Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.10.2021, Page 14

Víkurfréttir - 27.10.2021, Page 14
Ásta Katrín Helgadóttir, fagstjóri í hreyfingu á Heilsuleik- skólanum Skógarási, hefur unnið með YAP-verkefnið frá árinu 2015. Á Skógarási er lögð mikil áhersla á hreyfingu nemenda. Skipulögð hreyfing er fyrir alla tvisvar í viku og börn með frávik fá einnig aukalega hreyfingu tvisvar í viku. „Þetta hefur gengið bara mjög vel. Það eru sjö ár síðan ég byrjaði hér og þá hóf ég strax að vera með skipulagða hreyfingu. Síðan kynntist ég Önnu Karólínu sem er framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og hún setti þetta verkefni fyrir mig sem heitir Young Athletes Program, YAP. Ég heillaðist mjög mikið af því. Það er mjög einfalt og þarf ekki mikið af tækjum eða tólum í það og ég sá að það hentaði mjög vel í það sem ég var með þegar fyrir. Ég sá líka að þetta prógram hentaði mjög vel ein- staklingum með frávik en YAP er upphaflega gert fyrir einstaklinga með frávik, s.s. einstaklinga með ADHD, einstaklinga á einhverfurófi og einnig einstaklinga sem þurfa meiri líkamlega þjálfun og bæta hreyfiþroska.“ Það hefur sýnt sig að hreyfingin er að hjálpa þessum ungmennum sem eru með þessar greiningar? „Já, mjög mikið. Við sjáum mikinn mun á milli mánaða í rauninni. Ég get nefnt einstakling með slæman hreyfiþroska og eftir þrjá mánuði sáum við talsverðan mun. Ein- staklingur sem gat ekki hoppað inn í hring, hann er allt í einu farinn að geta hoppað inn í hringinn og út úr honum aftur án þess að stoppa.“ Hvernig byggir þú upp þetta pró- gram hérna í stuttu máli? „Þessu er skipt niður í átta þætti. Við byrjum á grunnfærni og síðan höldum við áfram að byggja ofan á hana þannig að börnin fara að fram- kvæma flóknari æfingar þar sem við krefjum þau um að hugsa um það sem þau eru að gera og krefjum þau um meiri færni.“ Nú er vitað að mörg börn greinast í kringum sjö ára aldurinn. Eruð þið þá að sjá þessar greiningar birtast í börnum á leikskólanum? „Já. Við sjáum þó nokkra sem eru með ADHD hér. Það eru einstakl- ingar sem við tökum þá aukalega og vinnum með í ákveðnu prógrammi sem er byggt á því sem við erum þegar að gera en við gerum áherslu- breytingar á því sem við viljum þjálfa þau í. Til dæmis er ekki bara að þau fái þessa útrás, því það er talað um að ADHD-börn þurfi að fá þessa útrás heldur þurfa þau líka að fókusa á hluti. Þau þurfa að læra að einbeita sér og fara eftir réttri röð, hvað er fyrst og hvað kemur næst.“ Eruð þau sem eru að greinast að fá meiri hreyfingu og meira prógram? „Já, við gerum það. Allir leikskóla- nemendur koma tvisvar sinnum í viku. Þeir sem eru með einhver frávik eða að við sjáum að þurfa aðeins meira koma tvisvar sinnum í viðbót, þannig að þau eru fjórum sinnum í viku. Tvisvar með sínum hóp og svo tvisvar í pörum þar sem tveir og tveir eru teknir.“ Það er alltaf talað um að hreyfing sé mikilvæg fyrir eldra fólk og einnig þá yngri. Er algengt að íþróttakennarar séu á leikskólum? „Nei, því miður þá er það alls ekki algengt en auðvitað ættu íþrótta- kennarar að vera á hverju einasta leikskóla því þar er grunnurinn að heilinn þroskist á eðlilegan hátt, þar sem skipulögð hreyfing fer fram. 95% af heila barns er þroskaður fyrir fimm ára aldur. Það er því mjög mikilvægt að það séu kenn- arar sem eru í rauninni að þjálfa.“ Þetta prógram sem þú byggir á, er það af alþjóðlegri fyrirmynd? „Þetta er alþjóðleg fyrirmynd og kemur frá alþjóðasamtökum Special Olympics. Það eru tveir háskólar í Bandaríkjunum sem þróuðu og út- bjuggu þessa áætlun í Massachu- setts og Boston. Það eru heilmikil fræði á bak við þetta og þessu er ekki bara hent fram. Það er byrjað á grunni og svo byggt upp í flóknari færni og það er mjög mikil hugsun á bak við þetta.“ Hvað eru margir skólar á landinu að fylgja þessu verkefni? „Ég myndi segja að virkir skólar séu fjórir en við erum endalaust að reyna að bera út boðskapinn. Það gengur frekar illa því það vantar íþróttakennara til að taka þetta og setja inn. Þetta er ótrúlega þægilegt og einfalt prógram og ég mæli með því að leikskólar ráði inn íþrótta- kennara.“ Þegar við hittum þig þá ertu búin að vera að fræða nemendur í íþróttafræði í Háskóla Íslands. Það hlýtur að vera ánægjulegt? „Það er mjög skemmtilegt og ég vona svo sannarlega að þau fari eftir því sem ég er að segja þeim og sæki um starf á leikskóla þannig að leikskólarnir verði bara vel útbúnir af íþróttakennurum.“ YAP, Young Athletes Program, hefur að markmiði að stuðla að snemmtækri íhlutun á sviði hreyfifærni, sérstaklega fyrir börn með sérþarfir eða frávik. Heilsuleikskólinn Skógarás, Ásbrú hefur m.a. verið leiðandi samstarfsaðili Íþróttasambands fatlaðra frá upphafi við innleiðingu YAP á Íslandi. Í starfi sínu sem íþróttakennari hefur Ásta Katrín Helgadóttir íþróttakennari og fagstjóri í hreyfingu sýnt frumkvæði og leitt innleiðingarferlið með markvissri hreyfi- þjálfun og rannsóknum á árangri. Hún hefur náð að tengja hugmyndafræði YAP við dagleg verkefni og nám í samstarfi við samstarfsfólk. Ásta Katrín hefur aðstoðað Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra Special Olympics á Íslandi, við kynningarstarf á lands- vísu, skipulagt verklega sýnikennslu á YAP kynningardögum og kynnt árangursríka að- ferðafræði innleiðingar í heilsuleikskólanum Skógarási. Þar hafa öll börnin notið góðs af en sérstakur markhópur hefur verið börn með slaka hreyfifærni, hegðunarvandkvæði, hreyfi- virkni eða ADHD og einnig nemendur sem eru t.d. óöruggir eða tvítyngdir. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á heilsu- leikskólanum Skógarási hafa sýnt framfarir í hreyfifærni en einnig jákvæð áhrif YAP verkefnisins á félagsleg samskipti, vellíðan, sjálfsöryggi og gleði, sjálfstjórn og tjáningu. Rannsókn á viðhorfi foreldra leikskólabarna í Skógarási til YAP verkefnisins, sýndi fram á að foreldrar töldu sig meðvitaðri um að auka og fylgjast með hreyfiþroska barnsins og þeir töldu að YAP verkefnið hafi haft jákvæð áhrif á hreyfiþroska, samskipti, félagsfærni og hegðun. Rannsókn sýndi einnig að kennarar leikskólans töldu YAP verkefnið hafa haft mjög jákvæð áhrif á hreyfiþroska og félagsfærni og einnig jákvæð áhrif á samskipti og hegðun nemenda. Markmið er að YAP verkefnið styrki börnin, geri þau hæfari til að stíga fyrstu skrefin í íþróttum og stuðli þannig að jákvæðri upplifun og þátttöku allra barna í íþróttastarfi. Nemendur í íþróttafræði við Háskóla Ís- lands voru gestir heilsuleikskólans Skógaráss í síðustu viku þar sem þeir kynntu sér YAP hjá þeim Ástu Katrínu og Önnu Karólínu. Víkur- fréttir fengu að fylgjast með. Nánar verður fjallað um málið í Suðurnesjamagasíni á næst- unni. SKÓGARÁS LEIÐANDI Í INNLEIÐINGU YAP Á ÍSLANDI YAP HENTAR MJÖG VEL EINSTAKLINGUM MEÐ FRÁVIK Ásta Katrín Helgadóttir, fagstjóri í hreyfingu á Heilsuleikskólanum Skógarási: Ásta Katrín Helgadóttir, fagstjóri í hreyfingu á Heilsuleikskólanum Skógarási, kynnir YAP fyrir nemendum í íþróttafræði við Háskóla Íslands. Páll Ketilsson pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is 14 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.