Alþýðubandalagsblaðið - 03.10.1975, Qupperneq 2
PISTILL VIKUIMiMAR:
„Landsfrægir stjérnmálamenn
og skemmtikraftar“
Framsóknarmenn í Kjósarsýslu voru nýlega að auglýsa
fundarhöld á vegum flokks síns og beittu fyrir sig lands-
frægum stjórnmálamönnum og skemmtikröftum til að
lokka að áheyrendur og horfendur. Hvernig tókst höfum
við ekki enn fengið vitneskju um en heyrst hefur að
skemmtilegasta atriðið á fundi þessum hafi verið eftir-
farandi kafli úr fundargerð ríkisstjórnarinnar, sem leik-
inn var af stjórnmálamönnunum sjálfum með þeim af-
leiðingum að nú eru þeir landsfrægir skemmtikraftar en
ekki frægir af endemum sínum sem stjórnmálamenn.
Hvort fundargerðin er rétt frá orði til orðs vitum við
ekki, því að fundir ríkisstjórnarinnar eru að sjálfsögðu
hernaðarleyndarmál, en einn af velunnurum blaðsins
komst undir leka af fundinum og hér er árangurinn.
„Forsætisráðherra setti fundinn og kynnti eftirfarandi
dagskrá:
1. Ráðleysi.
2. Dáðleysi.
3. Hugmyndaskortur.
4. Vesaldómur og narjsamennska.
5. Onnur mál ef fram koma.
Fyrir var tekinn fyrsti liður og hafði forsætisráðherra
sjálfur framsögu. Kvaðst hann hafa haft svo mikið að
gera undanfarið við að rannsaka fjármál eigin flokks að
hann hefði engin ráð á takteinum við aðsteðjandi fjár-
málavanda þjóðarinnar. Gat þess í lokin, að áframhald-
andi ráðaleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar myndi verða af-
farasælast í bili.
Annar liður. Fulltrúi Kassagerðarinnar í ríkisstjórn-
inni sagðist vilja gera grein fyrir þeirri skoðun sinni að
auka ætti ýmsar dáðir ríkisstjórnarinnar einkum í verð-
hækkunarmálum. Alla síðustu viku hefði engin verð-
hækkun átt sér stað.
Landbúnaðarráðherra framsóknar: Mér langar að
minna á landbúnaðarvörurnar.
Forsætisráðherra tók fram í og sagði málið út af dag-
skrá og gaf f jármálaráðherra orðið, um næsta dagskrárlið.
Ég vil að gengið verði fellt til að mæta aðsteðjandi
vanda segir ráðherrann og lítur hróðugur í kringum sig.
Dettur ykkur nokkuð snjallara í hug, ha.
Gott, gott, segir fundarstjóri.
Næsta mál.
Allir í kór. Varið land. Betur varið land. Lifi NATO.
Vill nokkur taka til máls um liðinn önnur mál.
Sjávarútvegsráðherra. Ja, þeir voru nú að skjóta á
Spáni. Kannski væri skemmtilegra að vera á móti, ha.
Forsætisráðherra. Já. Við skulum nota tækifærið og
vera á móti öllu ofbeldi í heiminum. Víetnam stríðið er
hvort sem er búið.
Nokkuð fleira, segir fundarstjórinn góði.
En hvað eigum við að segja í Tímanum, segir foringi
framsóknar blíðlega.
Segið bara að til greina komi að málin verði skoðuð.
Fundi slitið.“
Rétt er að taka enn fram að ekki er alveg öruggt að
orðrétt sé eftir haft í frásögn þessari. En ef einhver getur
haft það er sannara reynist er hann beðinn að láta AB-
blaðið vita. KIói.
FRÁ IÐNSKÓLAIVUM
Mánudaginn 29. sept. síðast-
liðinn gekk stjórn Sveinafé-
lags járniðnaðarmanna á Ak-
ureyri á fund skólastjóra Iðn-
skólans og skólanefndar. Auk
þeirra mættu á fundinum
kennari í járniðnaðargreinum,
skólastjóri Vélskólans og for'-
maður Félags málmiðnaðar-
fyrirtækja.
Við þetta tækifæri og í til-
efni þess að Iðnskólinn á Ak-
ureyri tekur nú til starfa í
sjötugasta sinn, afhenti Sveina
félag járniðnaðarmanna skól-
anum að gjöf verkfæri sem
ætluð eru til kennslu í járn-
iðnaði. Með því vill félagið
vekja athygli á þeirri skoðun
sinni, að brýn nauðsyn sé á að
verklegt nám iðnaðarmanna
fari fram á vegum skólans.
Eins og nú standa sakir vant-
ar skólann hús og flesta þá
hluti sem til þarf að svo megi
vera.
Hvetur því félagið forráða-
menn skólamála og almenning
allan, að ljá máli þessu lið,
bæði með orðum og gerðum.
Því þrátt fyrir það að hér sé
um nokkuð kostnaðarsama
framkvæmd að ræða má það
ekki standa jafn þýðingar-
miklu atriði fyrir þrifum.
Þjóðin þarfnast hæfra iðn-
aðarmanna og aukinnar verk-
menntunar sjálfri sér til hags-
bóta.
Skólinn þakkar gjöf þessa
og ekki síður þann hug allra
þeirra er fundinn sátu.
ÞORN OG ÞISTLAR
II
SKEMMTILEGT
BÆJARBLAÐ
Vikublaðið Dagur á Akureyri
gerir prentvillur og leiðrétt-
ingar í AB-blaðinu að umtals-
efni í fyrradag. Prentvillur og
leiðréttingar eru að vísu afar
leiðinlegt fyrirbæri og því vel
við hæfi að taka þau til með-
ferðar í Degi. Reyndar finnst
okkur á AB-blaðinu, að okkur
hafi ekki tekist ver í viður-
eigninni við prentvillupúkann
en þeim á Degi. í því sam-
bandi má nefna nokkur dæmi.
í næstsíðasta tölublaði Dags
birtist sú fregn, að Brunabóta-
félag íslands hefði látið 50.00
kr. af hendi rakna til neyðar-
bíls Akureyrardeildar Rauða
krossins, en þar átti að sjálf-
sögðu að standa kr. 50.000.00.
Var það leiðrétt í síðasta tölu-
blaði.
í Degi á miðvikudaginn var
kenndi svo margra ’ og
skemmtilegra grasa. Þar gat
að líta auglýsingu um „Her-
berbgi til leigu. . . . “ Ennfrem
ur eftirfarandi: „Til sölu ér
FITA 132 árg. 1974. Ekinn
16.000 km. Góðir greiðslu-
skilmálar o. s. frvs.“ Senni-
lega er það þó tilviljun, að
upplýsinga vegna þessarar
auglýsingar skuli vera að leita
hjá einum af starfsmönnum
Brunabótafélags íslands, en
ekki, að hér sé um að ræða
skipulegar ofsóknir á hendur
stofnuninni og starfsmönnum
hennar.
í dálknum „Tapað“ var svo
auglýst eftir stakk „úr brúnu
leðurlíki af 10 ára dreng“, ■—
og lái manni' hver sem vill
ýmsar hugrenningar í sam-
bandi við þetta smekklega
orðalag.
í Teppa-
cleild
teppabútar
mjög ódýrir
ensk teppi
nýkomin
Það er vart hægt að skilj-
\ i
ast svo við skemmtilegar aug-
lýsingar úr Degi, að ekki sé
minnst á auglýsingu um fund
hjá kunnu virðulegu kvenfé-
lagi hér í bæ, en hún endaði
á orðunum: „Hittumst heilar
— verðum hálfar.“
Þar var nefnilega auglýsing
aldarinnar á ferðinni og stór-
kostlegt vafamál, að Dagur
hafi nokkurn tíma á sinni lífs-
leið vakið viðlíka kátínu og
fögnuð og í það sinn. Enda var
það ekki út í loftið, sem Páll
Heiðar sagði í þætti sínum um
„Blöðin okkar“, að Dagur væri
skemmtilegasta Akureyrar-
blaðið, „á sinn hátt“.
Lífeyrissjóðnum
Sameiningu
Sjóðsfélagar, það er í nóvember n. k„ sem næst
verður úthlutað lánum. Þeir sjóðsfélagar, sem hug
hafa á lánum, þurfa að sækja um þau fyrir 31.
október n. k. og skila tilskyldum gögnum fyrir
sama tíma.
LÍFEYRISSJÓÐURINN SAMEINING.
• •
• •
LOGTOK
til tryggingar ógreiddum þinggjöldum og öðrum
gjöldum til ríkissjóðs hefjast án frekari fyrirvara
eftir 1. október n. k.
Er skorað á gjaldendur, er enn skulda þinggjöld
að greiða þau hið allra fyrsta og komast þannig
hjá greiðslu lögtakskostnaður og draga úr greiðslu
dráttarvaxta, sem eru 1V2% á mánuði.
BÆJARFÖGETINN A AKÚREYRI OG DALVlK,
SÝSLUMAÐURINN I EYJAFJARÐARSÝSLU,
25/9 1975. ÓFEIGUR EIRÍKSSON.
Ný
Bensínstöð
Nýr þjónustuáfangi á Akureyri
Viö höfum opnaö nýja og fullkomna bensínstöö og smávöruverslun viö Mýrarveg á
Akureyri. Þaö er von félagsins aö Akureyringar jafnt sem gestkomandi megi þar
njóta góórar fyrirgreiðslu og þjónustu og aö fyrirkomulag allt á stööinni eigi eftir aö
falla væntanlegum vióskiptavinum okkar vel i geó.
OlíufélagiÖ Skeljungur hf
Shell
lí - ALÞÝÐUBANDALAGSBLAÐIÐ