Alþýðubandalagsblaðið


Alþýðubandalagsblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 4

Alþýðubandalagsblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 4
VETRARSTARF LA Tangó fyrsta verkefni Leikféiagsins Næstkomandi sunnudag, hinn 5. október, verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar leik ritið Tangó eftir Slavomír Mrozek. Þýðinguna gerðu Þrándur Thoroddsen og Bríet Héðinsdóttir en leikstjóri er Eyvindur Erlendsson. Leik- mynd er eftir Steinþór Sig- urðsson. Tangó var fyrst sýndur hér á landi fyrir tólf árum, hjá Leikfélagi Reykjavíkur undir leikstjórn Sveins Einarssonar. í þeirri sýningu fór Arnar Jónsson með sitt fyrsta mik- ilsháttar hlutverk hjá L. R., hlutverk Arthurs, sem Aðal- steinn Bergdal leikur í þetta sinn. Júlíus Oddsson mun leika hlutverk Stómils, Sigur- veig Jónsdóttir — Elenoru, Gestur E. Jónasson — Edda, Saga Jónsdóttir — Öllu, Árni Valur Viggósson — Efgeníus frænda, Kristjana Jónsdóttir — ömmuna. Tangó segir frá frelsisdýrk- ASKORIJIM til KEA verkamanna Frá AlþýÖuleik- húsinu á Akureyri Nú er það að gerast í verka- lýðsfélaginu Einingu á Akur- eyri að formaðurinn Jón Helgason gengur í lið með Vinnumálasambandi SÍS ann ars vegar og KEA hins vegar til að þverbrjóta gerða samn- inga, sem eru í fullu gildi. Ekki nóg með það, heldur er gengið svo langt í svínaríinu að fastráðnir verkamenn hjá fyrirtækinu KEA eru látnir stíla bréf til Einingar, þar sem þeir eru látnir fara fram á að þeir fái sama rétt við lestun og losun skipa í Akureyrarhöfn og hafnarverkamenn, sem eru með undirritaðan samning frá öllum skipafélögum að þeir einir hafi forgangsrétt við lestun og losun skipa við Ak- ureyrarhöfn. Mismunurinn felst í því að fastráðnu KEA-verkamenn- irnir eru með sinn samning við KEA en ekki við skipa- félögin. Þeir ættu að gera sér grein fyrir því að með þessu eru KEA-verkamenn að grafa sína eigin gröf, einfaldlega með því að hjálpa þessum öfl- um til að troða á réttindum stéttarfélaga sinna við höfn- ina. — Eða eru þeir máske að sína hug sinn til okkar hafn- arverkamanna og borga okk- ur stuðninginn, þegar þeir fengu sama kaup fyrir sömu vinnu á sínum tíma og við, með okkar hjálp. Ég skora á þennan hóp KEA verkamanna að láta sannleik- ann koma í ljós í þessum mál- um. Mig grunar að ykkur hafi frekar verið hótað til þessa verks, heldur en þar ráði heimska eða kannski ókunnug leiki? Ég vænti svars frá ykkur KEA-verkamönnum við fyrsta tækifæri. Virðingarfyllst. Ragnar Pálsson. endum nokkrum, fjölskyldu, sem eftir mikið brambolt hef- ur tekist, að því er þau sjálf segja, að brjóta af sér hlekki fordómanna og úreltrar hefð- ar og lifir „frjálsu nútímalífi“ með listrænar tilraunir og fyr irhyggjuleysi eitt á stefnuskrá. Ungi maðurinn Arthur sem, einsog aðrir ungir menn, er frábitinn því að sætta sig við heiminn eins og hann er, vill aftur á móti hafa kjölfestu og reglu í tilverunni og leggur því til atlögu við „þetta frelsis víti“. Föður hans og fjölskyldu tekst þá að snúa allri hans sið bót upp í fáránlegan skopleik lengi vel en leikurinn fær óvæntan og snöggan endi „svo sem vænta mátti“. Tangó er fyrsta frumsýning L. A. á þessu starfsári. Miðasala fyrir frumsýning- una hófst á fimmtudaginn (í gær) kl. 4.00 og verður haldið áfram næstu daga milli kl. 4.00 og kl. 6.00. Jafnframt verða seld áskriftakort L. A. eins og venjulega í byrjun leikárs. Áskriftakortin gilda á fjórar til fimm sýningar og eru seld með 20—25% afslætti — 30—40% fyrir skólanem- endur. Alþýðuleikhúsið hefur fengið Stefán Baldursson leikstjóra til að koma norður til Akur- eyrar næstkomandi sunnudag og segja frá svokallaðri Vasa- ráðstefnu, sem haldin var í Finnlandi í júní síðastliðnum. Á ráðstefnunni voru saman komnir fulltrúar allra starfs- greina leikhúsa á norðurlönd- um til þess að ræða um efnið: „Valdauppbygging og stjórn- unarfyrirkomulag leikhúsa og áhrif þessara þátta á listrænan árangur“. Var Stefán einn íslensku fulltrúanna á ráðstefnunni og mun hann segja frá niðurstöð- um ráðstefnunnar og sjónar- miðum sem þar komu fram og er síðan ætlunin að fundar- menn ræði þetta efni nánar. Fundurinn verður að Hótel Varðborg, neðri sal, næstkom- andi sunnudag kl. 14.30 og er opinn öllu áhugafólki um leik hús. Að gefnu tilefni er vænt- anlegum fundraþátttakendum bent á að fundurinn verður því aðeins að fært verði flug- leiðina til Akureyrar um helg ina. (Fréttatilkynning.) Hundsbætur — eða kjarabætur MALGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS i NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA Ritnefnd: Helgi Guðmundsson (ábm.), form., Sigurbjörn Halls- son, Steinar Þorsteinsson, Jón Daníelsson, Kristín Ölafsdóttir, Óttar Einarsson og Soffía Guðmundsdóttir. — Framkvæmdastj.: Jóhanna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn og afgreiðsla: Eiðsvalla- götu 18, sími: 2-18-75. — Pósthólf: 492. Það fer misjafnlega um hin góðu áform manna og flokka, jafnvel ekki ósjaldan eins og postulinn sagði: Það góða, sem ég vil geri ég ekki o. s. frv. Víst er að núverandi ríkisstjórn íhalds og framsóknar mætti og ætti að gera þau orð að sín- um. Hún þóttist hafa það höfuðmarkmið þegar hún tók við stjórn landsins fyrir 14 mánuðum að hamla gegn verðbólgu. Árangurinn hefur orðið harla hlálegur miðað við loforðin, eða á milli 50 og 60% dýrtíðaraukning samkvæmt hennar eigin útreikningum og viðurkenningu. Á móti þcssari hrika- legu aukningu verðbólgunnar, hefur stjórnin tvívegis fleygt nokkrum hundruðum króna í láglaunafólkið, — RÍKIS- STJÓRNIN, EN EKKI ATVINNUREKENDUR AÐ EIGIN VILJA EÐA HVÖTUM. Strax var sýnt, að þessar svokölluðu láglaunabætur voru aðeins auvirðileg dúsa, sem átti að þagga niður í launþega- samtökunum, sannkallaðar HUNDSBÆTUR í stað KJARA- BÓTA, sem launafólk vænti sér og varð að fá, til að geta með nokkru móti lifað mannsæmandi lífi af eðlilegum vinnu degi. Það var forustusveit stéttarfélaga verkafólks, forusta Alþýðusambands íslands, sem lét tilleiðast eftir margra mán- aða samningaþóf, að ganga að þessum hundsbótum, sem þeg- ar höfðu verið gerðar að engu í báli verðbólgu á „samnings- tímanum“. Nú er það svo með ASÍ-forustuna eins og keðjuna, sem aldrei er eða getur orðið sterkari en veikasti hlekkurinn. Á stéttarfélögunum sjálfum hvílir ábyrgðin. Innan þeirra er veiluna að finna. Þau hafa sofið á verðinum heima fyrir og gert sig ánægð með að gera ASÍ-forustuna og þá sem hún sjálf hefur tilnefnt með sér í samninganefndir, að afgreiðslu- stofnun í stað baráttusamtaka. Þess vegna hefur farið sem farið er. Hér þarf að verða grundvallarbreyting á. Stéttarfélögin innan ASÍ þurfa í alvöru og af festu að athuga sinn gang og skipuleggja starf sitt (eða öllu heldur starfsleysi) upp á nýtt. Annars er vá fyrir dyrum og hundsbæturnar halda áfram að vera þær einu kjarabætur, sem launafólk getur vænt sér. Það er ekkert launungarmál, eða á ekki að vera það, að starf stéttarfélaganna hefur sett mjög svo niður að undanförnu, einkum hinn síðasta áratug, eða allt frá hinu fræga JUNÍ- SAMKOMULAGI 1964. Síðan hefur einlægt sigið á ógæfu- hlið fyrir láglaunafólk, þannig að félagsmenn hinna ein- stöku félaga hafa alltaf haft minna og minna að segja um það hvernig staðið hefur verið að samningum. Ríkisstjórnir hafa samið í stað atvinnurekenda og þeir samningar hafa oftast verið byggðir á lauslegum loforðum, sem svo hafa ver- ið svikin æ ofan í æ. Við svo búið má ekki lengur standa. Það er sérstök krafa, sem verður að gera til verkalýðshreyfingarinnar og þá eink- um þeirra yngri innan félaganna, að þeir snúi þessum mál- um algerlega við í náinni framtíð og geri félögin virkileg launþega samtök til raunhæfrar baráttu í kjaramálunum í stað þögulla afgreiðslustofnana. R. G. Sn.

x

Alþýðubandalagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðubandalagsblaðið
https://timarit.is/publication/1640

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.