gekk hún tröppurnar, eldri
konan. Hún stóð með okkur um
stund og horfði á runnana og
fuglana og okkur til skiptis og
við horfðum á hana og fuglana
og hana og runnana og í smá
stund horfðum við á hana og
hún á okkur. Hún brosti til okkar
og gekk inn í kirkjuna, af bak-
svipnum að dæma brosti hún alla
leiðina inn.
Ætli hún fari ekki í kirkju alla
sunnudaga? Ætli hún hitti ekki
vini sína þar? Ætli henni þyki
það ekki friðsælt, að sitja þarna?
Ætli hún hafi ekki skoðun á
prestinum sem hún deilir með
fjölskyldu sinni? Kannski hringir
hún í dóttur sína eftir messu alla
sunnudaga, verkfræðinginn dótt-
ur sína, og segi henni um hvað
predikunin snerist. Kannski
gerir hún það í veikri von um
að dóttir hennar fylgi henni til
messu næsta sunnudag. Kannski
í enn veikari von um að fá barna-
börnin með en: „Nei mamma, við
ætlum þeim veraldlegt uppeldi.
Við erum afhuga kirkjunni.“ Ætli
hún hafi talað um þetta móment
okkar við dóttur sína? Kannski
man hún samt ekkert eftir okkur.
Ég man allavega eftir runnunum
og fuglunum og henni. n
Móment