Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021
SKIPULAG
T
im Gill er þekktur fræðimaður og
rithöfundur sem hefur skrifað
mikið um borgarskipulag og börn.
Hann er talsmaður frjáls leiks og
vill að börn geti notið sín í borgum.
Nýjasta bók hans heitir The Urban Playgro-
und: How Child-Friendly Planning and De-
sign Can Save Cities og í henni er varpað ljósi
á þá fullyrðingu að það sem sé gott fyrir börn
sé gott fyrir alla.
En hvað er barnvænt borgarskipulag?
Ekki vefst fyrir Gill að svara því. Hann
byrjar á tilvitnun í Enrique Peñalosa, fyrrver-
andi borgarstjóra Bógóta, höfuðborgar Kó-
lombíu. „Hann sagði: Börn eru viðmiðunarteg-
und fyrir borgir. Ég tek því bókstaflega.
Borgir og hverfi þar sem börn eru virk og
sýnileg, þar sem þau nota rýmið utandyra,
komast á milli staða með eða án foreldra sinna
er merki um heilbrigði umhverfisins á sama
hátt og ef þú sérð lax synda í á þá segir það
eitthvað um heilbrigði þess vistkerfis,“ segir
hann og útskýrir nánar.
„Barnvænleg borgarhönnun er hönnun sem
hefur það að markmiði að gera börnum auð-
velt að komast á milli staða og gefur þeim
marga möguleika á því hvar og hvernig þau
geta leikið utandyra,“ segir Gill.
Ferðafrelsi barna hefur minnkað
Góð borg fyrir börn er ekki aðeins borg með
mörgum frábærum leikvöllum. Leiksvæði
barna getur verið margt annað en leikvellir. „Í
borg fyrir börn þarf að taka niður girðingar og
skapa spennandi svæði sem bjóða upp á leik
og dvöl svo börn geti virkilega rannsakað um-
hverfi sitt og víkkað sjóndeildarhringinn,“
segir hann en það svæði sem börn fá að
ferðast frá heimili sínu er stöðugt að minnka.
„Það eru margar rannsóknir sem sýna að
sjóndeildarhringur barna hefur minnkað um-
talsvert. Það eru til dæmis til rannsóknir á
fjölskyldum þar sem rætt er við margar kyn-
slóðir innan sömu fjölskyldunnar og fólk spurt
hvert það mátti fara þegar það var átta ára.
Það hefur orðið mikil breyting þar á síðustu
ár. Fyrir tveimur eða þremur kynslóðum,
næstum því hvar sem er í heiminum, óháð
menningu og bakgrunni, bjuggu börn við mik-
ið frelsi til að fara um umhverfi sitt. Þetta hef-
ur núna nærri því alveg tapast hjá börnum,
jafnvel allt að unglingsaldri,“ segir Gill.
Þetta er þekkt rannsókn sem var gerð í
Sheffield á Englandi. Ef litið er til einnar fjöl-
skyldunnar sem tók þátt kemur í ljós að lang-
afinn mátti átta ára gamall fara 10 km frá
heimilinu til að veiða (1919), afinn mátti fara
einn til tvo kílómetra til að leika sér í skógin-
um (1950), mamman mátti ganga ein í sund í
um 800 metra fjarlægð (1979) og sonurinn
mátti fara á enda götunnar sem hann bjó við,
tæpa 300 metra (2007). Þróunin er sláandi, en
Gill segir alls ekki mega líta á þetta sem óhjá-
kvæmilega þróun.
„Enginn settist niður og sagði: Mér finnst
það frábær hugmynd að krakkar séu fastir
inni hjá sér allan daginn fyrir framan skjái.
Aukin umferð er sú breyta sem hefur haft
mest áhrif á líf barna. Fleira hefur breyst eins
og fjölskyldumynstur og vinna, húsnæði,
tækni og menningarleg viðhorf. Margt fer
þarna saman til að hafa áhrif á barnæskuna.
En þetta er ekki óhjákvæmilegt. Í sumum
löndum njóta börn enn þá frekar mikils frels-
is,“ segir hann og nefnir þá helst Holland, sum
norrænu löndin og Þýskaland. Mælikvarðar á
það hversu gott það er að vera barn í borg er
til dæmis hversu auðvelt það er fyrir börn að
labba ein í skólann og hvað þau eru gömul
þegar þau fara að labba ein í skólann.
„Það er enginn vafi á því að slæmt borgar-
skipulag er verst fyrir börnin. Ekki bara
vegna hættu á slysum heldur líka vegna
mengunar og skorts á frelsi í barnæsku,“ segir
hann.
„Eitt af því áhugaverða í kringum barnvæn-
legt borgarumhverfi snýst um þéttleika og að
átta sig á því að dreifða úthverfabyggðin sem
mörgum finnst vera góð fyrir börnin er
kannski ekki eins góð og við höldum. Allt verð-
ur of langt í burtu og þú verður að eiga bíl til
að komast um. Þannig verður erfitt fyrir börn
að komast sjálf á milli staða. Þetta hefur síðan
áhrif á sjálfbærni og loftslagsmál,“ segir Gill
en eitt af því sem hann skrifar um í bókinni er
hvernig sjálfbært hverfi líti út.
Fyrir börnin og umhverfið
„Það er grænt og þétt. Það er auðvelt að kom-
ast á milli staða með hjóli eða gangandi. Svona
sjálfbært hverfi líkist mjög barnvænu hverfi.
Fyrir mér eru einhver sterkustu rökin fyrir
því að við ættum að hugsa meira um að gera
hlutina barnvæna að það hjálpar að gera sýni-
legt og styrkja rökin fyrir því að skipulag ætti
að vera sjálfbærara,“ segir hann og bætir við
að þetta hjálpi fólki að setja sig í aðrar stell-
ingar. „Það getur þá hugsað með sér „ég tapa
kannski einhverju því það verður ekki eins
auðvelt að fara á bílnum út um allt en börnin
mín geta gengið í skólann, það eru græn svæði
nálægt okkur og það verður ekki eins mikil
umferð á götunni fyrir framan hjá mér,““ seg-
ir hann.
„Gönguvæn borg er betri fyrir börn en bíla-
væn borg,“ segir Gill og bætir við að einn við-
mælandi hans í bókinni hafi bent á að það geri
málstaðinn vænlegri fyrir stjórnmálamenn.
„Núna í London er mjög lífleg umræða um
umferð í borginni og það á að draga úr umferð
í íbúahverfum. Margir eru reiðir vegna þess
að þeir geta ekki keyrt bílnum sínum á staði
sem þeir komust áður á bíl. Mín rök eru þau
að ef við horfum til lengri tíma þá eru þessar
breytingar sem við þurfum að gera góðar fyrir
börnin og einmitt það sem við þurfum að
gera,“ segir hann.
Þetta getur verið lífsspursmál en yfirvöld
komust að því að loftmengun hefði verið stór
orsakavaldur í láti hinnar níu ára gömlu Ella
Adoo-Kissi-Debrah árið 2013. Sérstök rann-
sókn fór fram á andláti hennar í fyrra og í
kjölfarið varð Ella fyrsta manneskjan í Bret-
landi þar sem dánarsökin á dánarvottorðinu
var sögð vera loftmengun.
London er stórborg og hefur sínar eigin
áskoranir en það eru margar minni borgir í
Evrópu sem leggja mikla áherslu á að vera
barnvænar. Eitt dæmi um það er Ghent í
Belgíu en þar búa um 260.000 manns. Gill
skrifar um Ghent í bókinni og segir að sér-
stakt barnateymi sé að störfum hjá borginni
sem vinnur með hinum ýmsu deildum eins og
samgöngudeild, húsnæðisdeild og náttúru og
görðum og fléttar barnvænlegu lagi inn í allar
ákvarðanir og framkvæmdir. „Ég skrifa í bók-
inni um endurnýjun á ákveðnu hverfi í borg-
inni þar sem átti að lyfta upp fátæku hverfi í
niðurníðslu. Eitt af því var að skapa ekki að-
eins betri leiksvæði heldur líka betri göngu-
leiðir, hjólaleiðir og almenningsrými. Þetta
varð að veruleika því þetta teymi tók þátt í
verkefninu öllu,“ segir hann og tekur þetta
sem dæmi um hvað yfirvöld geti gert til að
skapa barnvænni bæi og borgir.
Loka götum og leika sér úti
Hann nefnir verkefnið „Play Streets“ í Bret-
landi sem dæmi um verkefni sem stuðli að
barnvænu umhverfi og komi frá grasrótinni.
„Það er eitthvað sem er ódýrt og auðvelt að
gera. Íbúar standa saman og loka fyrir bíla-
umferð í götunni sinni nokkrar klukkustundir
á viku,“ segir hann og útskýrir að ef
einhver verði að komast sé honum
auðvitað hleypt í gegn „en þetta er
svona hugmyndin“.
Þarna verður til pláss fyrir börn
að leika sér úti. „Þetta er eitthvað
sem á sér reglulega stað, einu sinni í
viku eða einu sinni í mánuði, ekki
bara á þjóðhátíðardaginn eða eitt-
hvað slíkt. Það hefur sýnt sig að
þetta sameinar samfélagið í hverfinu
og gefur nágrönnum tækifæri til að
kynnast og byggja upp nágranna-
anda. Þetta plantar líka ákveðnu fræi með því
að sýna hvernig götunar okkar geta verið
öðruvísi. Þú sérð með eigin augum að börn
geta vel leikið sér á skemmtilegan hátt bara ef
þau fá pláss, vini, nokkur leikföng og hjólin
sín. Þau þurfa ekki dýra leikvelli heldur geta
börn leikið sér frá náttúrunnar hendi næstum
hvar sem er,“ segir hann en verkefnið snýst
um að láta börn leika sér úti og er hægt að
lesa meira á playingout.net.
Náttúran í hversdeginum
Hversu mikilvæg er tengingin við náttúruna í
borgarumhverfinu?
„Ég tala gjarnan um náttúruna í hversdeg-
inum. Hún er nauðsynlegt innihaldsefni í góðri
barnæsku. Börn þurfa að hafa staði þar sem
þau geta fengið mold á puttana, fundið fyrir
veðrabreytingum, séð skordýr og þar sem öll
skynfæri þeirra fá tengingu við náttúruna.
Það er eitthvað sem er auðvelt að hafa í hverf-
um. Það má ekki gleyma því að börn eru minni
en við. Það þarf ekki að fara með þau í þjóð-
garð eða óbyggðir til að þau nái að fá að upp-
lifa fjölbreytni og undur náttúrunnar,“ segir
hann.
Gill er hrifinn af svokölluðum náttúruleik.
„Börnum finnst gaman að leika sér með nátt-
úruleg efni eins og sand, vatn, mold, greinar
og lauf. Þessir þættir geta fléttast inn í leik-
velli á skemmtilegan hátt. Ég er mikill aðdá-
andi danska landslagsarkitektsins Helle
Nebelong. Hún er mikil listakona og hefur
Tim Gill hefur gefið út bækur sem allar tengjast
börnum, borgarskipulagi og leik.
Mynd/Martin Godwin
Barnvæn borg
er góð borg
Hvernig borg viljum við að börnin okkar alist upp í?
Tim Gill varpar ljósi á hvernig það að horfa á borgir með
augum barna og skipuleggja þær með hagsmuni yngstu
kynslóðarinnar í huga, geri þær betri fyrir alla.
Inga Rún Sigurðardóttir ingaruns@gmail.com
Lítið barn eitt á ferð á hjóli í
umhverfisvæna úthverfinu
Vauban sem er nánast bíllaust.
’
Það er enginn
vafi á því að
slæmt borgarskipu-
lag er verst fyrir
börnin. Ekki bara
vegna hættu á slys-
um heldur líka vegna
mengunar og skorts
á frelsi í barnæsku.