Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 12
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ að vakti athygli víða er fréttir bárust af því að eitt stærsta útgerðarfélag Rúss- lands, Norebo Group, hefði ákveðið að láta smíða sex togara eftir hönnun Nautic. Skipin eru öll með auðþekkjanlegt end- uro-bow-perustefni og eru 81 metra löng og 16 metra breið. Óhætt er að segja að Norebo hafi verið sátt með skipin og ákvað rússneska út- gerðin að láta smíða fjögur svipuð skip til við- bótar. Smíði tíunda Norebo-togarans hófst á síðari helmingi þessa árs í Norðlægu skipa- smíðastöðinni (r. Severnaya Verf) í Sankti Pét- ursborg í Rússlandi. „Það vildi þannig til að við gerðum tillögu að togara fyrir Norebo, sem er stærsta útgerð- arfyrirtækið í Rússlandi með aflaheimildir sem nema íslensku aflaheimildunum. Þetta er sería upp á tíu togara og sex af þeim verða í rekstri í Múrmansk en fjórir verða gerðir út frá Petro- pavlovsk á Kamsjatska-skaga,“ svarar Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Nautic, spurður um verkefnið. „Munur er á milli þessara skipa en það sem er kannski mikilvægt fyrir okkur er að þegar við fengum þennan samning vildum við ekki gera eins og samkeppnisaðilar okkar í Noregi; hanna út frá sínum forsendum og kveðja svo, heldur ákváðum við að byggja upp fyrirtæki í Rússlandi og flytja inn okkar þekkingu og reynslu. Við stofnuðum Nautic RUS sem er handhafi þessara samninga, í gegnum það gerðum við samninga bæði við skipasmíðastöð- ina og eiganda togaranna,“ útskýrir hann. Tekjur sem Nautic fékk vegna smíði togar- anna voru nýttar til að byggja upp reksturinn í Rússlandi, að sögn Alfreðs, og starfa hjá Nau- tic RUS nú 57 rússneskir verkfræðingar. „Ég hef þurft að vera svo mikið þarna að ég þurfti að sækja um atvinnuleyfi og er ráðinn þangað sem sérfræðingur,“ segir Alfreð sem er eini er- lendi starfsmaður rússneska fyrirtækisins. Eina fyrirtækið Hann kveðst ekki geta upplýst hvert verðmæti samninganna sé en einstaklingar sem þekkja til skipahönnunar telja að Nautic kunni að hafa fengið um 10 milljónir evra í sinn hlut, jafnvirði 1,5 milljarða íslenskra króna, fyrir þessa tíu togara. Rússnesk stjórnvöld hafa lagt mikla áherslu á að fiskiskipafloti landsins verði nútímavædd- ur ásamt greininni í heild. Til að stuðla að þessu hefur verið reynt að skapa hagstætt um- hverfi fyrir útgerðarfyrirtæki að fara í nýsmíði og hefur fjöldi skipa verið smíðaður. Hafa önnur vestræn fyrirtæki komið sér fyr- ir í Rússlandi með sama hætti og Nautic? „Nei. Við erum þeir einu sem höfum ákveðið að fara af fullum krafti inn á Rússlandsmarkað og gera þetta í rússnesku fyrirtæki og hampa þessu sem rússnesku fyrirtæki,“ svarar Alfreð sem viðurkennir að það hafi þurft kjark til að stíga skrefið til fulls. „Þetta er svolítið ævintýri að hafa stokkið sextugur með báða fætur inn í Rússland og setja alla afkomu af þessu verk- efni inn í uppbyggingu þar. Margir hefðu ef- Nautic með augastað á tækifærunum í Rússlandi Skipahönnunarfyrirtækið Nau- tic hefur gert víðtæka samninga í Rússlandi og er eina vestræna hönnunarfyrirtækið sem hefur ákveðið að koma þar upp dótt- urfélagi. Í kjölfarið hefur rekst- urinn þróast og býður fyrir- tækið nú heildstæðar lausnir með hönnun sem nær yfir allt frá skrokki yfir í minnstu atriði svo sem innréttingar og litaval. Frystitogarinn Kapitan Sokolov í smíðum í skipasmíðastöðinni í Sankti Pétursborg. Enduro-bow-perustefnið hefur vakið mikla athygli. „Þetta er svolítið ævintýri að hafa stokkið sextugur með báða fætur inn í Rússland og setja alla afkomu af þessu verkefni inn í uppbyggingu þar.“ 12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.