Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Síða 21
að sér kveða í Bandaríkjunum. Áhrif hans á byggingarlist okkar tíma eru ómetanleg og safnið í Berlín er gott dæmi um snilli hans. Því þarf engan að undra að það eru ekki aðeins sýningarnar í safn- inu, sem draga að, heldur einnig safnbyggingin sjálf, og raunar má segja að hæðin sem blasir við veg- farendum með öllum sínum gluggum sé ekki sérlega hentug til sýninga. Hefur verið sagt að fyrir sýning- arstjóra sé safnið eins og illkleifasta hlíðin á Eigertindi í Ölpunum. Arkitektinn David Chipperfield stýrði viðgerðunum á safninu. Hann sagði í viðtali við Deutsche Welle að Mies van der Rohe hefði verið upp- lagður til að reisa minnisvarða í húsagerðarlist í Berlín á eftirstríðs- árunum. „Hann var arkitekt sem var fær um að reisa útópíska byggingu í borg sem þurfti á útópískri hugsun að halda, á tíma þar sem hún var á ný að leita sér að framtíð,“ sagði Chipperfield og bætti við að þetta væri ein af hans mikilvægustu bygg- ingum, Mies van der Rohe hefði gætt hana miklum samhljómi. Verkið „Fimm sverð“ eftir banda- ríska myndhöggvarann Alexander Calder nýtur sín vel í safninu, sem Ludwig Mies van der Rohe teiknaði og reyndist hans síðasta verk. Safn- ið verður opnað á ný um helgina eftir sex ára endurbætur. AFP Safngestur skoðar verk Giorgios de Chiricos, „Frumspekingurinn mikli“. Fyrir miðju sést málverkið „Eiffel-turninn“ eftir Robert Delaunay og í forgrunni er styttan „Fugl í rými“ eftir rúmenska myndhöggvarann Constantin Brancusi. Tvö verk eftir þýska listamanninn Georg Grosz, „Máttarstólpar samfélagsins“ og „Grár dagur“, blasa við á vegg Neue National- galerie. Í forgrunni er „Höfuð hugsuðar (með hendi)“ eftir þýska myndhöggvarann Wilhelm Lehmbruck. Verkin eru á sýningunni List samfélagsins 1900 til 1945. Þar verða sýnd verk klassískra módern- ista úr eign safnsins. Sýningin stendur fram til júlí á næsta ári. AFP Listasafnið ber stíl Ludwigs Mies van der Rohe órækt vitni. Arkitektinn David Chipperfield stýrði viðgerðunum og endurbótunum á safninu, sem var reist á árunum 1965 til 1968, og segir það eitt af hans mikilvægustu verkum. 22.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.