Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Blaðsíða 17
ar sjónvarpsávarp var boðað í byrjun vikunnar
gerðu flestir ráð fyrir að það hlyti að snúast um
þessa síðustu atburði. En þá kom forsetinn og las
upp ræðu um veirufaraldurinn! Blaðamenn hrópuðu
hver ofan í annan spurningar um Afganistan en Bi-
den hraðaði sér burt af sviðinu og virtust blaðamenn
þá loks sýna að þeim væri misboðið. Fram að þessu
hefur verið algjör samhljómur í þeim hópi sem hefur
slegið skjaldborg um Biden og enginn „fréttamaður“
þar frétt eitt né neitt um nýjustu ógöngur á þeim
bæ.
Spurningin er því sú, hvort nú verði snúið við
blaðinu eða hvort næsti þáttur kjallararevíunnar
verði settur upp í Delaware. Einn blaðamaður sagði
af þessu tilefni: Við getum vissulega haldið áfram að
horfa og hlusta á Biden á hinu stóra pólitíska sviði,
en lágmarkskrafa af okkar hálfu er að tjaldið verði
aldrei dregið frá, því þá kemst allt upp.
Alvarleg gagnrýni
Charles Moore, einn af þekktustu blaðamönnum
Bretlands og höfundur frægrar ævisögu frú Thatch-
er, skrifar grein um þessa nýjustu atburði, en hann
er gjörkunnugur sögu Afganistans allt til síðustu
áratuga. Hann vitnar til samtala sinna við breska
hermenn og hvernig þeir ásamt Bandaríkjamönnum
höndluðu mál þar. Hann segir að vissulega hafi við-
fangsefnin iðulega verið hryllileg við að eiga, en
staðreyndir málsins nú hafi ekki á neina lund rétt-
lætt hina stórundarlegu niðurstöðu Joes Bidens um
það, að flótti hafi verið einasti kosturinn sem hann
og Bandaríkin hafi átt og hann hafi bjargað sér á
flótta og skilið afganska bandamenn sína eftir á
auðri flugbrautinni og látið þá bíða þess þar að
ofstækismennirnir, sem hans eigin þjóð og banda-
menn hennar höfðu lagt að velli, myndu handsama
þá varnarlausa.
Þessi staða var hreinn tilbúningur og „Biden for-
seti var einn um að skapa þessa smánarlegu hrakför
Bandaríkjanna og bandamanna þeirra“.
Fráleitur samanburður
Biden hefur í vörn sinni fyrir vondan málstað líkt
veru Bandaríkjanna í Afganistan við Víetnamstíðið.
En eins og Moore bendir á, þá er þar fátt sambæri-
legt.
Bandaríkin hafa verið helmingi lengur í Afganist-
an en í Víetnam. Tæplega 60 þúsund hermenn féllu í
Víetnam í 10 ár en um 2.500 í Afganistan í 20 ár. Í
Víetnamtíð voru ungir menn skyldaðir til hernaðar
að viðlagðri refsingu. Í Afganistan er eingöngu um
að ræða atvinnuhermenn. Í hálft ár hafa örfáir menn
fallið í Afganistan. Aðeins lítið brot af þeim fjölda
sem fallið hefur úr hópi bandarískra lögreglumanna
í slag við glæpamenn og óeirðaseggi heima fyrir!
Upp á síðkastið hefur Bandaríkjaher og banda-
menn ekki sinnt hernaði í hefðbundnum skilningi.
Þeir voru að treysta grundvallarþátt verunnar þar,
öryggið í landinu.
Barack Obama forseti var gagnrýndur fyrir að
hafa lýst því yfir árið 2014 að Bandaríkin og banda-
menn hefðu unnið stríðið í Afganistan. En sú yfirlýs-
ing forsetans stóðst. Nú væri verkefnið, sagði for-
setinn, aðeins það að tryggja friðinn.
Moore segir að Biden forseti hafi einn og sjálfur
stofnað til allra þessara ófara með því að tilkynna
sína „brjálæðislegu ákvörðun“ um að Bandaríkin
yrðu farin frá Afganistan, hvað sem tautaði eða raul-
aði, hinn 11. september, á 20 ára afmæli árásanna á
tvíburaturnana í NY.
Sú sérkennilega sigurstund talíbana sem Biden
boðaði til er tapstund allra annarra.
Styrmir Gunnarsson
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins um
langa hríð, skrifaði á hefðbundnum tíma grein í
blaðið sem birtist í dag, laugardag, á sínum sérstaka
stað. Hann hafði fengið próförk senda, las hana yfir
á heimili sínu, undirritaði og sendi hana til baka til
birtingar.
Það varð hans síðasta verk.
Frétt um andlát hans er á forsíðu Morgunblaðsins
í dag. Síðar gefst samferðamönnum hans færi á að
minnast hans.
Hann var ötull og lifandi í starfi sínu, tryggur
þeim samferðamönnum sem hann bast böndum,
tryggur og trúr málstað sem hann taldi verðskulda
stuðning góðra manna, og vakandi yfir hagsmunum
þeirra sem of oft vildu gleymast.
Hann tók slag, stundum óvæntan slag, án umhugs-
unar um það, hvort þau afskipti kynnu að gera hon-
um sjálfum gott eða vont, í bráð eða lengd.
Þannig var hann.
Morgunblaðið/Baldur
22.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17