Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.8. 2021
LESBÓK
Mikið úrval lita
bæði á áklæði
og grind.
Sérsmíðum
allt eftir
pöntunum.
Íslensk hönnun og
framleiðsla frá 1960E60
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Stóll E-60 orginal kr. 38.600
Retro borð 90 cm kr. 142.000
(eins og á mynd)
TEKJUR Lögsókn Scarlett Johansson á hendur Disney
fyrir ógoldin laun hafði áhrif á kjör nýs samnings Emmu
Stone fyrir framhald af kvikmyndinni Cruella sem kom út
fyrr í ár. Johansson kærði Disney þar sem laun hennar
fyrir myndina Black Widow voru bundin við miðasölu.
Myndin kom út á streymisveitu Disney á sama tíma og hún
kom í kvikmyndahús og því var miðasalan dræmari en ella.
Sömu sögu má segja um mynd Stone, Cruella, sem Disney
gaf út í lok maí. Samningur Stone var keimlíkur Johansson
og íhugaði hún um tíma að kæra Disney. Ef marka má
fréttir vestanhafs hafði það þau áhrif að Stone gat
samið um að tekjur hennar af væntanlegri framhalds-
mynd yltu bæði á miðasölu og áhorfi á streymis-
veitunni Disney+.
Fékk betri samning
Watson lék Grimmhildi
Grámann í Cruella. AFP
EFTIRSJÁ Fasteignaerfinginn Robert Durst segist
sjá eftir þátttöku sinni í heimildaþáttunum The
Jinx sem HBO framleiddi. Eftirsjáin þarf ekki að
koma á óvart enda var Durst handtekinn fyrir
morðið á vinkonu sinni, Susan Berman, sem lést ár-
ið 2000, vegna þáttanna. Þættirnir, sem komu út
árið 2015, fjölluðu um morðin á fyrstu eiginkonu
Durst, Kathleen McCormack, sem lést 1982, Berm-
an og Morris Black sem lést 2001. Degi áður en
lokaþátturinn var sýndur var Durst handtekinn en
í þættinum heyrist hann hvísla að sjálfum sér,
„hvað í fjandanum gerði ég, drap þau öll auðvitað“.
Réttarhöld fara nú fram yfir Durst vegna morðsins
á Berman en hann segir orð sín tekin úr samhengi.
Sér eftir að hafa játað morðin
Durst fyrir rétti í Kaliforníu á dögunum.
AFP
Craig þarf ekki að hafa áhyggjur.
Af nógu að taka
TEKJUR Gefið hefur verið út af
gárungum vestanhafs hve miklar
tekjur leikarar í Hollywood fá fyrir
vinnu sína og ljóst að ekki væsir um
þá launahæstu þar á bæ. Efstur á
lista er Daniel Craig sem fær 100
milljónir dollara, jafngildi tæplega
13 milljarða króna, fyrir að leika í
Knives Out 2 og 3. Næstur á eftir
kemur Dwayne Johnson með 50
milljónir dollara fyrir myndina Red
One. Will Smith og Denzel Wash-
ington hafa það líka gott, þéna 40
milljónir dollara hvor fyrir mynd-
irnar King Richard og The Little
Things. Efst á lista meðal kvenna er
Jennifer Lawrence sem fær 25
milljónir dollara fyrir myndina
Don’t Look Up.
E
f marka má áhorfendatölur
frá bæði Bandaríkjunum og
Evrópu var áhugi á
Ólympíuleikunum í Tókýó með
minnsta móti. Svo lítið var áhorfið
á leikana að meðaltali að það hef-
ur ekki verið minna í 33 ár í
Bandaríkjunum eða frá leikunum í
Seúl árið 1988. Áhorfið var 42%
minna en á leikana í Ríó 2016 og
meira en helmingi minna en á
leikana í London 2012.
Benda má á að mikill tímamun-
ur er á milli Japans og Bandaríkj-
anna og því viðbúið að færri stilltu
á leikana á ókristilegum tíma eða
horfðu á endursýningar á kvöldin.
Tímamunurinn var þó svipaður
þegar leikarnir fóru fram í Peking
árið 2008 en þá var áhorfið mikið,
raunar meira en á leikana fyrir
fimm árum.
Umræðan í aðdraganda leik-
anna nú var nokkuð neikvæð og
mikið rætt um að Japanir væru
margir, jafnvel flestir, mótfallnir
því að halda leikana enda hefur
baráttan við kórónuveiruna
reynst þjóðinni erfið á þessu ári.
Gæti það hafa haft einhver áhrif
á áhorfið enda var rætt og ritað
um slæm áhrif þess á íbúa gest-
gjafaborgarinnar að halda leik-
ana. Þá var alþjóðaólympíu-
nefndin sökuð um spillingu og
það að bera ekki hag íþrótta-
mannanna sem keppa á leikunum
fyrir brjósti.
Mestu áhrifin voru þó líklega af
kórónuveirunni og þann blett sem
hún setti á framkvæmd leikana.
Engir áhorfendur voru leyfðir á
leikunum og keppendur þurftu að
bera grímur öllum stundum nema
rétt á meðan þeir kepptu.
Mun minni áhugi
Þegar stærstu íþróttakeppnir
heims fóru af stað í fyrrasumar og
-haust voru bundnar vonir við að
aðdáendur sætu límdir við skjáinn.
Fólk hafði ekki fengið að sjá
íþróttakeppni í beinni útsendingu
síðan í mars það ár og héldu
margir að það myndi svala upp-
söfnuðum íþróttaþorsta sínum
með miklu áhorfi, enda fjöldi fólks
mikið heima við með lítið fyrir
stafni.
Það reyndist þó ekki raunin því
í Bandríkjunum minnkaði áhorf á
stórviðburði eins og lokaúrslit
NBA- og NHL-deildanna um 49
og 61% frá árinu á undan. Raunar
minnkaði áhorf á flesta stóra
íþróttaviðburði í Bandaríkjunum
haustið 2020 um að minnsta kosti
25%.
Ekki er ljóst af hverju áhorf á
íþróttaviðburði minnkaði með
þessum hætti eftir að þeir fóru af
stað eftir hléið. Ein ástæðan gæti
verið sú að of margir viðburðir
fóru fram á sama tíma. Vegna
frestana fór það svo að úrslit fóru
fram í deildum að hausti sem
vanalega fara fram að vori eða í
byrjun sumars. Mörgum við-
Yfir á sam-
félagsmiðla?
Íþróttir hafa átt undir högg að sækja síðan farald-
urinn hófst en mikilvægasta baráttan fer fram fyr-
ir framan skjáinn. Yngri kynslóðir eru ekki til-
búnar að eyða fleiri klukkustundum í áhorf.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Bandaríkjamenn eru duglegir að halda veislur í tengslum við íþróttaviðburði.
AFP