Alþýðubandalagsblaðið


Alþýðubandalagsblaðið - 03.10.1975, Page 1

Alþýðubandalagsblaðið - 03.10.1975, Page 1
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA 33. tölublað Föstudagur 3. október 1975 6. árgangur Hersetan og sjálfstæði íslands Fundarboð Stapa- ráðstefnunnar HUSHORMÐ Skrifstofa AB Afgreiðsla: Sími: 2-18-75. Mánudagur: kl. 13 — 15,30 Þriðjud.: kl. 10 — 11,30 og kl. 13-15,30. Miðvikud.: kl. 10 — 11,30 og kl. 13-15,30. Fundarboð það sem hér fer á eftir hefur verið póstsent nokkrum fjölda fólks út um allt land, og re það nú væntan lcga komið í hendur viðtak- enda. Eins og annars staðar kemur fram er ráðstefnan op- in öllum andstæðingum herset unnar, hvort sem þeir fá fund arboð bréfleiðis eða ekki, en þátttakendur þurfa að láta skrá sig hjá undirbúnings- nefnd og greiða þátttökugjald. Nöfn þeirra sem að ráðstefn- unni standa eru tilgreind í lok fundarboðsins: Erlendur her hefur nú setið á íslandi nær samfellt í 35 ár, og eru sem stendur engar horf ur á brottför hans í náinni framtíð, nema til komi ný sókn í málinu. Sem kunnugt er var sú stefna mörkuð að upphafi vinstri stjórnar 1971, að her- inn skyldi hverfa úr landi í áföngum. Frá henni var horf- ið 1974. Vegna hinna breyttu að- stæðna í herstöðvamálinu höf- um við undirrituð ákveðið að boða til ráðstefnu í félagsheim ilinu Stapa dagana 11. og 12. október n.k. til að ræða núver andi stöðu málsins, tengsl þess við önnur sjálfstæðis- og utan ríkismál og leiðir til að vinna gegn því að erlend herseta á íslandi verði varanleg. Ráð- stefnunni höfum við valið heit ið: Hersetan og sjálfstæði ís- lands. Þér er hér með boðið að taka þátt í ráðstefnunni til að gera grein fyrir skoðunum þín um á þessum efnum og heyra viðhorf annarra. Væntum við þátttöku þinnar eindregið. Upplýsingar um ráðstefn- una og undirbúning hennar veita Einar Bragi, sími 19933, Elías Snæland Jónsson, sími 42612 (h) og 12002 (v), Gils Guðmundsson, sími 15225, og Finnur Torfi Hjörleifsson, sími 40281. Gert er ráð fyrir að kostnað ur við ráðstefnuna verði greiddur með þátttökugjaldi ráðstefnugesta, og hefur það verið ákveðið kr. 1.500.00. Adda Bára Sigfúsdóttir, veður fræðingur, Reykjavík, Albert Einarsson, kennari, Reykjavík, Andrés Kristjánsson, fræðslu- stjóri, Kópavogi, Andri ísaksson, prófessor, Kópavogi, Ármann Ægir Magnússon, for- maður Iðnnemasambands ísl., Reykjavík, Árni Björnsson, þjóðháttafræð ingur, Reykjavík, Atli Heimir Sveinsson, tón- skáld, Reykjavík, Bjarni Arason, ráðunautur, Borgarnesi, Bryndís Schram, kennari, ísa- firði, Brynja Benediktsdóttir, leik- kona, Reykjavík, Eggert Jóhannesson, bygging- arfulltrúi, Selfossi, Einar Bragi, rithöfundur, Reykjavík, Elías Snæland Jónsson, rit- stjóri, Kópavogi, Eyjólfur Eysteinsson, for- stöðumaður, Keflavík, Aðalfundur AIM Aðalfundur Alþýðusambands Norðurlands verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri dag ana 1.—2. nóv. nk. Á þinginu verða meðal annars til um- ræðu atvinnumál og kjaramál, en eins og flestum mun kunn- ugt stendur nú fyrir dyrum enn ein samningsgerðin við Garðar Hannesson, stöðvar- stjóri, Hveragerði, Gerður Óskarsdóttir, skóla- stjóri, Neskaupstað, Gestur Guðmundsson, form. Stúdcntaráðs H.Í., Reykjavík, Guðmundur J. Guðmundsson, varaform. Dagsbrúnar, Reykjavik, Guðrún Lára Ásgeirsdóttir, húsfreyja, Mælifelli, Skaga- firði, Herdís Ólafsdóttir, form. Kvennadeildar verkalýðsfé- lags Akraness, Framhald á bls. 2. UMRÆÐUHÓPUR UM JAFNRÉTTISMÁL: laugardaginn 4. október kl. 16,00. UMRÆÐUHÓPUR UM VERKALÝÐSMÁL: sunnudaginn 5. október, kl. 16,00. UMRÆÐUHÓPUR UM STEFNUSKRÁ AB: þriðjudaginn 7. október, kl. 20,30. UMRÆÐUHÓPUR UM BÆJARMÁL: fimmtudaginn 9. október, kl. 20,30. RITNEFNDARFUNDUR AB-BLAÐSINS: föstudaginn 10, október, kl. 17,30. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins er komin út. Hún fæst í Bókabúð Jónasar og á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Eiðsvallagötu 18. Verð kr. 500,00. Þingtíðindi frá landsfundi Alþýðub. lagsins 1974 eru einnig fyrirliggj andi á skrifstofunni og eru fulltrúar frá Akureyri og annað áhugafólk hvatt til þess að verða sér úti um eintak hið fyrsta. STJÓRN AB-FÉLAGS AKUREYRAR. „KVENNAFRÍ“ A DEGI SAMEINUÐU ÞJÚÐANNA atvinnurekendur. Innan vé- banda Alþýðusambands Norð- urlands eru nú 19 verkalýðs- félög með samtals um hálft sjötta þúsund meðlima og væntanlega munu eitt eða tvö félög æskja inngöngu á þessu þingi. Nokkuð er síðan að hugmynd kom fram um að konur legðu niður störf sín einn dag, til að sýna fram á samtakamátt sinn annars vegar og hins vegar til að vekja athygli á því hversu veigamikil störf þeirra eru. Þessi hugmynd hefur verið rædd á nokkrum ráðstefnum sem fjallað hafa um málefni kvenna, og á Kvennaráðstefn- unni sem haldin var í Reykja- vík í sumar var samþykkt að stuðla að því að konur leggi niður vinnu á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október n.k. Nú hefur verið stofnuð 10 manna framkvæmdanefnd og 5 starfshópar sem skulu vinna að undirbúningi aðgerðarinn- ar. Framkvæmdanefndin og starfshóparnir starfa á Reykja víkursvæðinu, en samt sem áður er ætlunin að reyna að skipuleggja „verkfalhð“ um allt land. Er einn starfshópur- inn að senda út 2 dreifibréf þessa dagana og fer úrdráttur úr öðru þeirra hér á eftir. Kannanir, sem gerðar hafa verið undanfarið í Reykjavík og nágrenni, sýna að 80—100 prósent kvenna, sem vinna á ýmsum fjölmennum vinnu- stöðum, styðja nú þegar þessa aðgerð. Verkalýðshreyfingin hefur veitt málinu stuðning. Björn Jónsson forseti ASÍ hef ur lýst yfir stuðningi og kvennaráðstefna BSRB og ASÍ í Munaðarnesi um síðustu helgi lýsti sig fylgjandi kvennafríi 24. október. Konur úr öllum stjórnmálaflokkum og úr hinum ýmsu starfsstétt- um hafa lýst sig reiðubúnar að leggja niður störf umrædd- an dag. í Reykjavík er verið að und irbúa útifund sem halda skal frídaginn og er sjálfsagt áhugi fyrir að gera slíkt hið sama úti um land. Hér fara á eftir nokkrir þættir úr fyrrgreindu dreifibréfi: „Hvers vegna sameinast konur úr öllum starfsstéttum og öllum stjórnmálaflokkum um „kvennafrí“ þann 24. októ ber n.k.? — Vegna þess að vanti starfsmann til illa laun- aðra og lítilsmetinna starfa, er auglýst eftir konu. — — Vegna þess að meðal- laun kvenna við verslunar- og skrifstofustörf eru að- eins 73% af meðallaunum karla við sömu störf. •— Vegna þess að mismunur á meðal- tekjum verkakvenna og verka karla er kr. 30.000 á mánuði. — Vegna þess að bændakonur eru ekki fullgildir aðilar að smatökum stéttar sinnar. — Vegna þess að algengt svar er, þegar spurt er um starf konu, sem gegnir húsmóðurstarfi, „hún gerir ekki neitt, hún er bara heima“. — Vegna þess að kynferði umsækjanda ræð- ur oft meiru um stöðuveitingu en menntun og hæfni. — Vegna þess að fordómar og í sumum tilvikum sjálft mennta kerfið lokar ýmsum mennta- leiðum fyrir stúlkum.“ í næsta blaði verður vænt- anlega hægt að segja meira frá undirbúningi kvennaað- gerðanna 24. október. Káó.

x

Alþýðubandalagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðubandalagsblaðið
https://timarit.is/publication/1640

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.