Víkurfréttir - 18.08.2021, Page 9
Borgarplast ehf., sem fagnar 50 ára afmæli sínu á árinu, er iðnfyrirtæki sem
starfrækir frauðverksmiðju á Ásbrú og rekur auk þess hverfisteypu í Mosfellsbæ
sem framleiðir fiskiker, fráveitulausnir og ýmsar aðrar vörur. Stærstu viðskipta-
vinir félagsins eru sjávarútvegsfyrirtæki, fiskeldisfyrirtæki og verktakar.
Kröfur um menntun og reynslu
• Menntun á sviði vélfræði eða sambærilegra greina
• Mikil reynsla af framleiðslu og viðhaldi vélabúnaðar sem nýtist í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking á Microsoft Dynamics NAV er kostur
Við leitum að öflugum starfsmanni til að taka við stöðu verksmiðjustjóra í frauðverksmiðju
Borgarplasts á Ásbrú sem endurnýjuð var árið 2018. Framundan er frekari uppbygging
og aukin sjálfvirknivæðing á verksmiðjunni. Verksmiðjustjóri heyrir undir framleiðslustjóra.
Helstu verkefni
• Skipulagning á framleiðslu í takt við sölu og áherslu framleiðslustjóra
• Yfirumsjón með viðhaldi allra véla og tækja sem notuð eru í framleiðslunni
– Daglegt viðhald véla, mótaskipti og ýmislegt fleira
– Innleiðing á fyrirbyggjandi viðhaldi fyrir verksmiðjuna
– Samskipti við birgja og þjónustuaðila í tengslum við viðhald á verksmiðjunni
• Verkstjórn starfsmanna sem vinna í verksmiðjunni, skipulag vakta og vinnutíma
• Formaður öryggisnefndar og innleiðing á stefnu Borgarplasts í öryggismálum
• Greining á mögulegri hagræðingu í verksmiðju og innleiðing slíkra verkefna í
samvinnu við framleiðslustjóra
• Fylgjast með stöðu hráefna og mat á innkaupaþörf í samstarfi við framleiðslustjóra
• Viðhald á uppskriftum fyrir frauðvörur og uppfærsla þeirra í framleiðslukerfi félagsins
• Reglubundnar birgðatalningar á hráefnum og samvinna við afgreiðslustjóra um aðrar
birgðatalningar
• Tryggja að allar skráningar í samræmi við gæðakerfi félagsins séu framkvæmdar
• Þétt samstarf og stuðningur við afgreiðslustjóra
• Stuðningur við sölu og vöruþróun á frauðvörum fyrir viðskiptavini félagsins
• Yfirumsjón með fasteign félagsins að Grænásbraut 501
Umsóknir með kynningarbréfi og ferilskrá skal senda
í gegnum starfsauglýsingu Borgarplasts á vefsíðunni
alfred.is. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2021.
VERKSMIÐJUSTJÓRI
FRAUÐVERKSMIÐJU Á ÁSBRÚ
Eftir fundi ríkisstjórnarinnar á
Suðurnesjum í síðustu viku heim-
sóttu ráðherrar Suðurnesjabæ. Full-
trúar Suðurnesjabæjar fóru á fund
með fulltrúum sveitarstjórna og
ríkisstjórnarinnar þar sem farið var
yfir málefni sem snúa sérstaklega að
Suðurnesjabæ og má þar m.a. nefna
að leggja þarf stóraukna áherslu á
heilbrigðisþjónstu í Suðurnesjabæ
sem í dag er engin, dagdvöl og þá
sértæk dagdvalarrými og sjóvarnir.
Í heimsókn í Suðurnesjabæ fór
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri, sér-
staklega yfir málefni sveitarfélagsins,
uppbyggingu og helstu staðhætti. Í
Suðurnesjabæ var stoppað á tveimur
stöðum, í Þekkingarsetri Suðurnesja
þar sem starfsmenn leiddu ráðherra
í sannleikann um allt það merki-
lega starf sem þar er unnið er og
að lokum var stoppað í Garðskaga-
vita þar sem systkinin úr Klassart,
Fríða Dís og Smári, fluttu vel valin
og frumsamin lög. Þá stýrði Magnús
bæjarstjóri, hópnum í fjöldasöng við
lagið Traustur vinur og boðið var
uppá bjórsmökkun frá Litla Brugg-
húsinu.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
heimsókninni í Suðurnesjabæ.
Ríkisstjórnin hlustaði á óskir Suður-
nesjabæjar og fékk tónlist og bjór
Ráðherrar skoðuðu spenntir
krabba í Þekkingarsetrinu.
Lagið tekið í
Garðskagavita
með Magnúsi
bæjarstjóra.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 9 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR