Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.10.2021, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.10. 2021 SKIPULAG T im Gill er þekktur fræðimaður og rithöfundur sem hefur skrifað mikið um borgarskipulag og börn. Hann er talsmaður frjáls leiks og vill að börn geti notið sín í borgum. Nýjasta bók hans heitir The Urban Playgro- und: How Child-Friendly Planning and De- sign Can Save Cities og í henni er varpað ljósi á þá fullyrðingu að það sem sé gott fyrir börn sé gott fyrir alla. En hvað er barnvænt borgarskipulag? Ekki vefst fyrir Gill að svara því. Hann byrjar á tilvitnun í Enrique Peñalosa, fyrrver- andi borgarstjóra Bógóta, höfuðborgar Kó- lombíu. „Hann sagði: Börn eru viðmiðunarteg- und fyrir borgir. Ég tek því bókstaflega. Borgir og hverfi þar sem börn eru virk og sýnileg, þar sem þau nota rýmið utandyra, komast á milli staða með eða án foreldra sinna er merki um heilbrigði umhverfisins á sama hátt og ef þú sérð lax synda í á þá segir það eitthvað um heilbrigði þess vistkerfis,“ segir hann og útskýrir nánar. „Barnvænleg borgarhönnun er hönnun sem hefur það að markmiði að gera börnum auð- velt að komast á milli staða og gefur þeim marga möguleika á því hvar og hvernig þau geta leikið utandyra,“ segir Gill. Ferðafrelsi barna hefur minnkað Góð borg fyrir börn er ekki aðeins borg með mörgum frábærum leikvöllum. Leiksvæði barna getur verið margt annað en leikvellir. „Í borg fyrir börn þarf að taka niður girðingar og skapa spennandi svæði sem bjóða upp á leik og dvöl svo börn geti virkilega rannsakað um- hverfi sitt og víkkað sjóndeildarhringinn,“ segir hann en það svæði sem börn fá að ferðast frá heimili sínu er stöðugt að minnka. „Það eru margar rannsóknir sem sýna að sjóndeildarhringur barna hefur minnkað um- talsvert. Það eru til dæmis til rannsóknir á fjölskyldum þar sem rætt er við margar kyn- slóðir innan sömu fjölskyldunnar og fólk spurt hvert það mátti fara þegar það var átta ára. Það hefur orðið mikil breyting þar á síðustu ár. Fyrir tveimur eða þremur kynslóðum, næstum því hvar sem er í heiminum, óháð menningu og bakgrunni, bjuggu börn við mik- ið frelsi til að fara um umhverfi sitt. Þetta hef- ur núna nærri því alveg tapast hjá börnum, jafnvel allt að unglingsaldri,“ segir Gill. Þetta er þekkt rannsókn sem var gerð í Sheffield á Englandi. Ef litið er til einnar fjöl- skyldunnar sem tók þátt kemur í ljós að lang- afinn mátti átta ára gamall fara 10 km frá heimilinu til að veiða (1919), afinn mátti fara einn til tvo kílómetra til að leika sér í skógin- um (1950), mamman mátti ganga ein í sund í um 800 metra fjarlægð (1979) og sonurinn mátti fara á enda götunnar sem hann bjó við, tæpa 300 metra (2007). Þróunin er sláandi, en Gill segir alls ekki mega líta á þetta sem óhjá- kvæmilega þróun. „Enginn settist niður og sagði: Mér finnst það frábær hugmynd að krakkar séu fastir inni hjá sér allan daginn fyrir framan skjái. Aukin umferð er sú breyta sem hefur haft mest áhrif á líf barna. Fleira hefur breyst eins og fjölskyldumynstur og vinna, húsnæði, tækni og menningarleg viðhorf. Margt fer þarna saman til að hafa áhrif á barnæskuna. En þetta er ekki óhjákvæmilegt. Í sumum löndum njóta börn enn þá frekar mikils frels- is,“ segir hann og nefnir þá helst Holland, sum norrænu löndin og Þýskaland. Mælikvarðar á það hversu gott það er að vera barn í borg er til dæmis hversu auðvelt það er fyrir börn að labba ein í skólann og hvað þau eru gömul þegar þau fara að labba ein í skólann. „Það er enginn vafi á því að slæmt borgar- skipulag er verst fyrir börnin. Ekki bara vegna hættu á slysum heldur líka vegna mengunar og skorts á frelsi í barnæsku,“ segir hann. „Eitt af því áhugaverða í kringum barnvæn- legt borgarumhverfi snýst um þéttleika og að átta sig á því að dreifða úthverfabyggðin sem mörgum finnst vera góð fyrir börnin er kannski ekki eins góð og við höldum. Allt verð- ur of langt í burtu og þú verður að eiga bíl til að komast um. Þannig verður erfitt fyrir börn að komast sjálf á milli staða. Þetta hefur síðan áhrif á sjálfbærni og loftslagsmál,“ segir Gill en eitt af því sem hann skrifar um í bókinni er hvernig sjálfbært hverfi líti út. Fyrir börnin og umhverfið „Það er grænt og þétt. Það er auðvelt að kom- ast á milli staða með hjóli eða gangandi. Svona sjálfbært hverfi líkist mjög barnvænu hverfi. Fyrir mér eru einhver sterkustu rökin fyrir því að við ættum að hugsa meira um að gera hlutina barnvæna að það hjálpar að gera sýni- legt og styrkja rökin fyrir því að skipulag ætti að vera sjálfbærara,“ segir hann og bætir við að þetta hjálpi fólki að setja sig í aðrar stell- ingar. „Það getur þá hugsað með sér „ég tapa kannski einhverju því það verður ekki eins auðvelt að fara á bílnum út um allt en börnin mín geta gengið í skólann, það eru græn svæði nálægt okkur og það verður ekki eins mikil umferð á götunni fyrir framan hjá mér,““ seg- ir hann. „Gönguvæn borg er betri fyrir börn en bíla- væn borg,“ segir Gill og bætir við að einn við- mælandi hans í bókinni hafi bent á að það geri málstaðinn vænlegri fyrir stjórnmálamenn. „Núna í London er mjög lífleg umræða um umferð í borginni og það á að draga úr umferð í íbúahverfum. Margir eru reiðir vegna þess að þeir geta ekki keyrt bílnum sínum á staði sem þeir komust áður á bíl. Mín rök eru þau að ef við horfum til lengri tíma þá eru þessar breytingar sem við þurfum að gera góðar fyrir börnin og einmitt það sem við þurfum að gera,“ segir hann. Þetta getur verið lífsspursmál en yfirvöld komust að því að loftmengun hefði verið stór orsakavaldur í láti hinnar níu ára gömlu Ella Adoo-Kissi-Debrah árið 2013. Sérstök rann- sókn fór fram á andláti hennar í fyrra og í kjölfarið varð Ella fyrsta manneskjan í Bret- landi þar sem dánarsökin á dánarvottorðinu var sögð vera loftmengun. London er stórborg og hefur sínar eigin áskoranir en það eru margar minni borgir í Evrópu sem leggja mikla áherslu á að vera barnvænar. Eitt dæmi um það er Ghent í Belgíu en þar búa um 260.000 manns. Gill skrifar um Ghent í bókinni og segir að sér- stakt barnateymi sé að störfum hjá borginni sem vinnur með hinum ýmsu deildum eins og samgöngudeild, húsnæðisdeild og náttúru og görðum og fléttar barnvænlegu lagi inn í allar ákvarðanir og framkvæmdir. „Ég skrifa í bók- inni um endurnýjun á ákveðnu hverfi í borg- inni þar sem átti að lyfta upp fátæku hverfi í niðurníðslu. Eitt af því var að skapa ekki að- eins betri leiksvæði heldur líka betri göngu- leiðir, hjólaleiðir og almenningsrými. Þetta varð að veruleika því þetta teymi tók þátt í verkefninu öllu,“ segir hann og tekur þetta sem dæmi um hvað yfirvöld geti gert til að skapa barnvænni bæi og borgir. Loka götum og leika sér úti Hann nefnir verkefnið „Play Streets“ í Bret- landi sem dæmi um verkefni sem stuðli að barnvænu umhverfi og komi frá grasrótinni. „Það er eitthvað sem er ódýrt og auðvelt að gera. Íbúar standa saman og loka fyrir bíla- umferð í götunni sinni nokkrar klukkustundir á viku,“ segir hann og útskýrir að ef einhver verði að komast sé honum auðvitað hleypt í gegn „en þetta er svona hugmyndin“. Þarna verður til pláss fyrir börn að leika sér úti. „Þetta er eitthvað sem á sér reglulega stað, einu sinni í viku eða einu sinni í mánuði, ekki bara á þjóðhátíðardaginn eða eitt- hvað slíkt. Það hefur sýnt sig að þetta sameinar samfélagið í hverfinu og gefur nágrönnum tækifæri til að kynnast og byggja upp nágranna- anda. Þetta plantar líka ákveðnu fræi með því að sýna hvernig götunar okkar geta verið öðruvísi. Þú sérð með eigin augum að börn geta vel leikið sér á skemmtilegan hátt bara ef þau fá pláss, vini, nokkur leikföng og hjólin sín. Þau þurfa ekki dýra leikvelli heldur geta börn leikið sér frá náttúrunnar hendi næstum hvar sem er,“ segir hann en verkefnið snýst um að láta börn leika sér úti og er hægt að lesa meira á playingout.net. Náttúran í hversdeginum Hversu mikilvæg er tengingin við náttúruna í borgarumhverfinu? „Ég tala gjarnan um náttúruna í hversdeg- inum. Hún er nauðsynlegt innihaldsefni í góðri barnæsku. Börn þurfa að hafa staði þar sem þau geta fengið mold á puttana, fundið fyrir veðrabreytingum, séð skordýr og þar sem öll skynfæri þeirra fá tengingu við náttúruna. Það er eitthvað sem er auðvelt að hafa í hverf- um. Það má ekki gleyma því að börn eru minni en við. Það þarf ekki að fara með þau í þjóð- garð eða óbyggðir til að þau nái að fá að upp- lifa fjölbreytni og undur náttúrunnar,“ segir hann. Gill er hrifinn af svokölluðum náttúruleik. „Börnum finnst gaman að leika sér með nátt- úruleg efni eins og sand, vatn, mold, greinar og lauf. Þessir þættir geta fléttast inn í leik- velli á skemmtilegan hátt. Ég er mikill aðdá- andi danska landslagsarkitektsins Helle Nebelong. Hún er mikil listakona og hefur Tim Gill hefur gefið út bækur sem allar tengjast börnum, borgarskipulagi og leik. Mynd/Martin Godwin Barnvæn borg er góð borg Hvernig borg viljum við að börnin okkar alist upp í? Tim Gill varpar ljósi á hvernig það að horfa á borgir með augum barna og skipuleggja þær með hagsmuni yngstu kynslóðarinnar í huga, geri þær betri fyrir alla. Inga Rún Sigurðardóttir ingaruns@gmail.com Lítið barn eitt á ferð á hjóli í umhverfisvæna úthverfinu Vauban sem er nánast bíllaust. ’ Það er enginn vafi á því að slæmt borgarskipu- lag er verst fyrir börnin. Ekki bara vegna hættu á slys- um heldur líka vegna mengunar og skorts á frelsi í barnæsku.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.