Morgunblaðið - 18.10.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.10.2021, Blaðsíða 27
_ Aron Pálmarsson átti stórleik í liði Aalborg þegar liðið vann Skjern með minnsta mun í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta á laugardag. Aron bar af og skoraði sjö mörk úr níu skottilraunum, auk þess sem hann lagði upp önnur tvö mörk fyrir liðsfélaga sína í 27:26- útisigri. Aalborg er í öðru sæti dönsku deildarinnar með tólf stig, tveimur stigum á eftir GOG. Viktor Gísli Hall- grímsson varði níu skot í marki GOG í 36:31-sigri á Ringsted á heimavelli. _ Ekki tókst að klára leik Bergischer og Wetzlar á heimavelli fyrrnefnda liðsins í efstu deild þýska handboltans á laugardagskvöld vegna veikinda stuðningsmanns í stúkunni. Í stöðunni 21:19 fyrir Wetzlar var leikurinn stöðv- aður vegna veikindanna en stuðnings- maðurinn var var færður á sjúkra- hús. Í kjölfarið var ákveðið að flauta leikinn af, en ekki er vitað um líðan stuðningsmanns- ins á þessari stundu. Arnór Þór Gunnarsson leikur með Bergischer og var kominn með eitt mark þegar leikurinn var flautaður af. _ Haraldur Franklín Magnús lauk leik á samtals þrettán höggum undir pari á Emporda Challenge mótinu í Girona á Spáni um helgina. Hann endaði í 10.- 13. sæti en mótið var hluti af Áskor- endamótaröð Evrópu, sem er sú næst- sterkasta í álfunni. Haraldur lék loka- hringinn í gær á 68 höggum eða á þremur höggum undir pari vallarins. Hringina fjóra lék hann á 68, 71, 64 og 68 höggum. Í gær fékk Haraldur þrjá fugla, einn örn, tvo skolla og tólf pör. Hann fékk tvo erni í mótinu. Guð- mundur Ágúst Kristjánsson tók einn- ig þátt í mótinu en komst ekki í gegn- um niðurskurðinn eftir að hafa leikið á 73 og 73 höggum á fyrstu tveimur hringjunum. _ Barcelona vann 3:1-sigur á Valencia í 1. deild Spánar í fótbolta á Nývangi í gækvöldi. José Gayá kom Valencia yfir strax á 5. mínútu en Ansi Fati jafnaði á 13. mínútu. Hollendingurinn Memphis Depay kom Barcelona yfir með marki úr víti á 41. mínútu og Philippe Cout- inho gulltryggði 3:1-sigur á 85. mínútu. Barcelona er í sjöunda sæti deildarinnar með 15 stig. _ Handknattleiks- maðurinn Teitur Örn Einarsson er á förum frá sænska félaginu Kristianstad en frá þessu er greint á heimasíðu þess. Teitur var ekki í leikmannahóp liðsins sem mætti Alingsås í gær. Í tilkynningu Kristians- tad kemur fram að Teitur hefur náð samkomulagi við annað félag. Sam- kvæmt sænska miðlinum Kristian- stadbladet er hægri skyttan á leið til þýska félagsins Flensburg. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 Olísdeild karla Fram – HK............................................ 27:25 Stjarnan – KA....................................... 30:27 Valur – ÍBV........................................... 27:21 Afturelding – Grótta ............................ 30:30 Staðan: Valur 4 4 0 0 111:86 8 ÍBV 4 3 0 1 112:110 6 Stjarnan 3 3 0 0 96:87 6 Fram 4 3 0 1 107:100 6 FH 5 3 0 2 133:124 6 Haukar 4 2 1 1 114:105 5 Afturelding 4 1 2 1 117:116 4 KA 4 2 0 2 106:108 4 Selfoss 4 1 0 3 96:109 2 Grótta 4 0 1 3 96:101 1 HK 4 0 0 4 100:116 0 Víkingur 4 0 0 4 88:114 0 Olísdeild kvenna Fram – HK............................................ 30:21 Afturelding – Stjarnan......................... 17:18 Staðan: Fram 3 2 1 0 86:75 5 Valur 2 2 0 0 54:37 4 KA/Þór 2 2 0 0 53:50 4 Haukar 2 1 1 0 53:47 3 ÍBV 2 1 0 1 59:46 2 Stjarnan 3 1 0 2 66:68 2 HK 3 0 0 3 53:74 0 Afturelding 3 0 0 3 57:84 0 Grill 66 deild kvenna HK U – Grótta ...................................... 24:27 Fram U – ÍBV U................................... 33:28 Þýskaland Stuttgart – Balingen ........................... 27:26 - Andri Már Rúnarsson skoraði ekki fyrir Stuttgart og Viggó Kristjánsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla. - Daníel Þór Ingason skoraði ekki fyrir Balingen og Oddur Gretarsson var ekki með vegna meiðsla. Magdeburg – Flensburg..................... 33:28 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 8 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 1. Lemgo – Kiel ........................................ 21:21 - Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir Lemgo. Sachsen Zwickau – Leverkusen........ 29:22 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Sachsen Zwickau. B-deild: Emsdetten – Gummersbach............... 22:23 - Anton Rúnarsson skoraði 1 mark fyrir Emsdetten. - Hákon Daði Styrmisson skoraði 7 mörk fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðars- son 1. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar lið- ið. Aue – Elbflorenz.................................. 26:26 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir Aue og Sveinbjörn Pétursson varði 1 skot í marki liðsins. Noregur Kolstad – Elverum............................... 28:29 - Orri Freyr Þorkelsson lék ekki með El- verum. Svíþjóð Ystad IF – Guif..................................... 35:25 - Daníel Freyr Ágústsson varði 15 skot í marki Guif. Aron Dagur Pálsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Skuru – Lugi ........................................ 38:33 - Ásdís Þóra Ágústsdóttir var ekki í leik- mannahópi Lugi. Evrópubikar karla 2. umferð, fyrri leikur: H71 Hoyvík – Drammen..................... 22:24 - Óskar Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Drammen. %$.62)0-# Subway-deild kvenna Haukar – Skallagrímur........................ 93:29 Staðan: Valur 3 3 0 259:209 6 Njarðvík 3 3 0 204:177 6 Haukar 3 2 1 221:158 4 Keflavík 3 2 1 232:213 4 Fjölnir 3 1 2 213:231 2 Grindavík 3 1 2 210:230 2 Breiðablik 3 0 3 210:231 0 Skallagrímur 3 0 3 165:265 0 Vís-bikar karla, 32-liða úrslit Ármann – Valur.................................... 69:95 Skallagrímur – Tindastóll.................. 61:112 Vís-bikar kvenna, 32-liða úrslit Vestri – Njarðvík.................................. 46:87 Valur – Keflavík.................................... 44:78 Spánn San Pablo Burgos – Valencia............. 65:69 - Martin Hermannsson skoraði 14 stig, gaf 3 stoðsendingar og tók 2 fráköst hjá Valencia á 28 mínútum. B-deild: Real Valladolid – Gipuzkoa................ 89:99 - Ægir Már Steinarsson skoraði 3 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á 28 mín- útum með Gupuzkoa. Belgía Leuven Bears – Antwerp Giants ....... 84:67 - Elvar Már Friðriksson skoraði 3 stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 3 fráköst á 24 mínútum hjá Antwerp. 4"5'*2)0-# EVRÓPUBIKARINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Haukar eru komnir áfram í 3. um- ferð Evrópubikars karla í handbolta eftir 62:39-samanlagðan sigur á kýp- verska liðinu Parnassos Strovolu. Báðir leikir einvígisins fóru fram ytra um helgina. Haukar unnu fyrri leikinn á laugardag, 25:14, og seinni leikinn í gær 37:25. Stefán Rafn Sig- urmannsson fór á kostum í gær og skoraði níu mörk. Á Selfossi tókst heimamönnum að ná í 31:31-jafntefli gegn Jerusalem Ormoz frá Slóveníu eftir að hafa ver- ið 28:31 undir þegar rúm mínúta var eftir í fyrri leik liðanna. Selfoss skor- aði þrjú síðustu mörkin með mögn- uðum endaspretti og juku mögu- leikana sína fyrir seinni leikinn til muna, en hann fer fram í Slóveníu næsta laugardag. Einar Sverrisson og Alexander Már Egan gerðu átta mörk hvor. Staðan hjá FH er töluvert verri eftir 29:37-skell gegn Minsk frá Hvíta-Rússlandi í Kaplakrika í fyrri leik einvígisins. Jákvæðu fréttirnar fyrir FH eru þær að Egill Magn- ússon skoraði tíu mörk, en hann hef- ur sjaldan spilað eins vel og í upphafi leiktíðar. Seinni leikurinn fer fram í Minsk næstkomandi laugardag. KA/Þór áfram en Valur úr leik KA/Þór tryggði sér sæti í 2. um- ferð Evrópubikarsins í kvennaflokki með því að sigra Istogu frá Kósóvó í seinni leik liðanna á laugardaginn var, 37:34. Staðan í hálfleik var 24:15, KA/Þór í vil og var sigurinn aldrei í hættu. Báðir leikir einvígisins fóru fram í Kósóvó og vann KA/Þór samanlagt 63:56 eftir fjögurra marka sigur í fyrri leiknum á föstudaginn var. Rakel Sara Elvarsdóttir var marka- hæst hjá KA/Þór í seinni leiknum með sjö mörk. Norðankonur eru að leika í Evrópukeppni í fyrsta skipti og er óhætt að Íslandsmeistararnir fara vel af stað. Valur er hins vegar úr leik eftir tvö töp fyrir Bekament frá Serbíu, en báðir leikirnir fóru fram ytra. Valur tapaði fyrri leiknum með minnsta mun á laugardag, 28:29, en munurinn var sex mörk í gær, 24:30. Samanlagðar lokatölur urðu því 59:52, serbneska liðinu í vil. Thea Imani Sturludóttir skoraði sjö mörk fyrir Val í gær. Haukar og KA/Þór áfram - Valur úr leik eftir töp í Serbíu - Jafnt hjá Selfossi en FH-ingar fengu skell Ljósmynd/Aleksandar Djorovic Serbía Thea Imani Sturludóttir og samherjar hennar hjá Val eru úr leik eftir tvö töp í Serbíu um helgina. Ljósmynd/Óttar Geirsson Átök Selfyssingurinn Einar Sverrisson í hörðum slag gegn Jeruzalem Ormoz er liðin mættust á Selfossi. Valur og Stjarnan eru með full hús stiga í Olísdeild karla í handbolta eftir sex marka sigra í gær. Valur hafði betur gegn ÍBV á heimavelli, 27:21, og Stjarnan vann KA á heima- velli, 30:24. Valur var með 15:7 for- skot í hálfleik gegn Eyjamönnum og sigldi sannfærandi sigri í höfn í seinni hálfleik. Tumi Steinn Rún- arsson skoraði átta mörk fyrir Val. KA var með 17:16-forskot í hálf- leik gegn Stjörnunni en Stjörnu- menn voru óstöðvandi í seinni hálf- leik og keyrðu yfir norðanmenn. Akureyringarnir Hafþór Már Vign- isson og Dagur Gautason gerðu sjö mörk hvor fyrir Stjörnuna. Þá fékk Grótta sitt fyrsta stig í 30:30- jafntefli á útivelli gegn Aftureld- ingu. Ólafur Brim Stefánsson skor- aði ellefu mörk fyrir Gróttu. Fram er í toppsæti Olísdeildar kvenna eftir sannfærandi 30:21- sigur á heimavelli gegn stigalausu liði HK. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði átta mörk fyrir Framkonur. Ljósmynd/Óttar Geirsson Ellefu Skyttan Ólafur Brim Stefánsson fór á kostum og skoraði ellefu mörk fyrir Gróttu gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum í gærkvöldi. Full hús hjá Val og Stjörnumönnum Forystusauðir ensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu unnu leiki sína í 8. umferðinni um helgina. Chelsea er áfram í toppsætinu, nú með 19 stig eftir að glæsimark varnarmannsins Ben Chilwell dugði til að merja 1:0-sigur á úti- velli gegn nýliðum Brentford. Liv- erpool er stigi á eftir í öðru sætinu en liðið frá Bítlaborginni vann 5:0- stórsigur á útivelli gegn Watford. Roberto Firmino skoraði þrennu og þeir Sadio Mané og Mohamed Salah bættu við mörkun en Egyptinn skoraði eitt laglegasta mark vet- ursins, lék á nokkra varnarmenn og skoraði svo með laglegu skoti. Þá unnu Englandsmeistarar Manchest- er City 2:0-heimasigur gegn Burn- ley þökk sé mörkum frá Bernardo Silva og Kevin De Bruyne og eru því í 3. sætinu með 17 stig. Jóhann Berg Guðmundsson kom inn sem varamaður í liði Burnley á 72. mín- útu. Manchester United heldur hins vegar áfram að heltast úr lestinni og tapaði illa gegn Leicester á King Power-vellinum, 4:2. Youri Tielem- ans, Caglar Soyuncu, Jamie Vardy og Patson Daka skoruðu þar mörk- in fyrir heimamenn en andsvör United komu frá Mason Greenwood og Marcus Rashford. Newcastle tapaði svo gegn Tott- enham í gær, 3:2, í fyrsta leik liðs- ins eftir að félagið varð það ríkasta í heimi í kjölfar þess að sádiarabíski krónprinsinn Mohammed bin Salm- an keypti það á dögunum. Callum Wilson kom Newcastle yfir áður en Tanguy Ndombélé, Harry Kane og Son Heung-Min skoruðu fyrir Tott- enham en Eric Dier gerði einnig sjálfsmark fyrir heimamenn. Efstu liðin unnu öll leiki sína um helgina AFP Óstöðvandi Mohamed Salah skor- aði stórglæsilegt mark um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.