Víkurfréttir - 18.08.2021, Side 10
Midnight Librarian ætlar sér stóra hluti
Hljómsveitin Midnight Librarian er skipuð sjö strákum af Suðurnesjum og þeir eru meira
en tilbúnir til að skella sér í tónleikahald á fullu. Frægð og frami bíður handan við hornið en
sveitin gaf út sitt fyrsta lag fyrir skemmstu, Funky Fresh, og hefur það fengið góðar undir-
tektir. Nú er fyrsta breiðskífa Midnight Librarian að líta dagsins ljós en hún ber nafnið From
Birth Till Breakfast og er aðgengileg á streymisveitum. Víkurfréttir litu inn á æfingu hjá
strákunum og ræddu við Þorstein, söngvara sveitarinnar, og Arnar, annan tveggja gítarleik-
ara Midnight Librarian.
„Þetta byrjaði í einhverjum bílskúr
fyrir þremur árum, þá vorum við
bara þrír en erum orðnir sjö núna,“
segir Þorsteinn. „Það er voða lítið
annað hægt að segja.“
„Þetta hefur þróast mikið á
þremur árum,“ bætir Arnar við. „Ég
kom inn í bandið fyrir einu og hálfu
ári ...“
„Fengum einmitt trommarann
(Val, bróður Arnars) og auka gítar-
leikara og pródúser,“ grípur Þor-
steinn fram í. „Eftir það byrjuðum
við bara að taka upp á fullu.“
Þeir strákar segja að allir meðlimir
hljómsveitarinnar komi frá Suður-
nesjum en bandið skipa þeir Þor-
steinn Helgi Kristjánsson (sér um
sönginn og er úr Garðinum), Haukur
Arnórsson (leikur á hljómborð og
er úr Grindavík), Atli Reynir Bald-
ursson (gítarleikari úr Garði), Arnar
Ingólfsson (leikur á gítar og Talkbox,
úr Njarðvík), Atli Marcher Pálsson
(bassi, Njarðvík), Jón Böðvarsson
(saxófónleikari úr Njarðvík) og Valur
Ingólfsson (trommur, Njarðvík).
„Stoltir Njarðvíkingar í meiri-
hluta,“ segir Arnar og glottir.
Hvað í fjandanum er þetta?
Midnight Librarian gaf út lagið
Funky Fresh fyrir rétt um viku síðan
og settu þeir lagið í spilun á Spotify.
Þeir gerðu einnig tónlistarmynd-
band við lagið sem er aðgengilegt á
YouTube.
– Hvernig hafa viðtökurnar verið
við laginu?
Bara geggjaðar,“ segir Arnar heldur
áfram: „Við erum búnir að plana
þetta svo lengi líka, að gefa út þessa
plötu. Við erum örugglega búnir að
vera í ár núna að taka hana upp og
vorum alveg fastir á því að gefa hana
ekki bara út. Ef við gerum ekkert í
kringum útgáfuna þá gerist ekkert.“
„Týnist bara í öllum þessum milljón
lögum sem eru gefin út á hverjum
degi,“ skýtur Þorsteinn inn í.
„Já, við vorum búnir að plana út-
gáfudaginn, svo kemur platan út
viku eftir það og við erum að und-
irbúa útgáfutónleika í lok mánaðar.
Við ætlum að fylgja þessu eftir og
láta fólk taka eftir okkur – láta það
spyrja hvað í fjandanum er þetta?“
– Þetta er ekki hefðbundin popp-
tónlist sem þið eruð að flytja,
hvernig skilgreinið þið ykkur?
„Það er málið sko, það er eiginlega
ekki hægt,“ svarar Þorsteinn. „Platan
er eiginlega bara við að prófa okkur
áfram. Svo auðvitað sjáum við hvað
fólk tekur best í.“
„Þetta er einhverskonar R&B, ball-
öður með fönki og einhverju diskó ...
rokk líka – þetta er einhvern veginn
út um allt.“
Byrja á streymisveitum
Platan From Birth Till Breakfast
inniheldur ellefu lög og verður gefin
út á helstu streymisveitum, allavega
til að byrja með.
„Við höfum ekki farið út í það að
gefa þetta út á diskum eða vínil,“
segja strákarnir. „Platan verður á
þessum helstu streymisveitum; Spo-
tify, YouTube og fleirum, en ef fólk
er að fíla þetta og væri til í að eiga
plötuna á vínil þá værum við alveg
til í að gera það. Gefum þessu smá
tíma og sjáum hvernig fólk grípur í
þetta.“
Strákarnir hafa
séð um allt útgáfu-
ferlið sjálfir fyrir
utan masteringu en
um hana sá Sigurdór
Guðmundsson sem er
með Skonrokk Studios í
Danmörku. „Við horfðum svo-
lítið í kringum okkur en var alltaf
bent á þennan dúdda – og við erum
„heavy“ sáttir við útkomuna.“
– Þannig að hann kom inn á loka-
metrunum, þið sáuð um allt annað.
„Já, hann var svona „go to“ gaurinn
og það var bara geggjað að vinna
með honum,“ segir Arnar. „Þetta er
annars bara allt tekið upp í tölvunni,
þetta er orðið svo þægilegt í dag.“
„Það sem ég er að syngja er bara
tekið upp heima hjá honum,“ segir
Þorsteinn. „Við erum ekkert að
flækja þetta. Ég myndi samt segja
að þetta „soundi“ eins og það hafi
verið tekið upp einhvers staðar
annars staðar. Mér finnst það alla-
vega og ég er búinn að fá að heyra
það frá öðrum.“
Sjö plús
Midnight Librarian er sjö
manna hljómsveit en þeir
strákar eru alls ófeimnir
við að fá aukahljóðfæra-
leikara inn í bandið finnist
þeim eitthvað vanta.
„Ef okkur vantar eitt-
hvað í bandið þá fáum við
fleiri í lið með okkur. Núna er til
dæmis básúnuleikari á æfingu með
okkur, kona saxófónleikarans, svo
við leitum bara í kringum okkur – til
vina og svoleiðis. Það er skemmtilegt
að hafa þetta stórt.“
Flestir í hljómsveitinni hafa lagt
stund nám í tónlist, mismikið þó, en
það er þéttur hljómur í tónlist Mid-
night Librarian og verður spennandi
að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Hljómsveitin er með vefsíðuna
midnightlibrarian.is og svo er
líka hægt að fylgjast með þeim á
samfélagsmiðlunum Facebook,
Þetta er einhvers
konar R&B, ballöður
með fönki og einhverju
diskó ... rokk líka
– þetta er einhvern
veginn út um allt ...
SMELLTU Á MYNDSKEIÐIÐ TIL AÐ HORFA OG HLUSTA
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR // 11 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR