Morgunblaðið - 04.08.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.08.2021, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021 Þoka Svakalegur hiti var á landinu sunnanverðu í síðustu viku og skilaði það miklum þokubakka í Hafnarfirði um helgina. Hafði það þó lítil áhrif á duglega hlaupara. Árni Sæberg Borgarstjórnarkosn- ingar fara fram í maí á næsta ári eða eftir tíu mánuði. Það er ekki langur tími í pólitík. Núverandi meirihluti í borgarstjórn hefur á síðustu þremur árum ástundað slæma stjórn- sýslu, tekið afar lítið til- lit til margvíslegra al- varlegra athugasemda íbúa og algjörlega van- rækt nauðsynlegar framkvæmdir í samgöngumálum. Á sama tíma hefur stjórnsýsla borgarinnar þanist út, starfsfólki borgarinnar fjölgað gríð- arlega og fjárhagsstaða hennar versn- að ár frá ári. Meira en nóg er komið af stjórnarháttum og fjölmörgum mis- ráðnum aðgerðum núverandi meiri- hluta í Reykjavík. Mál er að linni. Tillitsleysi og yfirgangur gagnvart íbúum í fjölmörgum mikilvægum hagsmunamálum, sem varða íbúana miklu, er nánast meginregla hjá meirihlutanum. Óhætt er að fullyrða að í mörgum málum beiti meirihlutinn ofbeldi gagnvart íbúum og fyrir- tækjum, sbr. það sem átt hefur sér stað í skipulagsmálum víða í borginni og ekki síst gagnvart fjölmörgum eig- endum verslana við Laugaveginn. Kosningaloforð kynnt vel fyrir kjósendum Það er nokkuð augljóst að við val frambjóðenda á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins fyrir næstu borgar- stjórnarkosningar verði viðhaft próf- kjör, sem allir flokksbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík geta tek- ið þátt í. Í undanfara prófkjörs er nauðsynlegt að frambjóðendur upp- lýsi væntanlega þátttakendur í próf- kjöri um afstöðu sína til einstakra mikilvægra hagmunamála borg- arinnar, ekki síst málefna sem lögð verður sérstök áhersla á í komandi kosningum. Mikilvægt er að þau stefnumál sem frambjóðendur sam- einast um verði rækilega kynnt öllum þeim sem kosningarétt hafa í komandi borgarstjórnarkosningum. Öflugt kosningastarf grundvöllur árangurs Svör frambjóðenda verða að vera markviss og ákveðin þannig að þátt- takendur í prófkjöri hafi sem gleggst- ar upplýsingar um afstöðu þeirra sem vilja skipa framboðslista Sjálfstæð- isflokksins. Í framhaldi af prófkjöri og síðan samþykki framboðslist- ans er nauðsynlegt að frambjóðendur komi sér saman um skýr stefnu- mál sem lögð verður áhersla á í komandi borgarstjórnarkosn- ingum í maí 2022. Kosningaloforð sem byrja á „stefnt skal að“ o.s.frv. eru lítils virði, heldur verða kosninga- loforð frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins að vera með þeim hætti að kjósendur hafi skýran valkost í kosningunum. Öflugt og vel skipulagt kosningastarf og skýr kosningaloforð, sem frambjóðendur eru einhuga um að fylgja eftir, er al- gjör forsenda þess að Sjálfstæðis- flokkurinn styrkist og auki fylgi sitt. Óbreyttur meirihluti verður Reykvíkingum dýr Óbreyttur meirihluti í borgar- stjórn eftir næstu borgarstjórnar- kosningar verður Reykvíkingum dýr. Þá verður haldið áfram með fyrir- hugaða borgarlínu, sem mun kosta um 100 milljarða króna, en nauðsyn- legar samgöngubætur vítt og breitt um borgina látnar sitja á hakanum, líkt og verið hefur síðustu þrjú árin. Reyndar eru árin orðin sjö. Það verður áfram þrengt að starf- semi Reykjavíkurflugvallar, m.a. með stórfelldri íbúðabyggð þétt við flug- völlinn, og haldið áfram að koma í veg fyrir eða tefja afar nauðsynlegar samgöngubætur í borginni, t.d. fram- kvæmd mislægra gatnamóta á Reykjanesbraut/Bústaðavegi og byggingu Sundabrautar. Síðast en ekki síst stefnir í að unnin verði veru- leg skemmdarverk á Elliðaárdal við Stekkjarbakka, ekki síst með 4.500 fermetra byggingu Bio-Dome á því svæði, sem einstaklingur ætlar að byggja fyrir 4,5 milljarða króna. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » Tillitsleysi og yfir- gangur gagnvart íbúum í fjölmörgum mikilvægum málum, sem varða íbúana miklu, er nánast meginregla hjá meirihlutanum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Sóknarfæri Sjálfstæðisflokks- ins í ReykjavíkÓvenjuleg versl- unarmannahelgi er að baki og vonandi hafa flestir átt gott frí síð- ustu daga og vikur – náð að hlaða rafhlöð- urnar. Hvort sem kjósendum líkar betur eða verr er kosninga- baráttan fyrir þing- kosningarnar 25. september að hefjast. Líklegt er að fyrst í stað fari bar- áttan rólega af stað en síðan eykst þunginn eftir því sem nær dregur kjördegi. Á þeim 52 dögum sem eru til kosninga verða mörg loforð gefin – flest um aukin ríkisútgjöld venju samkvæmt. Þótt stjórnmálaflokkarnir eigi eftir að leggja flest spilin á borðið ættu kjósendur að geta gert sér þokkalega grein fyrir því við hverju má búast. Það liggur til dæmis fyrir að Samfylkingin og Pí- ratar lofa að eiga ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn. Draumurinn er ríkisstjórn á grunni svokallaðs Reykjavíkur- módels vinstriflokkanna sem Við- reisn gerði mögulegt að smíða eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Eftir síðustu þingkosningar komu forystumenn Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar saman til fundar til að kanna grundvöll að samstarfi flokkanna í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu, ef svo bæri undir. Formaður Samfylking- arinnar fullyrti í fjölmiðlum að á fundi þríflokksins væru „komin saman frjálslyndu öflin í íslenskum stjórnmálum“. Merkimiða-pólitík er þríflokknum eðlislæg. Ekki er við öðru að búast en að þríflokkurinn komi saman til fund- ar eftir komandi kosningar (og sjálfsagt fyrir kosningar einnig) til að leggja drög að ríkisstjórn vinstriflokkanna. Gangi draumur þríflokksins um ríkisstjórn eftir má ganga út frá því að skattar og álögur á launa- fólk og fyrirtæki hækki, ríkisút- gjöld og skuldir aukist, atvinnu- vegafjárfesting dragist saman og ríkisreksturinn verði óhagkvæmari og þjónustan verri. Þetta er ekki uppskrift að fjölbreyttara sam- félagi eða bættum lífskjörum. Virðing fyrir sjálfsaflafé Þegar kolefnisgjöld voru hækk- uð um 50% var það í huga frjáls- lyndra þingmanna Samfylking- arinnar eftirgjöf, þar sem þau hefðu ekki verið hækkuð um 100%. Ríkisstjórnin væri með því að af- sala sér tekjum með því að ýta á „einn takka“. Hið sama á við um fjár- magnstekjuskattinn, að ekki sé talað um loforðið um að leggja að nýju á eign- arskatta, sem leggjast einna þyngst á eldri borgara. Þeir sem kappsamastir eru að líma á sig merkimiða frjálslyndis líta á það sem „eftirgjöf tekna“ og „afsal“ ef sæmi- legrar hófsemdar er gætt í skatt- heimtu. Virðingin fyrir sjálfsaflafé og eignum einstaklinga þvælist ekki fyrir þeim sem líta á svo á að ríkið sé að veita „nettóeftirgjöf“ þegar einstaklingar „fá“ að halda einhverju eftir af því sem þeir afla og spara. Þetta er hugmyndafræðin sem hugsanleg ríkisstjórn vinstriflokk- anna mun byggja á. Og fyrir al- menning en ekki síst ungt fólk hlýtur það að vera áhyggjuefni. Ungt fólk getur valið sér búsetu að mestu óháð landamærum. Það er alþjóðlega menntað og margtyngt. Það er auðvitað gleðileg hve unga kynslóðin er alþjóðlega samkeppn- ishæf – hæfileika- og hug- myndarík. Það skiptir sköpum fyr- ir samkeppnishæfni okkar Íslendinga og lífskjör almennt að gera það eftirsóknarvert fyrir ungt fólk að setjast hér að. Þar skiptir skattbyrðin máli sem og hvernig opinber þjónusta á borð við heil- brigðisþjónustu og menntakerfið er. Ísland er og verður í sam- keppni við önnur lönd, ekki síst um ungt vel menntað fólk á öllum svið- um. Hugmyndafræði skattheimtu- flokkanna leiðir óhjákvæmilega til verri stöðu okkar í þeirri keppni. Fanga athygli fjölmiðla Ég hef í gegnum árin reynt að vekja athygli á því að fjárstjórn ríkisins snúist ekki síst um að nýta takmarkaða fjármuni með skyn- samlegum hætti. Forgangsröðun útgjalda, skipulag ríkisrekstrar og hvernig opinber þjónusta er skipu- lögð skiptir almenning æ meira máli. Hvernig sameiginlegir fjár- munir og eignir eru nýtt í þau verkefni sem við höfum falið ríkinu að annast og/eða fjármagna er mikilvægara fyrir almenning en að hámarka tekjur sem renna í gegn- um ríkiskassann. Eitt mesta hagsmunamál skatt- greiðenda á komandi árum er að innleiddir verði árangurs- mælikvarðar á öllum málasviðum ríkisútgjalda. Ríkissjóður – þing- menn og ráðherrar – á að gera skýrar og auknar kröfur til allrar opinberrar þjónustu – ekki síst á sviði menntunar og heilbrigðis- þjónustu. En það er borin von að þeir stjórnmálamenn sem eru sann- færðir um að flest vandamál verði leyst með auknum fjármunum hafi forystu um að auka kröfur til opin- berra aðila. Kannski vita þeir hinir sömu (a.m.k. einhverjir þeirra] – innst inni – að þeir eru að blekkja sjálfa sig og aðra. Loforð um aukin útgjöld í allt milli hins og jarðar eru auðveldari en fyrirheit um betri nýtingu fjármuna og miklu líklegri til að fanga athygli fjöl- miðla og öflugra þrýstihópa. Þann- ig þenst ríkið út og reksturinn verður óhagkvæmari og þjónustan verri. Endar með ósköpum Í kosningabaráttunni sem er fram undan verður ekki síður for- vitnilegt að fylgjast með umfjöllun fjölmiðla en stefnu og yfirlýsingum frambjóðenda. Fjölmiðlar eru gjarnir á að gefa stjórnmálamönn- um tækifæri til að gefa hástemmd loforð óháð því hvort fyrir þeim séu innistæður. Sé loforðið hærri útgjöld, hærri skattar og aukin umsvif ríkisins fær stjórnmála- maðurinn greiðan aðgang að fjöl- miðlum og getur þokkalega áhyggjulaus gefið út stórar yfirlýs- ingar án gagnrýnna spurninga. Þessu er öfugt farið hjá þeim sem berst fyrir lækkun skatta. Hann er krafinn svara við því hvernig hann ætli að „fjármagna“ lækkun skatta. Það virðist flestum fjölmiðl- ungum í blóð borið að tortryggja fremur þá sem telja skynsamlegt að gæta hófsemdar í álögum en þá sem líta á það sem „afsal“ ríkisins á tekjum að létta byrðar launa- fólks og fyrirtækja. Hættan er sú að þetta viðhorf verði ríkjandi á komandi árum eftir því sem fjöl- miðlar verða háðari ríkisvaldinu fjárhagslega. Þetta á einnig við um starfsemi stjórnmálaflokka – ríkisvæðing þeirra endar með ósköpum. En uppboðsmarkaður stjórnmálanna verður líklega líf- legri. Allt á kostnað skattgreið- enda. Eftir Óla Björn Kárason » Sé loforðið hærri út- gjöld, hærri skattar og aukin umsvif ríkisins fær stjórnmálamað- urinn greiðan aðgang að fjölmiðlum. Óli Björn Kárason´ Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Fyrsta, annað og þriðja !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.