Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 2021
Þeir gerast ekki mikið stærri, leikirnir í sparkheimum, en viður-
eign tveggja sigursælustu félaga Englandssögunnar, Manchest-
er United og Liverpool, sem samtals hafa unnið meistarabik-
arinn 39 sinnum. Yfir þeirri glímu er mikill ljómi sem seint ætlar
að fölna. United býr að heimavellinum í dag, sunnudag, en flaut-
að verður til leiks í Leikhúsi draumanna stundvíslega kl. 15:30.
Ekki spillir fyrir að þessu sinni að hvor sveit um sig telur sig
hafa yfir að ráða besta knattspyrnumanni heims. Portúgalska
goðið Cristiano Ronaldo er snúið aftur til Manchester og Egypt-
inn Mohamed Salah hefur farið með himinskautum í haust í liði
gestanna. Stendur hann nú Ronaldo og Lionel Messi framar?
spyrja sparkskýrendur sig og klóra sér í höfðinu.
Liverpool er í öðru sæti úrvalsdeildarinnar, taplaust með 18
stig, en United í sjötta sæti með 14.
Létt var yfir Cristiano Ro-
naldo eftir að hann tryggði
Manchester United sigur á
Atalanta á dögunum.
AFP
Glíma allra glímna
Mohamed Salah átti enn einn stórleikinn gegn
Atlético Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.
AFP
Manchester United og Liverpool berast á
banaspjót á Englandi í dag, sunnudag.
Velvakandi í Morgunblaðinu var
í merkjanlegu uppnámi á þess-
um degi fyrir sjötíu árum.
„Hvað haldið þið, góðir hálsar,
að nemendur gagnfræðaskól-
anna hafist að í frímínútunum?“
spurði hann.
„Þið haldið vitaskuld, að í
kaffihljeinu sitji þeir inni í skóla-
stofunni og drekki mjólk og jeti
vínarbrauð og hagldabrauð eða
fljúgist á. Nei, svo nærtækt er
svarið ekki.“
Athyglisvert að áflog hafi ver-
ið nærtækt svar. En, jæja.
„Takið þið ykkur stöðu við til-
teknar verslanir, þegar hringt er
út, og börn á fermingaraldri
streyma þangað inn eins og flóð-
bylgja. Þau kaupa kókakóla og
kex og jeta með góðri lyst. Það
er ekki auraleysið þar. Þá hefjast
reykingarnar. Strákar og stelpur
draga upp vindlinga eins og
þrautreyndir nautnaseggir og
kveikja í. Hafið þið sjeð kvenfólk
reykjandi úti á götu eða inni í
sölubúðum? Jeg get bent ykkur á
verslanir þar sem stúlkur á
fermingaraldri standa í hvirfingu
og reykja hirðuleysislega eins og
lauslætisdrósir, að jeg nú ekki
tali um strákana,“ sagði Velvak-
andi og bætti við að ótrúlegt
væri að uppeldisáhuginn næði
ekki út fyrir skóladyrnar.
GAMLA FRÉTTIN
Reykt í
frímó
„Þá hefjast reykingarnar. Strákar og stelpur draga upp vindlinga eins og
þrautreyndir nautnaseggir og kveikja í,“ sagði Velvakandi árið 1951.
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
William H. Macy
leikari
Árni Finnsson
form. Náttúruverndarsamtakanna
Júlli í Skarnabæ
vinur Viggós viðutans
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
Verið velkomin
í heimsókn
Mikið úrval
hvíldarstóla
fyrir alla
Hvíldin
byrjar í LÚR
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL