Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Page 18
ir Pam, en fjölskyldan er að fara í
sína fyrstu utanlandsferð eftir að
faraldurinn skall á.
„Við ætlum að vera hér í fimm
daga, fara gullna hringinn og
fleira,“ segir Cassey.
„Já, við ætlum í tvo þjóðgarða, í
þennan með ísjakana og svo í þenn-
an með sprunguna,“ segir afinn Jan
og blaðamaður skýtur inn í orðum
eins og Jökulsárlón og Þingvellir og
hitti þar naglann á höfuðið.
Frelsinu fegnir unglingar
Fjölskyldan er afar sátt við veðrið
en þennan dag er milt en skýjað.
„Við erum frá borg þar sem rign-
ir mikið þannig að við erum öllu vön
og ekkert stoppar okkur. Okkur
finnst veðrið frábært.“
Unglingarnir, fimmtán og sextán
ára, eru spenntir fyrir ferðinni. Þeir
eru frelsinu fegnir eftir langan kór-
ónuveiruvetur.
„Þetta hefur verið svakalega erf-
itt. Erfiðast var að geta ekki hangið
með vinum,“ segir Cypress.
„Það er frábært að fá að koma
hingað,“ segir Emma.
Þar sem þið hafið bara verið hér í
fimm tíma, get ég varla spurt
hvernig ykkur finnist Ísland, eða
hvað?
„Jú, þú getur alveg spurt! Við
elskum Ísland. Það er ekki annað
hægt,“ segir Pam.
Við erum að ferðast saman
fjölskyldan, þrjár kynslóðir.
Við erum frá Seattle í
Bandaríkjunum og höfum verið á
Íslandi núna í fimm tíma,“ segir
Cassey og skellihlær.
„Við hjónin erum hér reyndar í
annað sinn og nú vildum við koma
með dóttur okkar og barnabörn-
um,“ skýtur Pam inn í.
„Við vorum ekkert smeyk að
koma vegna Covid, við erum að
koma frá stað þar sem ástandið hef-
ur verið mjög slæmt um langa hríð.
Okkur líður eins og við séum mjög
örugg hér með allar reglurnar um
að fara í próf og sýna bólusetning-
arvottorð,“ segir Cassey.
„Svo er hér svo mikið hægt að
gera utandyra og mikið pláss,“ seg-
Veðrið er frábært!
BANDARÍKIN
Emma, Cypress, Cassey, Pam og Jan ætla að njóta lífsins á Íslandi.
Við elskum
Ísland!
Ferðamenn eru byrjaðir að streyma til landsins
þótt fjöldinn sé mun minni en fyrir kórónuveiru.
Blaðamaður hitti á Skólavörðuholti nokkra
hressa ferðamenn sem allir elskuðu Ísland.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.8. 2021
FERÐALÖG
„Hvernig veistu að ég er útlend-
ingur? Er ég svona týnd á svipinn?“
spyr Dina og hlær.
Hún er frá Seattle og kom í hóp
sem fer heim á morgun, en hún
hyggst ferðast meira um landið með
öldruðum foreldrum sínum.
„Við ætlum að leigja bíl og fara í
styttri ferðir út frá Reykjavík en ég
hef nú verið hér í um viku. Ég er bú-
in að fara Gullna hringinn, á Snæ-
fellsnes og eitthvað af suðurströnd-
inni. Við fórum líka að sjá Barnafoss.
Nú ætlum við að fara að skoða meira
sjálf á bílnum, bæði fossa og jökla,“
segir Dina sem er hér í fyrsta skipt-
ið.
„Ísland var aldrei á planinu hjá
mér. Svo var það ein vinkona mín
sem fór hingað og sagði mér frá
landinu. Svo poppaði upp þessi hóp-
ferð eldra fólks og foreldrar mínir
vildu fara þannig að við skelltum
okkur. Ég vissi í raun ekki mikið um
Ísland. Ég veit að þið viljið ferða-
menn, en ég vildi óska að þeir væru
færri!“
Færri? Þú hefðir átt að sjá
fjöldann hér fyrir Covid!
„Já, var það kannski verra? Ég er
þá bara heppin að vera hér núna. Ég
kem alveg pottþétt aftur. Það er svo
margt að sjá.“
BANDARÍKIN
Kem
pottþétt
aftur
Dina var með landakortið við hönd-
ina og myndavélina tilbúna.
Hópurinn stillti sér upp á Skólavörðuholtinu og er Susong hvítklædd fremst.
„Við erum hér í átta manna hóp og
allir eru hér í fyrsta sinn fyrir utan
mig, en ég er fararstjórinn og hef
komið einu sinni áður, í maí á þessu
ári,“ segir Susong og upplýsir blaða-
mann um að ferðalangarnir búi allir í
Bandaríkjunum en séu ættaðir frá
Suður-Kóreu.
„Við erum búin að vera í níu daga
hér og fórum allan hringinn. Í dag er
frjáls dagur og allir að labba í bæn-
um. Það var algjörlega frábært að
fara hringinn og mjög fallegt. Allir
voru í skýjunum og ég ætla sko að
koma aftur hingað með fleira fólk.
Íslendingum finnst kalt hér en það
er alls ekki kalt, það er frábært veð-
ur,“ segir Susong.
„Við höfum fengið marga sól-
ardaga en hér er auðvitað allra veðra
von en við erum við öllu búin, en það
hefur verið fallegt veður. Ég held að
suðurströndin sé uppáhaldssvæðið
mitt og Gullfoss rosalega fallegur,“
segir Susong.
„Við elskum allt hér, matinn og
menninguna,“ segir hún og segir
þorsk vera í sérstöku uppáhaldi þeg-
ar kemur að mat.
„Svo er plokkfiskurinn æði og
lambið svo ferskt. Allir voru svo
hissa að fá svona góðan mat.“
SUÐUR-KÓREA
Hissa að fá góðan mat
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
KYNNINGARAFSLÁTTUR
20%
SERTA OCEAN SPLENDID
SERTA ER OPINBER BIRGIR
Kynningarverð 519.920 kr.Verðdæmi: Serta Ocean Splendid
2 x 80 x 200 cm. Fullt verð: 649.900 kr.
Náttborð
ekki inni-
falið í verði
en selt sér.
Serta Ocean Splendid eru fáanleg í tveimur áklæðisgerðum gráu sléttflaueli og
gráu áklæði. Þau fást í fjórum stærðum; 160/180/200 x 200 cm og 180 x 210 cm
NÝTT
SERTA OCEAN SPLENDID