Morgunblaðið - 04.08.2021, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Einhver mun koma þér svo á óvart
að þú verður að játa þá staðreynd að aldrei
skyldi dæma eftir útlitinu einu saman.
20. apríl - 20. maí +
Naut Einhverjir hnökrar koma upp í fjármál-
unum og það kostar þolinmæði og tíma að
greiða úr þeim.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Fátt er eins ömurlegt og að sitja
fastur í úreltum skoðunum. Taktu eftir því
sem þú gerir vel og gerðu það síðan eins
mikið og þú getur í dag.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Viðkvæm vandamál koma upp og
krefjast allrar þinnar athygli. Taktu þér tíma
til að sinna heilsurækt og íhugun.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Fólk býr til reglur af ýmsum ástæðum -
ekki endilega af þeim réttu eða ástæðum
sem þér finnst skiljanlegar. Taktu því engu
sem sjálfsögðum hlut heldur gaumgæfðu
málin frá öllum hliðum áður.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þér finnst sumar persónulegar skoð-
anir starfsfélaga þinna út í hött. Kynntu þér
mál áður en þú opnar munninn um menn og
málefni, ef þú vilt að einhver taki mark á þér.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Reyndu að umbera fólk þótt það geti
verið þreytandi á stundum. Hvíldu þig að-
eins á hinum stranga dómara innra með
þér.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þreifaðu fyrir þér um það í
hvernig jarðveg hugmyndir þínir falla áður
en þú ákveður að setja þær fram sem þína
stefnu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ert að eðlisfari forvitinn um
allt sem máli skiptir í lífinu. Treystu á sann-
leikann frekar en aðstæður.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú þarft að endurskipuleggja
starf þitt svo það gangi ekki jafnnærri heilsu
þinni og nú er. Með minniháttar breytingum
skapar þú þar fullkominn samhljóm.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er engin ástæða til að missa
móðinn þótt eitthvað blási á móti. Haltu
þínu striki, ekki af því að geri þig viðkunn-
anlegan, heldur vegna þess að lausn undan
egóinu er hið endanlega frelsi.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur haldið þig nógu lengi við
upphaflega áætlun þína. Hver er sinnar
gæfu smiður og því skalt þú grípa til þinna
ráða.
frá
eira.
sa
50 ÁRA Hildur fæddist 4. ágúst 1971 í Bolungarvík og ólst þar upp. „Ég fór í
Menntaskólann á Akureyri og útskrifast þaðan 1991. Í þá daga voru engin
göng og krakkar frá Bolungarvík voru á heimavist á Ísafirði, mér fannst þá al-
veg eins gott að fara eitthvað lengra fyrst ég þurfti hvort sem er að fara á
heimavist.“ Á fjórða ári í menntaskólanum kynntist Hildur tilvonandi eig-
inmanni, Svavari Þór, en þau eru búin að vera saman í yfir 30 ár. „Eftir stúd-
entinn fórum við til Frakklands í nokkra mánuði, en þegar við komum heim fór
ég í hjúkrun í Háskóla Íslands og útskrifast þaðan 1997.“ Þá var stefnan tekin á
heimahagana og þau fluttu til Ísafjarðar og hafa búið þar síðan fyrir utan tvö ár
sem þau bjuggu í Tours í Frakklandi og í Manchester á Englandi þegar Svavar
var í framhaldsnámi.Árið 2011 lauk Hildur meistaranámi í hjúkrunarstjórnun.
Í dag er hún framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Hún tók við því starfi í byrjun árs 2020 þegar Covid-bylgjan var í þann veginn
að hefjast. ,,Við fórum illa út úr fyrstu bylgjunni á hjúkrunarheimilinu Bergi í
Bolungarvík,“ segir hún og talar um að þetta hafi verið mikill skóli.
Hildur er mikil útivistarkona. „Ég elska fjöllin og nota þau mikið til útivistar
hvort sem er hlaupandi, gangandi eða skíðandi og eru Vestfirðirnir kjörnir fyr-
ir þessi áhugamál.“
FJÖLSKYLDAN Eiginmaður Hildar er Svavar þór Guðmundsson mennta-
skólakennari, f. 17. 5. 1971. Synir þeirra eru Tómas Helgi, f. 1994, sagnfræð-
ingur og háskólanemi, í sambúð með Nönnu Kristjánsdóttur, f. 1993; Pétur
Ernir, f. 2000, nemi í Listaháskóla Íslands og Guðmundur Arnar, f. 2002, stúd-
ent. Unnusta hans er Hafdís Bára Höskuldsdóttir, f. 2002.
Foreldrar Hildar eru hjónin Helga Sigrún Aspelund, f. 1942 og Pétur Guðni
Einarsson, f. 1937, d. 2000.
Hildur Elísabet Pétursdóttir
skóli og herti mann og var góður
skóli fyrir framtíðina.“
Þegar Gunnar var 26 ára gamall
fór hann í land og byrjaði að starfa
við fiskútflutning. „Ég þekkti af-
urðina vel og gat komið mér ansi
hratt inn í þennan heim.“ Gunnar
vann hjá Fisco í 2-3 ár, en eftir það
fór hann að vinna hjá sjálfum sér sem
sjálfstæður verktaki við fisksölu. Þá
var Gunnar búinn að kynnast eigin-
konu sinni, Guðrúnu Hildi, og þau
fóru saman til Spánar og bjuggu þar í
tvö ár. „Þarna var ég sjálfstæður í
fisksölu áður en ég stofnaði IceMar
og lærði spænskuna og ferðast þarna
vítt og breitt, um hvert einasta hérað
og kynntist fjölmörgum fiskkaup-
endum og lagði svona grunninn að
mínum Spánarmarkaði sem nýttist
mjög vel þegar við stofnuðum Ice-
G
unnar Örn Örlygsson
fæddist 4. ágúst 1971 í
Ytri-Njarðvík á Reykja-
nesi þar sem hann býr
enn. „Ég var alinn upp á
hefðbundnu alþýðuheimili og æskan
var lífleg enda vorum við á níu manna
heimili. Það var alltaf mikið gantast á
heimilinu þótt vinnan og verkin hafi
verið ærin fyrir foreldra mína sem
unnu myrkranna á milli svo við vor-
um snemma sett í að hjálpa til á
heimilinu og lærðum að taka til hend-
inni. Ég er alltaf óendanlega þakk-
látur foreldrum mínum fyrir að koma
okkur systkinunum til manns.“ Fjöl-
skyldan bjó í Grænásnum með amer-
íska herliðið í grenndinni. „Þrátt fyr-
ir mikla vinnu fórum við stundum í
ferðalög, en pabbi átti alltaf gamla
ameríska bíla. Þá var okkur öllum
hrúgað inn í bílinn og ekið af stað og
tjaldað, sem var alveg æðislegt. Svo
fór pabbi stundum í veiði með okkur
bræðurna og þar smitaðist ég af
veiðiáhuganum. Karlinn veiddi oft
ansi vel og á heimleiðinni var stoppað
á hótelunum til að selja aflann, svo
það dygði fyrir veiðileyfunum.“
Síðan er ekki hægt að tala um fjöl-
skyldu Gunnars án þess að minnast á
íþróttirnar, en flest systkinanna voru
í körfubolta og spiluðu með yngri
landsliðsflokkum Íslands og það var
mikill keppnisandi í systkinahópnum.
Gunnar var leikmaður Njarðvíkur og
varð bæði Íslandsmeistari og bikar-
meistari. „Margir okkar bræðra náðu
fínum árangri í körfuboltanum, Teit-
ur Örlygsson er þar nafntogaðastur,
enda með betri leikmönnum síðustu
aldar.“ Gunnar segist mest muna eft-
ir viðureignum við erkifjendurna úr
Keflavík, „en þegar við erum að spila
ásamt æskuvinum okkar er svokallað
gullaldartímabil í Njarðvík“.
Gunnari gekk alltaf vel í skóla og
vann m.a. til verðlauna í grunnskóla.
„Það voru svolítil vonbrigði fyrir for-
eldra mína að ég skyldi demba mér á
sjóinn, en ekki ganga mennta-
veginn.“ Gunnar var á sjónum í tíu ár
og útskrifaðist á þessum árum líka úr
Stýrimannaskólanum og segist hafa
haldið sínum réttindum við og rói
stundum út á trillu í frítímanum.
„Þessi sjómannstími var minn há-
Mar.“
Þegar heim var komið árið 2003
stofnaði Gunnar IceMar með bróður
sínum Sturlu, og Teitur bróðir þeirra
hefur einnig starfað hjá fyrirtækinu
frá upphafi. Stuttu síðar var hann
kosinn á þing fyrir Frjálslynda flokk-
inn en fór yfir til Sjálfstæðisflokksins
2005 og sat á þingi til 2007. „Sam-
starfið með Frjálslynda flokknum
gekk ekki nógu vel, þótt ég hugsi
ekki kalt til nokkurrar manneskju.
Þetta var dýrmæt reynsla, en ég
hætti alveg á þingi 36 ára, því þá var
ég búinn að vera með aðra hendina í
rekstrinum á IceMar og vildi einbeita
mér alveg að því.“
Þegar þingstörfunum sleppti fór
Gunnar af fullum krafti í fiskútflutn-
inginn og fyrirtækið óx hratt. „Það
þarf ákveðinn aga til að reka fyrir-
Gunnar Örn Örlygsson fiskútflytjandi og eigandi IceMar – 50 ára
Veiðimennskan Gunnar Örn með rígvænan urriða (sem var sleppt) á fallegu vorkvöldi við Þingvallarvatn 2018.
Fiskútflytjandinn úr Njarðvík
Helsinki 2017 Hjónin að fylgjast
með íslenska körfuknattleiksliðinu
keppa í úrslitum Evrópukeppninnar.
Til hamingju með daginn