Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Side 19
til umráða en það er ekki nóg segir Gill. „Ein- hverjir fullorðnir hugsa kannski að tæknin komi í staðinn. Og það er satt að stafrænt líf barna skiptir þau miklu máli, ekki síst félagslíf þeirra á netinu. En börn þurfa að hitta vini sína í eigin persónu.“ Annað sem hafi gerst í faraldrinum sé að fólk kunni betur að meta grænu svæðin í kringum sig og ástandið hafi ýtt undir skilning á því hversu mikilvægir hjóla- og göngustígar séu. „Fólk kann betur að meta þessa þætti og líka hverfisbúðir og aðra þjónustu innan seil- ingar. Þetta varð allt svo mikilvægt þegar við þurftum að lifa lífinu nær heimilinu,“ segir Gill sem óttast samt að við eigum ekki eftir að læra nóg á heimsfaraldrinum og missa af tækifæri til breytinga. Lærum af faraldrinum „Ég hef áhyggjur því hér í Bretlandi virðist öllum liggja lífið á að lífið verði aftur venju- legt. Ég hef áhyggjur af því að við notum ekki þessa innsýn inn í framtíðina, að við notum ekki vitneskjuna um hversu mikilvæg hverf- issvæðin eru heldur snúist allt um að koma hjólum atvinnulífsins aftur í gang, efnahagslíf- inu eins og það var. Svo mörg af vandamálum okkar í dag snúa að ofneyslu, að við kaupum og notum of mikið af dóti,“ segir hann. „Það er margt gott að gerast í Bretlandi hvað varðar loftslagsmál en það snýst meira um næstu 20 ár en faraldurinn gefur okkur tækifæri til að flýta þessu ferli.“ Hann segir að eitt af því sem muni raunger- ast sé að fleiri vinni heima hjá sér í framtíðinni og það þýði færri að ferðast á milli staða á hverjum degi og fleiri sem lifi lífinu meira í hverfinu sínu. „Það er áhugavert og opnar á ýmsa möguleika. Kannski er ég of svartsýnn!“ Mynd/Wikimedia - Claire skapað virkilega falleg, náttúruleg leiksvæði. Skemmtilega staði sem treysta ekki á fjölda- framleidd leiktæki heldur steina, plöntur og fleira sem hún fléttar inn í hönnunina. Þetta er öflug leið til að vefa náttúrunni inn í umhverfi barna,“ segir hann. Barnæskan er ferðalag Í skrifum sínum talar Gill gjarnan um að barn- æskan sé ferðalag. „Eftir því sem börn vaxa verða þau smám saman sjálfstæðari og taka fleiri sjálfstæðar ákvarðanir eins og hvert þau fara og í hvað þau eyða tíma sínum. Mark- miðið er að börn alist upp og verði sjálfstæðir og hæfir einstaklingar sem hafi þróað með sér seiglu og kunni að takast á við heiminn. Við erum öll sammála um þetta og líka að þetta sé best gert í litlum skrefum,“ segir hann. „Ég held að við séum í hættu á því að láta þessi seinni skref vera of stór og að við ætl- umst til of mikils af unglingum. Það kemur mér ekki á óvart að það séu vaxandi vísbend- ingar um að unglingar þjáist í meira mæli af kvíða og þunglyndi en áður,“ segir Gill, en eitt af því sem stuðli að þessari þróun sé að við leyfum börnunum ekki að takast á við hlutina á eigin spýtur nógu snemma. „Þau fá ekki nægar áskoranir og þegar þau verða eldri lenda þau í vandræðum því þau hafa ekki tæki og tól til að takast á við aðstæð- urnar. Frjáls leikur getur hjálpað börnum að vaxa og þroskast.“ Stofufangelsi í faraldrinum Heimsfaraldur Covid-19 ætti að hjálpa full- orðnu fólki að setja sig í spor barnanna. „Við vitum öll núna hvernig tilfinning það er að vera fastur inni á heimilinu. Börn hafa þurft að sætta sig við sífellt meira stofufang- elsi síðustu 30-40 ár. Ég vona að eitt af því fáa góða sem komi út úr þessum heimsfaraldri sé að fullorðna fólkið fái innsýn í hvað það þýðir fyrir börn að vera svipt þessu hversdagslega frelsi, að langa að fara út að hitta vini sína en geta það ekki.“ Börnin hafa tæknina og stafræna heiminn 24.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Tim Gill skrifar um hverfið Vauban í Frei- burg í Þýskalandi í bók sinni Urban Play- ground. „Þetta er svokallað umhverfisvænt úthverfi. Þarna er meðalþéttleiki, blönduð byggð og um fimm til sex þúsund manns búa í hverfinu. Ég hef heimsótt þetta hverfi tvisvar og í bæði skiptin hefur það komið mér virkilega á óvart hversu mörg börn og fjölskyldur eru sjáanlegar og að þarna eru jafnvel frekar ung börn ein á ferð. Það mikilvægasta við Vauban er að það er meira og minna bíllaust hverfi. Lít- ill hluti íbúa á bíl og ef þú átt bíl þarftu að geyma hann í einum af bílageymslunum sem eru í jaðri hverfisins. Þannig að allt rýmið á milli húsa í hverfinu er til reiðu fyrir almenning til að njóta; fyrir leik og samskipti og umhverfið er mjög öruggt til að ganga og hjóla í. Þetta er ákveðin til- raun sem sýnir að ef þú breytir uppbygg- ingu hverfisins opnast rýmið á milli húsa fyrir mannlíf. Þá færðu börnin út að leika og getur snúið við þeirri þróun að börn séu sífellt meira innandyra.“ Skemmtilegt grænt leiksvæði í Vauban í Freiburg. Mynd/Ciaran Cuffe Umhverfisvæna úthverfið Vauban Á vef Skipulagsstofnunar, skipulag.is, er hægt að finna útgefið efni stofnunarinnar um lýðheilsu og skipulag. Í samantekt fyrir stofnunina sem var gefin út í fyrra vegna mótunar landsskipulagsstefnu um lýðheilsu er sérstakur kafli um græn svæði fyrir hreyfingu, endurnæringu, meðferð, ræktun og kolefnis- bindingu. Þar segir að við skipulag grænna svæða sé mikilvægt að gera ráð fyrir litlum og stórum svæðum, fyrir fjölbreytta notkun og upplifun, svo að lýðheilsuáhrifin nái til allra hliða heilsu og verði sem mest. Þessi áhrif snúa einkum að: Öryggi gagnvart náttúruvá og mengun, endurnæringu, endurheimt, slökun og streitulosun, hreyfingu og samveru og samheldni. Þarna sést vel hvað grænu svæðin tengjast bæði lýðheilsumálum og umhverfismálum. Lögð er áhersla á að græn svæði geti verið margskonar: „Litlir og stórir garðar, grænir geirar, leiksvæði, íþróttasvæði, hundagerði, svæði fyrir matjurtarækt og skógræktarsvæði á jaðri þéttbýlis veita tækifæri til að komast í bein og óbein tengsl við náttúruna og njóta góðra áhrifa hennar.“ Fyrir utan gott framboð á fjölbreyttum svæðum skipta gæði svæð- anna máli. Þar þarf að huga að hönnun fyrir öll skynfærin, öll veður, allar árstíðir og alla aldurs- og getuhópa. Í Reykavík búa 92% íbúa í innan við 300 metra fjarlægð, sem er um fimm mínútna gangur, frá útivistarsvæðum eða öðrum opnum svæð- um sem nýtast til útivistar og afþreyingar, svo sem torgum, grænum svæðum og strandsvæðum stærri en 2.000 fermetrar. Þetta kemur fram í bæklingnum Græna borgin sem er að finna á adalskipulag.is. Gönguvænt umhverfi mikilvægt Í fyrrnefndri samantekt fyrir Skipulagsstofnun er líka talað um mik- ilvægi gönguvæns umhverfis. „Skipulagsáherslur sem gera um- hverfi gönguvænt eiga sérstaklega vel við á Íslandi þar sem flestir þéttbýlisstaðir eru af þeirri stærð að ganga er raunhæfur fararmáti. Ganga er jafnframt sá fararmáti sem er á færi flestra og gönguvænt umhverfi tryggir aðgengi allra. Það gagnast einnig fyrir aðra virka fararmáta og styður við almenningssamgöngur. Gönguvænt um- hverfi hvetur ennfremur til almennrar útiveru og getur stutt við samskipti fólks með vel útbúnum almenningsrýmum sem laða fólk að og bjóða upp á að staldrað sé við.“ Græn svæði, lýð- heilsa og skipulag Þessi umfjöllun er hluti af meistaraverkefni í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Þetta er önnur grein af þremur sem tengjast allar náttúru, borg og lýðheilsu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.