Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Blaðsíða 12
Á Sauðárkróki býr Sigurfinnur Jónsson, kominn á tíræðisaldur en vel ern. Finni, eins og hann er ávallt kallaður, hefur marga fjöruna sopið á langri ævi og margsinnis sloppið með skrekkinn. Reyndar segist Finni aldrei finna til hræðslu, en við komum að því síðar. Hann býður mér til sætis í uppáhaldsherbergi sínu sem hann kallar veiðiherbergið. Þar inni má finna ótal gripi, tæki og tól tengd veiðimennsku. Bækurnar í hillunum eru margar um rjúpur eða ævin- týramennsku og háskafarir. Í horninu er rammlæstur byssuskápur, á vegg hangir læstur skápur fullur af skotum og tveir haus- ar af villisvínum hanga brosandi yfir blaða- manni þar sem hann sýpur á kaffi úr postu- línsbolla. Finni sest í sófann á móti mér og setur sig í sögumannsstellingar. Hann strýkur á sér gervihandlegginn og byrjar á að tala um helsta áhugamálið, rjúpnaveiðar. Það verður blaða- manni fljótt ljóst að hér fer líklega einn mesti skotveiðimaður Íslands, en Finni hefur gengið á rjúpu í 75 ár. „Ég á kannski heimsmetið, en ég byrjaði um þrettán ára gamall,“ segir Finni sem er í dag 91 árs. Við ræðum fleira en ástríðu hans fyrir skot- veiði, því Finni hefur lent í lífsháska oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Svo oft hefur hann komist í hann krappan að skrifuð var um hann bók árið 1999, rituð af sveitunga hans, Árna Gunnarssyni. Bókin nefnist Háspenna- lífshætta. Hugsaði bara um að lifa af Finni er ættaður af Reykjaströndinni en hefur lengst af búið á Sauðárkróki. Hann stundaði sveitastörf sem barn og unglingur og fór svo á sjó sautján ára gamall. Eftir áralanga sjó- mennsku réð hann sig til Rarik og vann þar sem línumaður, við vélgæslu og á skrifstofu í rúma hálfa öld. Eitt starfa hans var að leggja háspennulínur víða um land. Hinn 30. maí árið 1973 þegar Finni var 43 ára lenti hann í hræðilegu slysi við vinnu sína. „Ég meiddi mig þar ansi illa. Ég lenti í há- spennustraumi og það brann af mér höndin og fóturinn fór líka illa. Ég var að laga línuna þarna á einum stað og fékk ekki að taka strauminn af, sem var tómt rugl. Ég var í belti en datt úr staurnum og hékk þar, snerist og missti annan skóinn og greip þá með vinstri hendinni í vírinn.“ Ellefu þúsund volta háspennustraumur fór í gegnum líkama hans og er kraftaverk að Finni lifði það af. Það hlýtur að hafa verið ansi vont! „Já, ég held að þetta sé versti bruni sem hægt er að lenda í, hann fer alveg í gegnum mann. Ég brann líka á hælunum.“ Hvað hugsaðir þú þegar þetta gerðist? „Ég hugsaði bara um að lifa af. Fingurnir voru eins og klær, það var allt hold farið af þeim. Fótleggurinn brann inn í bein; það skein bara inn í beinið og ég missti fjórtán senti- metra bút af lærinu. Ég komst svo niður með hjálp Sigurðar A. Ólasonar, vinnufélaga míns,“ segir Finni og segist hafa verið fluttur á spít- alann á Sauðárkróki. Ekki meiri kvalir í helvíti „Svo var ég látinn bíða þar eftir áætlunarvél í fimm tíma.“ Varstu ekki að drepast úr verkjum? „Ég drapst ekki. En fólk hefur kannski haldið að ég myndi drepast, því ekki var boðið upp á sjúkravél suður sem er mjög sérstakt. Ég var óhemjukvalinn. Það eru ekki meiri kvalir í helvíti, það getur ekki verið. Ég hafði fengið smá morfín á Sauðárkróki en þegar ég kom á Landspítalann sagði læknirinn Árni Björnsson að ég mætti ekki fá morfín. Hann sagði að það myndi drepa mig og sagði að ég hefði ekki mátt fá neitt morfín áður en ég fór í flugið. Svo gat hann ekki tekið handlegginn fyrr en viku seinna því hann treysti mér ekki í aðgerð. Handleggurinn var svo tekinn af og húð grædd á lærið á mér,“ segir Finni og segir áfallið hafa að vonum verið mikið. „Ég held að það sé ekki hægt að fá meira áfall. Ég efast um það, nema að missa barnið sitt, segir Finni,“ en dóttir hans Elsa lést fyrir tæpu ári, langt fyrir aldur fram. Rjúpan bjargaði mér Sigurfinnur Jónsson, fyrrverandi línumaður og rjúpnaskytta, hefur komist í hann krappan oftar en einu sinni. Hann lenti í skelfilegu slysi þegar hann var um fertugt þegar hann fékk í sig háspennustraum og missti við það handlegg og skaddaðist á fæti. Hann lét það ekki stöðva sig en Finni hefur veitt rjúpur í 75 ár og segir hann rjúpuna vera sinn bjargvætt. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Finni stendur í dyragættinni á veiðiherberg- inu sínu, en þar inni má sjá ýmsa muni tengda hans helsta áhugamáli, skotveiði. Hann er líklega mesta rjúpnaskytta landsins en Finni gekk til rjúpna í 75 ár í 1.330 ferðum. Það jafngildir tæpum fjórum heilum árum sem Finni hefur eytt á fjöllum með byssu í hendi. Morgunblaðið/Ásdís Finni var strax heltekinn af rjúpnaveiði sem ung- ur maður, en hann byrjaði að skjóta rjúpu þrett- án ára. Lífið snerist um ástríðuna, rjúpnaveiði. Finni sést hér með fálkaunga á uppleið í Drangey, en unganum var svo skilað. Þar fékk hann eitt sinn stein í höfuðið, en hjálmurinn varði hann. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.