Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
hugavert verður að fylgjast
með þeim viðtökum sem
ABYSS Togveiðibúnaður
ehf. mun fá hjá íslenskum
útgerðum enda ekki á hverjum
degi að nýr toghleraframleiðandi
birtist á íslenska markaðinum.
Pétur Jensen er maðurinn á bak
við ABYSS en hann er menntaður
vélvirki og á að baki þriggja ára-
tuga reynslu á sviði hönnunar og
smíði togveiðibúnaðar. Pétur réð
sig til J. Hinrikssonar ehf. árið
1991 og stýrði m.a. smiðju fyrir-
tækisins í Mexíkó í þrjú ár en
sneri þá aftur til Íslands til að
taka við stöðu verkstjóra, sam-
hliða því að hann fór að láta til sín
taka við hönnun og betrumbætur
á toghlerunum sem J. Hinriksson
framleiddi.
Eins og lesendur muna keypti
Hampiðjan rekstur J. Hinriks-
sonar árið 1999 og lagði í fram-
haldinu niður toghleraframleiðsl-
una á Íslandi, og féll það Pétri í
skaut að halda utan um fram-
leiðslu erlendis á Poly-Ice-
toghlerum. Upp úr 2013 færðist
hann til Thyboron í Danmörku
eftir að Thyboron keypti Poly-Ice
af Hampiðjunni og á hann m.a.
heiðurinn af hönnun margra
Thyboron-toghlera sem ættu að
vera íslenskum skipstjórum að
góðu kunnir.
Fyrir um það bil tveimur árum
ákvað Pétur að venda sínu kvæði í
kross og spreyta sig á eigin
rekstri. Til að gera langa sögu
stutta er búið að smíða fyrsta par-
ið af ABYSS-toghlerum, sem Pét-
ur hefur hannað frá grunni, og
hafa þeir reynst vel við veiðar.
„Eftir að hafa stofnað fyrirtækið
ræddi ég við Eirík Jónsson, skip-
stjóra hjá Brimi, og í framhaldi
við Birki Hrannar Hjálmarsson
útgerðarstjóra og varð úr að þeir
keyptu af mér fyrsta parið. Hafa
toghlerarnir verið í notkun í allt
sumar og gengið alveg ljómandi
vel,“ útskýrir Pétur. „Eins og í
öllum góðum sögum þá hljóp smá
snurða á þráðinn í fyrstu haust-
brælunni en með minniháttar
breytingum á stillingum tókst að
koma öllu aftur í gott horf. Fékk
ég að fara í einn túr með áhöfn-
inni til að geta fylgst betur með
og verð ég að segja að skipverjar
eru miklir kappar og gott fólk að
vinna með.“
Framleiðsla sem ætti að
geta komið aftur til Íslands
Erfiðlega gekk að finna aðila á Ís-
landi sem gat smíðað ABYSS-
toghlerana á samkeppnishæfu
verði og þykir Pétri það miður.
Varð úr að smíða fyrsta parið er-
lendis en segir Pétur að hann trúi
að á Íslandi sé hægt að framleiða
toghlera á samkepnishæfu fram-
leiðsluverði þar sem erlendir
framleiðendur séu oft á tíðum að
glíma við hærri launakostnað, að-
föng þeirra oft dýrari og orku-
kostnaður hærri en á Íslandi.
Pétri þætti gaman að sjá tog-
hleraframleiðslu færast aftur til
Íslands og var slíkur iðnaður
blómlegur fyrr á árum. „Síðasta
fyrirtækið sem sinnti hlerafram-
leiðslu að einhverju marki var
Hleragerðin og hefur öðrum fyr-
irtækjum gengið erfiðlega að fóta
sig á þessu sviði,“ segir Pétur og
bendir á að oft hafi fyrirtæki hætt
toghlerasmíði eftir yfirtöku stærra
fyrirtækis sem hafi metið það sem
svo að framleiðslan væri ekki
nægilega arðbær. „Öðrum fyrir-
tækjum hefur ekki tekist að ná
góðri fótfestu og hjálpar ekki til
að toghlerasmíði getur verið mjög
sveiflukennd og oft tvö til þrjú ár
á milli endurnýjana.“
Pétri þætti gaman að endur-
vekja íslenska toghleraiðnaðinn:
„Það sem þarf er ákveðinn stöð-
ugleiki, og að hafa nokkra fasta
kúnna og ætti þá að vera hægt að
framleiða íslenska toghlera á sam-
keppnishæfu verði – svo fremi að
aðkomu milliliða sé haldið í lág-
marki. Að hafa hönnun og fram-
leiðslu á Íslandi ætti líka að þýða
að kaupandi og seljandi geti átt í
mun nánara samstarfi og hægt að
koma hratt og vel til móts við alls
kyns óskir og hugmyndir um
breytingar, betrumbætur og sér-
þarfir viðskiptavina.“
Einfaldleikinn bestur
Meðal þess sem aðgreinir hlera
ABYSS frá vöru keppinautanna er
að með hönnun sinni er Pétur ekki
að eltast við neinar töfralausnir,
eins og hann orðar það. Er út-
gangspunkturinn í hönnuninni að
toghlerarnir séu áreiðanlegir og
einfaldir í notkun og þjónusta við
viðskiptavini sé góð. „ABYSS-
toghlerarnir eiga að þjóna hlut-
verki sínu vel, hafa góðan skver-
kraft, vera stöðugir og góðir í
notkun á allan hátt, með hæfilegt
viðnám og vel smíðaðir. Virðast
sumir framleiðendur hafa farið
ögn fram úr sjálfum sér í tog-
hlerahönnun sem t.d. leggur ofur-
áherslu á að lágmarka viðnám
með eldsneytissparnað í huga, en
hlerarnir síðan reynst vera erfiðir
í meðförum auk þess sem deila má
um hvort hönnunin hafi í raun
nokkur áhrif á eldsneytisnotkun
skipa við veiðar.“
„Útgangspunkturinn í hönnuninni að toghler-
arnir séu áreiðanlegir og einfaldir í notkun“
ABYSS-toghlerarnir
hafa reynst vel við
veiðar og þætti Pétri
Jensen gaman að
endurvekja íslenska
toghleraframleiðslu.
Morgunblaðið/Eggert
Morgunblaðið/Eggert
„Eins og í öllum góðum sögum þá hljóp smá
snurða á þráðinn í fyrstu haustbrælunni en
með minniháttar breytingum á stillingum tókst
að koma öllu aftur í gott horf,“ segir Pétur um
reynsluna af notkun toghleranna í sumar.
„Ræddi ég við Eirík
Jónsson, skipstjóra
hjá Brimi, og í framhaldi
við Birki Hrannar Hjálm-
arsson útgerðarstjóra
og varð úr að þeir keyptu
af mér fyrsta parið“
Smækkuð módel af
ABYSS-toghlerunum.
Verður gaman að sjá
hvort þau ná fótfestu.