Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Side 17
sem vangeta þeirra og delluhugmyndir tryggja. Fjáraustur ríkisins í þetta tískumál hér hefur ekk- ert með framþróun þess á heimsvísu að gera og segir sig sjálft. Allur heimurinn yrði að vera með, og það jafnvel þótt kenningarnar um manngert veður, sem eru að vonum umdeildar, reyndust að einhverju leyti réttar. Kína hefur haft góð orð um að skoða aðkomu sína að hinu mikla „átaki“ um og upp úr árinu 2035 og veit enginn hvað úr slíku tali verður. Væri ekki ráð að verða samferða Kína? Rússland Pútíns lætur ekki teyma sig í þessa vit- leysu. Gæti ekki verið gott að koma í kjölfarið á hon- um. Viðurkennt er að Afríka og Suður-Ameríka hafa enga fjárhagslega stöðu til að blanda sér í mál af þessu tagi. Þeir sem horfðu nýlega á hörmulegar fréttamyndir af líkbrennslum á opnum völlum af alls konar tagi, í öðru fjölmennasta ríki veraldar, eru varla að ímynda sér að Indland muni á næstunni blanda sér í þennan kostnaðarsama samkvæmisleik góða fólksins. Gæti ekki verið rétt að vera ekki að troða sér fram fyrir Indland, Afríku og Suður-Ameríku? En koma svo. Og þá eru ekki margir eftir í „heimsátakinu“ en auðvitað munar rosalega um Ísland, hvað sem spúandi eld- fjöllum þeirra líður, þótt Kína, Rússland, Indland, Afríka og Suður-Ameríka og annað smælki sé ekki með. Miklu meira en nóg til Það þótti mikil ósvífni þegar „launþegahreyfingin“, með skylduaðild fólks úr öllum flokkum, tók að verja miklu fé, fengið með afli frá „bláskínandi fátækum launþegum“, í áróður sem félli að hugmyndum fram- bjóðenda með sömu pólitísku sýn og forsprakkarnir sem eyddu fjármunum launþeganna. Afsökun verka- lýðsforkólfanna fyrir þessari pólitísku sjálftöku var í fæstum orðum þessi: „Það er nóg til.“ Það er erfitt að bera á móti því af hálfu ríkisstjórnar sem ætlar sér að haga sér eins og afglapi í meðferð almannafjár gegn ímynduðum heimsfaraldri, sem 85% íbúa þessa sama heims ætla ekki að koma nálægt! En á móti þessum 85 prósentum heimsbyggðarinnar kemur þó, að á Ís- landi er „nóg til“. Er það ekki öruggt? Morgunblaðið/Unnur Karen ’ Heyrst hefur að íslensk yfirvöld ætli sér að kasta 50 milljörðum króna í fyrstu at- rennu á nýjasta tískubálið af skattfé borg- aranna. 3.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.