Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 21
manns er ráðstefnunni skipt upp í tvennt milli salanna Gullteigs og Hvamms, en setning Lagarlífs verður sameiginleg. Mikilvægt fyrir nýsköpun Töluverður áhugi var á ráð- stefnuninni sem átti að fara fram í fyrra. Er áhuginn enn fyrir hendi? „Enn er töluverður áhugi en far- aldurinn hefur áhrif. Fólk er að skipuleggja sig með löngum fyrirvara og kórónuveirufaraldurinn er búinn að ganga mjög lengi og einhverjir koma ekki þrátt fyrir að hægt sé að halda ráðstefnuna. Það er kannski einhver töf á landamærum og svo hafa einhverjir talið fyrir löngu að ekki væri hægt að treysta því að þetta myndi verða haldið. En það eru töluvert góðar skrán- ingar og ég held að það muni koma okkur á óvart hvað verður góð mæt- ing. Enda er gríðarlega mikilvægt fyrir þessar atvinnugreinar – fiskeldi, þörungarækt eða skelrækt – að koma saman og deila þekkingu sinni og upplifun.“ Halldór segir grundvallaratriði í nýsköpunargeira eins og eldi og rækt að geta skipst á skoðunum og hug- myndum og ekki einungis eftir stífum fundarsköpum. „Það er líka einn mjög mikilvægur dagskrárliður sem heitir að hittast á barnum. Það er mikilvægur liður í öllum ráðstefnum og þar er hægt að ræða létt saman um erindi dagsins og við það verða oft margar hugmyndir til. Maður þekkir það bara eins og úr Sjávarklasanum að fólk hittist á kaffistofunni og ræðir hvað það er að gera og uppgötvar að það gæti átt samleið í einhverju verk- efni.“ Fer vaxandi Framtíðarmarkmiðin eru stór og nær ráðstefnan yfir fiskeldi í sjó og land- eldi auk skeljaræktar, nytja þörunga og ræktunar. „Okkar metnaður er að þessi ráðstefna verði þekkt og við- urkennd í þessum bransa. Hún er orð- in það að einhverju leyti en við viljum að allir í þessari atvinnugrein taki þessa daga frá á hverju ári, að þetta verði eitthvað sem enginn vill missa af, hvort sem menn eru í Noregi, Fær- eyjum eða annars staðar þar sem ver- ið er að vinna við þetta,“ útskýrir Hall- dór. Hann segir dagskrána fjölbreytta og að auðvelt ætti að vera að finna eitt- hvað við allra hæfi. Það verður meðal annars rætt um menntun, öryggismál, framtíð þörungaræktar, áhrif eldis á byggðaþróun og margt fleira. Fisk- eldismálin eru áberandi í dagskránni að þessu sinni og er eðlileg skýring á því, enda fiskeldi fyrirferðarmest í hagkerfinu af eldis- og ræktunar- greinunum. Ráðstefnunni hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár og reiknar Halldór með því að vöxturinn haldi áfram á komandi árum þar sem hlut- höfum í Strandbúnaði ehf. fari fjölg- andi. „Við gerum ráð fyrir að þetta fé- lag okkar eflist verulega á næstu árum.“ Tækifærin mörg Margt bendir til að ráðstefna af þess- um toga muni sanna gildi sitt þegar fram líða stundir og má meðal annars lesa í skýrslu um stöðu og horfur í sjávarútvegi og fiskeldi, sem unnin var að beiðni sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, að trúlega verði sjókvíaeldi og skyld starfsemi ein af veigamestu atvinnugreinum á Vest- fjörðum og Austfjörðum. Jafnframt er búist við að landeldi hafi „alla burði til að verða enn mikilvægari atvinnugrein á Reykjanesi og í Ölf- usi og víða á Norðurlandi“. Töluvert af rannsóknum hefur verið framkvæmt í sambandi við verðmætasköpun og ræktun stór- þörunga og er talið að fjölmörg tæki- færi séu ónýtt í þeim efnum. „Tölu- vert er af viltu þangi og þara á Íslandi sem hægt er að nýta. Enn eru mýmörg tækifæri til staðar til að auka verðmæti og vöruúrval afurða og tæknilausna á þessu sviði,“ segir í skýrslunni. Ráðstefnan hefur verið fjölsótt enda atvinnugreinin í miklum vexti og er talið nauðsynlegt fyrir nýsköpun að geta skipst á þekkingu, reynslu og hugmyndum. LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 21 RARIK ohf | www.rarik.is Getur þú hugsað þér daglegt líf án rafmagns? Í tæknivæddu samfélagi nútímans er erfitt að hugsa sér daglegt líf án rafmagns. RARIK hefur um áratuga skeið átt mikið og gott samstarf við fyrirtæki tengd sjávarútvegi á Íslandi en fyrirtækið rekur umfangsmesta rafdreifikerfið í landinu sem þjónar viðskiptavinum bæði til sjávar og sveita.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.