Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.8. 2021 N öfn heimilisfólksins á heimili Ólafs Teits Guðnasonar í Vesturbænum eru grafin á litla álplötu við útidyrahurð- ina. Blaðamaður rýnir í nöfnin til að sjá hvort hann sé ekki örugglega á rétt- um stað. Platan er veðruð og máð en nöfnin þó enn nokkuð læsileg. Efsta nafnið af fjórum er fallegt og óvenjulegt: Engilbjört Auðunsdóttir. Hún býr því miður ekki lengur þarna því Eng- ilbjört lést í blóma lífsins hinn 11. apríl 2019, á 47. aldursári. Engilbjört var hámenntuð glæsi- leg kona, móðir, eiginkona, dóttir og vinkona. Hún er sögð hafa verið með einstaklega dill- andi hlátur. Þessar hugsanir fljúga í gegnum huga blaðamanns sem hringir loks bjöllunni. Dyr- nar opnast um leið og Ólafur býður glaðbeittur í bæinn. Hann er búinn að hita kaffi og við komum okkur þægilega fyrir í hlýlegri stof- unni. Ólafur talar af ró og yfirvegun en líf hans og drengjanna hans tveggja gjörbreyttist fyrir rúmum tveimur árum. Þrátt fyrir mikinn missi heldur lífið áfram og það hefur hjálpað Ólafi að skrifa minning- arbókina Meyjarmissi sem nú er komin út. Þar skrifar hann um veikindin sem enda því miður með skelfingu, sorgina, missinn og hugleið- ingar um lífið. Ólafur vill nú deila reynslu sinni og segir að mögulega gæti bók hans hjálpað öðrum sem standa í svipuðum sporum, en hún er ekki aðeins fyrir fólk sem hefur misst. Meyjarmissir er öllum holl lesning og hugleið- ingar Ólafs um sorgina eru athyglisverðar því eins og hann nefnir réttilega kemst ekkert okkar í gegnum lífið áfallalaust. Fallegust og björtust Ólafur er prestssonur úr Miðfirði sem flutti sextán ára gamall í höfuðborgina til að fara í Versló og síðar Háskóla Íslands þar sem hann lagði stund á stjórnmálafræði. Hann var blaða- maður í áratug og síðar upplýsingafulltrúi ál- versins í Straumsvík en er nú aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hann kynntist Engilbjörtu, sem einnig var á þeim tíma í stjórnmálafræði, þegar hann vant- aði góðar glósur. „Ég og vinur minn Gísli Marteinn vorum að fara að læra fyrir próf og vantaði glósur til að eiga séns á að ná prófinu. Gísli vissi um stelpu sem væri þekkt fyrir góðar glósur og við bönk- uðum upp á hjá henni,“ segir Ólafur. Ástin lét fljótlega á sér kræla því Ólafur gat ekki gleymt Engilbjörtu. Hann segir frá fyrstu kynnum þeirra í Meyjarmissi. Við tókum lyftuna upp á sjöttu hæð. Gísli bankaði og Engilbjört kom til dyra. Ég varð undireins heillaður af henni þar sem ég stóð í dyragættinni, þögull fylgihnöttur glósubeið- andans, og fylgdist með henni taka brosandi á móti okkur í gráa lærdóms-jogginggallanum sínum og taka til glósupakkann handa okkur félögunum. Hún var brosmild og með inni- legan, dillandi og smitandi hlátur. Hún var fal- legasta kona sem ég hafði séð og sú bjartasta. Hún stóð svo sannarlega undir nafni. Það leið ekki á löngu þar til þau voru orðin par. Fljótlega fóru þau að vinna sem flug- þjónar í pílagrímsflugi í Sádi-Arabíu fyrir Atl- anta. „Við unnum þar í tvö, þrjú ár með hléum og náðum að safna okkur fyrir íbúð. Hún hélt svo áfram í fluginu en eftir að hún kláraði meist- aranámið í viðskiptum fór hún að vinna við sitt fag, í endurskoðunar- og bókhaldsþjónustu. Hún var nýbúin að skipta um starf þegar hún veiktist og var nýbyrjuð að vinna á fjármála- sviði Völku,“ segir Ólafur. Þau hjón eignuðust tvo drengi, Guðna Þór 1999 og Kára Frey 2005, og lífið gekk sinn vanagang hjá Vesturbæjarfjölskyldunni. Veira leggst á hjartað Sjöundi mars 2019 er dagur sem líður Ólafi seint úr minni. Hann hafði unnið lengi fram eftir og sofnað á sófanum. Engilbjört vakti hann snemma morguns með þeim orðum að hann yrði að hringja á sjúkrabíl, hún væri lík- lega komin með það sama og síðast. Þar vísaði hún til veikinda tveimur árum áður en þá hafði hún fengið gollurshúsbólgu, bólgu í bandvef sem liggur utan um hjartað. Í það skiptið hafði hún lagst inn á spítala en náð sér á nokkrum vikum. „Hún vakti mig og var mjög illa haldin og máttfarin. Þetta lýsti sér eins og síðast; alls- herjar vanlíðan. Ég hringi á sjúkrabíl og við brunum á bráðamóttöku og þaðan fer hún inn á hjartadeildina. Ég varð ekki strax mjög óró- legur því síðast hafði hún jafnað sig á þessu. Hún var send í hjartaþræðingu og ég sá hana ekkert meir fyrr en mörgum klukkutímum seinna, en ég frétti síðar að líkaminn hefði far- ið í lost í þræðingunni og hún var því komin á gjörgæslu. Ég heimsótti hana á gjörgæsluna og henni leið enn verr en um morguninn. Ég þurfti síðan að sinna yngri syni okkar Kára og fór því heim og gaf honum kvöldmat, en eldri sonurinn Guðni var þá í Brussel í skóla- ferðalagi með Versló. Ég lét hann vita að mamma hans væri á spítala en myndi örugg- lega jafna sig eins og hún hafði gert áður,“ seg- ir Ólafur en hann skrifar síðar um þennan dag í bók sína. Þegar ég settist svo í bílinn fyrir utan spít- alann til að fara til Kára Freys brast ég í grát, svo illa leist mér á blikuna. Ég upplifði í fyrsta sinn að Engilbjört gæti verið í alvarlegri lífs- hættu. Eftir á að hyggja tók ég þarna út fyrstu sorgina yfir því að missa hana. Dauðinn gerði vart við sig í vitund minni og ég hugleiddi í fyrsta sinn að hún gæti dáið. Ólafur fór beint aftur upp á spítalann eftir kvöldmatinn með Kára. „Þarna um kvöldið var mér sagt að þetta væri að þróast í verri átt og hún þyrfti á að- gerð að halda sem myndi taka langan tíma,“ segir Ólafur, sem sendi strax leigubíl eftir Kára. „Ég varð töluvert hræddur fyrir þessa að- gerð. Mér var sagt að greinst hefði í henni inflúensuveira sem hafði lagst á hjartað og or- sakað hjartabólgu.“ „Ég hefði eiginlega viljað skrifað þetta endalaust. Það var erfitt að sleppa pennanum og segja að þessu væri lokið. Þá sá ég að það var sjálfsblekk- ing í byrjun að segja að ég væri ekki að þessu til að vinna úr sorginni. Ég var örugglega að því. Þetta gaf mér mjög mikið,“ segir Ólafur Teitur sem er nýbúinn að gefa út bókina Meyjarmissi. Morgunblaðið/Ásdís Sorgin er hin hliðin á ástinni Ólafur Teitur Guðnason missti konu sína Engilbjörtu fyrir rúmum tveimur árum. Þrátt fyrir að sorgin muni ávallt lifa með honum hefur hann ekki lagt árar í bát. Samkennd fólks og bókarskrif hafa hjálpað honum í gegnum erfiða tíma. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Seinni part dags erum við kölluð aftur inn á spítalann og sáum strax að við myndum ekki fá góðar fréttir. Við fengum þær fréttir að í ljós hefði komið mikil heilablæðing og skaðinn væri óbætanlegur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.