Víkurfréttir - 27.10.2021, Side 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Á föstudaginn kl 17:00 verður opnuð sýning í Bíósal Duus Safna-
húsa á verkum Jönu Birtu Björnsdóttur sem ber yfirskriftina
Meira en þúsund orð. Sýningin er hluti af listahátíðinni List
án landamæra sem leggur áherslu á list fatlaðra listamanna.
Tilgangur hennar er að auka menningarlegt jafnrétti og fjöl-
breytni með því að skapa faglegan vettvang og tækifæri fyrir
fatlaða listamenn. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns
Reykjanesbæjar og menningarfulltrúa.
Jönu Birtu, sem er fædd og uppalin
í Reykjanesbæ, er margt til lista lagt
og hún er allt í senn aðgerðarsinni,
femínisti, myndlistarmaður og líf-
eindafræðingur á sýkla- og veiru-
fræðideild Landspítalans. Frá árinu
2017 hefur Jana Birta verið að teikna
og mála og heillaðist hún strax í upp-
hafi þess ferðalags af vatnslitum.
Jana hefur mikið næmi fyrir miðl-
inum og hefur á undanförnum árum
verið að þróa tækni sína og færni í að
koma hugmyndum sínum á framfæri.
Tabú
List Jönu Birtu hefur pólitíska og
félagslega skírskotun í samtímann.
Hún gerir málefni fatlaðs fólks að
umfjöllunarefni þessara sýningar
og túlkar á myndrænan hátt hug-
myndir, tilfinningar og baráttumál
feminískrar fötlunarheyfingar sem
nefnist Tabú. Hreyfingin vinnur að
félagslegu réttlæti gegn margþættri
mismunun gagnvart fötluðu fólki
og hefur Jana Birta verið meðlimur
samtakanna um nokkurt skeið.
Á sýningunni er að finna sextán
setningar um ofbeldismyndir gegn
fötluðu fólki en setningarnar mótuðu
meðlimir samtakanna Tabú. Vatns-
litaverkin beina sjónum áhorfandans
að viðfangsefni þessara setninga og
hefur Jana Birta túlkað á mynd-
rænan hátt það sem felst í hverri
setningu. Í gegnum list Jönu Birtu
Björnsdóttur fáum við að skyggnast
inn í heim þar sem hindranir eru
víða og oft á tíðum ósýnilegar þeim
sem ekki tengjast honum beint.
Það er sagt að myndir segi meira
en þúsund orð og á það svo sannar-
lega við um verk Jönu Birtu. List
hennar fellur undir það sem kalla
má aktívisma í myndlist, en það er
nálgun í listum sem er byggð á virkri
þátttöku listamannsins í aðgerðum
á pólitískum eða félagslegum vett-
vangi en myndlistin hefur í sínum
fjölbreytileika mikið verið notuð á
þennan hátt í gegnum tíðina. Kín-
verski samtímalistamaðurinn Ai
Weiwei fer þá leið í sinni listsköpun
og segir m. a.; „ef eitthvað er þá snýst
listin um… siðferði, um trú okkar á
mannkynið. Án þess er einfaldlega
engin list.“
Sýningin stendur til 21. nóvember.
Meira en þúsund
orð Jönu Birtu
- í Bíósal Duus Safnahúsa
Courtyard by Marriott hótelið í Reykjanesbæ hefur unnið til
verðlauna sem Iceland’s Leading Business Hotel. Sigurvegarar
World Travel Awards voru tilkynntir 22. október 2021 rafrænt
þar sem ekki var haldin athöfn í ár vegan heimsfaraldursins.
„Það er mikill heiður að
hafa unnið þessi verðlaun
á fyrsta rekstrarári hót-
elsins, en hótelið opnaði
fyrir fyrstu gestunum í
október í fyrra. Starfs-
fólkið hefur lagt sig mikið
fram á erfiðum og krefjandi
tímum,“ segir Hans Prins
hótelstjóri.
World Travel Awards voru stofnuð
árið 1993 og fagna ágæti á öllum
helstu sviðum ferðaþjónustunnar
og gestrisniiðnaðarins,
þar með talið flugfélögum,
flugvöllum, hótelum og
úrræði og ferðatækni.
World Travel Awards eru
viðurkennd um allan heim
sem einn virtasti heiður í
greininni og er kosið til
verðlauna af sérfræðingum
og neytendum um allan heim.
Courtyard by Marriott er rekið
undir Marriott-keðjunni og býður
upp á 150 deluxe herbergi með góðri
vinnustöðu. Þar er einnig veitinga-
staðurinn The Bridge en á honum
eru einnig vinnusvæði og básar sem
henta fyrir stutta vinnufundi með
sjónvarpi, sem fundargestir geta
tengst. Á hótelinu eru einnig tvö
fundarherbergi, eitt minna og eitt
stærra.
Courtyard by Marriott hótelið í
Reykjanesbæ vann alþjóðleg verðlaun
Isavia hefur í samvinnu við Verkfræðistofuna Vista sett upp
þrjá nýja loftgæðamæla á Keflavíkurflugvelli. Jafnframt voru
gefnir og settir upp mælar í Sandgerði og í Garði til að fylgjast
vel með loftgæðum íbúa. Staðsetning mælanna í Garði og
Sandgerði var valin í samstarfi við Suðurnesjabæ og Um-
hverfisstofnun til að þétta mælanet stofnunarinnar. Gjöf Isavia
er hluti af sjálfbærnistefnu fyrirtækisins.
Mælarnir mæla ýmis efni í and-
rúmsloftinu sem geta borist frá
eldstöðvum, meðal annars brenni-
steinsvetni, brennisteinsdíoxíð
og köfnunarefnisdíoxíð. Auk þess
greina mælarnir hitastig, rakastig
og loftþrýsting. Um er að ræða
öfluga mæla frá breska fyrirtækinu
AQMesh sem hefur sérhæft sig í
loftgæðamælum og eru mælar frá
AQmesh í notkun út um allan heim
og hafa þeir t.d. verið notaðir til að
mæla brennisteinsdíoxíð frá eld-
fjallinu Masya í Níkaragva.
„Það er okkur mjög mik il vægt að
geta haft góða yfirsýn á loftgæðum
á Kefla vík ur flug velli og þessir nýju
mælar auðvelda okkur þá vinnu.
Góð loftvist er mikilvæg okkar
starfsfólki, gestum og nærumhverfi
flugvallarins. Isavia hefur sett sér
öfluga stefnu á sviði sjálfbærni og er
þessi fjárfesting hluti af þeirri stefnu
okkar. Við höfum átt gott samstarf
með Suðurnesjabæ og Umhverfis-
stofnun við val á staðsetningu mæla
í sveitarfélaginu. Fjárfestingin í nýju
mælunum mun því einnig skila sér
í aukinni nákvæmni í mælingum á
Reykjanesi og inn á mælanet Um-
hverfisstofnunar,“ segir Sveinbjörn
Indriðason, forstjóri Isavia.
„Við erum mjög ánægð með sam-
starfið með Isavia við að setja upp
loftgæðamæla sem eiga að tryggja
góða loftvist handa starfsmönnum
Isavia, ferðamönnum og íbúum á
Reykjanesi. Tækninni hefur fleygt
fram og er núna mun auðveldar að
vera með mælingar sem eru sýndar
í rauntíma. Við óskum Isavia til
hamingju með mælana,“ segir Heiðar
Karlsson, framkvæmdastjóri Vista.
Að loknum prófunum verða mæl-
ingarnar gerðar aðgengilegar á vef
Umhverfisstofnunar, www.loftgaedi.
is, og hefur almenningur þannig
fullan aðgang að mælingunum.
Ástand loft gæða á hverri mælistöð
er litamerkt þannig að al menn ing ur
á auðvelt með að átta sig á stöðunni.
Styrk ur meng un ar efna á hverri stöð
ræður litn um á viðkom andi stöð á
Íslands kort inu.
Isavia setur upp og gefur
öfluga loftgæðamæla
„Ég get læknað þig“
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár