Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 21
manns er ráðstefnunni skipt upp í
tvennt milli salanna Gullteigs og
Hvamms, en setning Lagarlífs verður
sameiginleg.
Mikilvægt fyrir nýsköpun
Töluverður áhugi var á ráð-
stefnuninni sem átti að fara fram í
fyrra. Er áhuginn enn fyrir hendi?
„Enn er töluverður áhugi en far-
aldurinn hefur áhrif. Fólk er að
skipuleggja sig með löngum fyrirvara
og kórónuveirufaraldurinn er búinn
að ganga mjög lengi og einhverjir
koma ekki þrátt fyrir að hægt sé að
halda ráðstefnuna. Það er kannski
einhver töf á landamærum og svo
hafa einhverjir talið fyrir löngu að
ekki væri hægt að treysta því að
þetta myndi verða haldið.
En það eru töluvert góðar skrán-
ingar og ég held að það muni koma
okkur á óvart hvað verður góð mæt-
ing. Enda er gríðarlega mikilvægt
fyrir þessar atvinnugreinar – fiskeldi,
þörungarækt eða skelrækt – að koma
saman og deila þekkingu sinni og
upplifun.“
Halldór segir grundvallaratriði í
nýsköpunargeira eins og eldi og rækt
að geta skipst á skoðunum og hug-
myndum og ekki einungis eftir stífum
fundarsköpum. „Það er líka einn
mjög mikilvægur dagskrárliður sem
heitir að hittast á barnum. Það er
mikilvægur liður í öllum ráðstefnum
og þar er hægt að ræða létt saman
um erindi dagsins og við það verða oft
margar hugmyndir til. Maður þekkir
það bara eins og úr Sjávarklasanum
að fólk hittist á kaffistofunni og ræðir
hvað það er að gera og uppgötvar að
það gæti átt samleið í einhverju verk-
efni.“
Fer vaxandi
Framtíðarmarkmiðin eru stór og nær
ráðstefnan yfir fiskeldi í sjó og land-
eldi auk skeljaræktar, nytja þörunga
og ræktunar. „Okkar metnaður er að
þessi ráðstefna verði þekkt og við-
urkennd í þessum bransa. Hún er orð-
in það að einhverju leyti en við viljum
að allir í þessari atvinnugrein taki
þessa daga frá á hverju ári, að þetta
verði eitthvað sem enginn vill missa af,
hvort sem menn eru í Noregi, Fær-
eyjum eða annars staðar þar sem ver-
ið er að vinna við þetta,“ útskýrir Hall-
dór. Hann segir dagskrána fjölbreytta
og að auðvelt ætti að vera að finna eitt-
hvað við allra hæfi. Það verður meðal
annars rætt um menntun, öryggismál,
framtíð þörungaræktar, áhrif eldis á
byggðaþróun og margt fleira. Fisk-
eldismálin eru áberandi í dagskránni
að þessu sinni og er eðlileg skýring á
því, enda fiskeldi fyrirferðarmest í
hagkerfinu af eldis- og ræktunar-
greinunum.
Ráðstefnunni hefur vaxið fiskur
um hrygg undanfarin ár og reiknar
Halldór með því að vöxturinn haldi
áfram á komandi árum þar sem hlut-
höfum í Strandbúnaði ehf. fari fjölg-
andi. „Við gerum ráð fyrir að þetta fé-
lag okkar eflist verulega á næstu
árum.“
Tækifærin mörg
Margt bendir til að ráðstefna af þess-
um toga muni sanna gildi sitt þegar
fram líða stundir og má meðal annars
lesa í skýrslu um stöðu og horfur í
sjávarútvegi og fiskeldi, sem unnin
var að beiðni sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, að trúlega verði
sjókvíaeldi og skyld starfsemi ein af
veigamestu atvinnugreinum á Vest-
fjörðum og Austfjörðum. Jafnframt
er búist við að landeldi hafi „alla
burði til að verða enn mikilvægari
atvinnugrein á Reykjanesi og í Ölf-
usi og víða á Norðurlandi“.
Töluvert af rannsóknum hefur
verið framkvæmt í sambandi við
verðmætasköpun og ræktun stór-
þörunga og er talið að fjölmörg tæki-
færi séu ónýtt í þeim efnum. „Tölu-
vert er af viltu þangi og þara á
Íslandi sem hægt er að nýta. Enn
eru mýmörg tækifæri til staðar til að
auka verðmæti og vöruúrval afurða
og tæknilausna á þessu sviði,“ segir í
skýrslunni.
Ráðstefnan hefur verið fjölsótt enda
atvinnugreinin í miklum vexti og er talið
nauðsynlegt fyrir nýsköpun að geta skipst
á þekkingu, reynslu og hugmyndum.
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 21
RARIK ohf | www.rarik.is
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
Í tæknivæddu samfélagi nútímans er erfitt að hugsa sér daglegt líf án rafmagns.
RARIK hefur um áratuga skeið átt mikið og gott samstarf við fyrirtæki tengd
sjávarútvegi á Íslandi en fyrirtækið rekur umfangsmesta rafdreifikerfið í landinu
sem þjónar viðskiptavinum bæði til sjávar og sveita.