Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Blaðsíða 29
Fannar Smári brosandi. Óttar út- skrifaðist á undan og kynni tókust með þeim þegar Fannar Smári fékk hann til að taka upp útskriftarmynd- ina sína árið 2019. Verkefnið byrjaði sem útskrift- armynd fyrir Arnfinn Daníelsson, sem leikur pabbann í myndinni. Hann er sjálfur veiðimaður og fer reglulega upp á hálendið og hug- myndin kviknaði út frá því. Fannar Smári og Óttar leggja söguna upp saman en sá fyrrnefndi skrifar hand- ritið. Með önnur hlutverk í myndinni fara Margrét Kaaber, sem leikur móðurina, Ingvar Örn Arngeirsson, sem leikur soninn þegar hann er orð- inn tvítugur, Valur Darri Ásgríms- son, sem leikur soninn átta ára, og Emma Júlía Ólafsdóttir, sem leikur systur drengsins. Tvö þau síðast- nefndu eru frændsystkini Fannars Smára og segir hann þau hafa staðið sig með stakri prýði. Fjármagna úr eigin vasa Vinnsla við myndina hófst á seinasta ári en frestaðist ítrekað vegna heimsfaraldursins. Félagarnir voru þó staðráðnir að gera myndina og héldu áfram að þróa hana. Þá eign- aðist Óttar barn í fyrra, þannig að í mörg horn var að líta. Þeir höfðu áform um að sækja um styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands en hættu á endanum við það og ákváðu að fjármagna myndina alfarið sjálfir. „Það er langt og flókið ferli að sækja um styrk hjá Kvikmyndasjóði og all- ir vita að möguleikar þeirra sem ekki hafa þegar skapað sér nafn í grein- inni eru ekki miklir. Við ákváðum því að fjármagna myndina alfarið úr eig- in vasa. Það er líka góð leið til að sýna fram á hvað við getum,“ segir Fannar Smári. – Er það slagur að hasla sér völl í kvikmyndageiranum á Íslandi? „Já, það er slagur. Maður þarf að búa sér til tækifærin sjálfur en það er verðug áskorun og gefandi að þurfa að sanna sig.“ Hann segir stuttmyndina krefj- andi og skemmtilegt form kvik- myndagerðar. „Við Óttar erum báðir heillaðir af þessu formi og það er mikil áskorun að segja svona knappa sögu; við erum að tala um á bilinu 15 til 20 mínútur. Það er ekki auðvelt að segja góða sögu á svo stuttum tíma; það má ekki ein einasta lína fara til spillis.“ Beðið eftir snjónum Tökur á Byl standa yfir um þessar mundir. Byrjað var í húsi í Borgar- nesi sem tekið var á leigu en síðan barst leikurinn til Hveragerðis og í Þrengslin, í hlöðu við bæinn Ytri- Þurá í Ölfusi og senn kemur að því að taka upp í fjallakofa á Hellisheið- inni. Að því búnu þarf að bíða eftir snjó á hálendinu, til að klára útitök- urnar. „Við erum ekki með sér- stakan stað í huga,“ segir Fannar Smári, „bara þar sem snjóar fyrst.“ Hann segir þá hafa verið gríð- arlega heppna með veður meðan á tökum hefur staðið sem skiptir sköp- um enda ekki á vísan að róa í þeim efnum hér um slóðir. Eins og við þekkjum gerist veðrið varla sérlund- aðra en á Íslandi. „Það getur verið krefjandi að taka upp í íslenska veðr- inu en maður verður bara að rúlla með því. Fram að þessu hefur veðrið í tökunum bara verið eins og í hand- ritinu – sem hlýtur að teljast mjög sjaldgæft.“ Verkefnið er á áætlun og Fannar Smári gerir ráð fyrir að eftirvinnslu verði lokið fyrir jólin. Hvað ætli taki þá við? „Að koma myndinni inn á hátíðir erlendis,“ svarar Fannar Smári. „Það er mikill meðbyr með íslenskri kvikmyndagerð, ekki síst stutt- myndum, og við erum mjög spenntir að sýna hvað getum og láta á þetta verkefni reyna.“ Fannar Smári og Óttar eru þegar farnir að leggja drög að næsta verk- efni sem jafnframt verður stutt- mynd. „Ég reikna með að byrja að skrifa handritið um leið og þessu verkefni lýkur,“ segir hann og bætir við að næsta verkefni eftir það verði vonandi kvikmynd í fullri lengd. Fannar Smári er 26 ára en kvik- myndaáhuginn hófst fyrir alvöru þegar hann fékk myndavél í ferm- ingargjöf. Þá byrjaði hann að gera heimatilbúin myndbönd og eftir það var ekki aftur snúið. „Þetta er það sem mig langar til að gera í lífinu og ég er hvergi nærri hættur – vonandi bara rétt að byrja.“ Arnfinnur Daníelsson og Valur Darri Ásgrímsson í hlutverki feðganna í Byl. Morgunblaðið/Unnur Karen 3.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 VEIKINDI Málmgoðin í Judas Priest hafa neyðst til að aflýsa Bandaríkjatúr sínum eftir að gítar- leikarinn Richie Faulkner var lagð- ur inn á spítala í vikunni vegna alvarlegs hjartakvilla. Faulkner er aðeins 41 árs, langyngstur hins geistlega bands en þrír meðlima eru komnir á áttræðisaldurinn. Úti- lokað er talið að KK Downing, fyrr- verandi gítaristi Priest, verði feng- inn til að leysa Faulkner af hólmi enda hefur hann staðið í hnútukasti við sína gömlu félaga seinustu árin. Lagður inn á hjartadeild Við sendum Faulkner batakveðjur. AFP BÓKSALA 22.-28. SEPTEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Bréfið Kathryn Hughes 2 Þögla ekkjan Sara Blædel 3 Verstu foreldrar í heimi David Walliams 4 Minn hlátur er sorg Friðrika Benónýsdóttir 5 Dagbók Kidda Klaufa 14 – brot og braml Jeff Kinney 6 Stúlka A Abigail Dean 7 Fimmtudags- morðklúbburinn Richard Osman 8 Sögur og ljóð Ásta Sigurðardóttir 9 On fire – Iceland’s youngest volcano Ari Trausti Guðmundsson / Ragnar Th. Sigurðsson 10 Sagas Of The Icelanders Ýmsir höfundar 1 Verstu foreldrar í heimi David Walliams 2 Dagbók Kidda klaufa 14 – brot og braml Jeff Kinney 3 Bold – fjölskyldan í klípu Julian Clary 4 Bangsímon - Þokan mikla Walt Disney 5 Þín eigin saga Rauðhetta Ævar Þór Benediktsson 6 Ófriður í grænmetis- garðinum Sven Nordqvist 7 Ljóni og Lindís plokka Guðný Anna Annasdóttir 8 Í huganum heim Guðlaug Jónsdóttir 9 Kennarinn sem kveikti í Bergrún Íris Sævarsdóttir 10 Palli Playstation Gunnar Helgason Allar bækur Barnabækur Fædd árið 1939 og fyrsta árið mitt bjuggu foreldrar mínir víða í Reykjavík enda er húsnæðisekla í Reykjavík alls ekkert nýtt fyrir- brigði. Foreldrar mínir voru ákaf- lega bókhneigð og mér er sagt að þegar þau lögðust til svefns með mig á milli sín var mér rétt slitur af ensku blaði svo ég gæti flett ein- hverju eins og þau, það vantaði framan á það en ein fyrirsögn á æsispennandi grein er The Hungry Man. Foreldrar mínir lásu allt sem þau komust í, voru bæði afar vinstrisinnuð og fylgdi þeim ýmislegt bókatengt, ekki bara um pólitík heldur er ég enn með bæk- ur eftir Agötu Christie sem eru merktar pabba. Held sjálf upp á bækurnar hennar. Fyrsta alvöru bók- in sem ég fékk í fjög- urra ára afmælisgjöf og lét í fyrstu lesa oft fyrir mig heitir Mýsnar og myllu- hjólið, alveg dásamleg bók með teiknuðum myndum í lit og svo það sem var svo nýstárlegt: gat í gegnum bókina. Fyrsta ábending um hinar mörgu og dularfullu hliðar bókahönnunar. Því bók er ekki bara spjöld og pappírssíður, hún er þrívíð og teymir lesandann áfram og aftur og á dýpið ef umbrotið og mynda- dreifing eru með lesvænum hætti. Maður les frá vinstri til hægri og er leiddur áfram af textanum nið- ur síðuna og svo áfram á næstu opnu. Á hinum dularfullu, óþekktu textasíðum sem eftir er að lesa leynist einhver ný vitneskja eða óþekktir leyndardómsfullir hlutir – ef höfundinum hefur tekist vel upp. Af bókum bernskunnar standa Lísa í Undralandi og Lína lang- sokkur upp úr. Ógleymanlegt var líka að lesa margar fullorðinsbækur því engar hömlur voru settar á hvað ég læsi. Ógleymanleg er bók Selmu Lag- erlöf um Nils Hol- gerson sem var landafræði Svíþjóðar samkvæmt sýn drengs sem flýgur á baki gæs- ar yfir landið sitt og lýsir fyrir ungum lesendum sínum. Þvílík hugmynd, þvílík víðátta sem blasti við drengn- um, hugsa sér hvað börn gátu gert í út- löndum! Allar bækur sem börn lesa hafa áhrif á þau. Af seinni tíma höfundum held ég upp á flestar bækur Jóns Kal- mans Stefánssonar og magnaðar lýsingar hans á lífi og hugsunum fólks. Þá er ég hrifin af Guðrúnu Evu Mínervudóttur, hún kemur oft verulega á óvart. Ljóðabækur sem ég gríp stundum í eru alveg frá Stef- áni Ólafssyni gegn- um höfunda í tíð Jónasar Hallgríms- sonar til nútímans með Þorstein frá Hamri og auðvitað bókum móður minnar, Halldóru B. Björnsson. Svo er Tove Ditlevsen i miklu dá- læti. Bækur eru endalaus uppspretta svara við öllu í lífinu. ÞÓRA ELFA BJÖRNSSON ER AÐ LESA Endalaus uppspretta svara Þóra Elfa Björnsson er setjari og fram- haldsskóla- kennari á eftir- launum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.