Víkurfréttir - 27.10.2021, Síða 14
Ásta Katrín Helgadóttir, fagstjóri í hreyfingu á Heilsuleik-
skólanum Skógarási, hefur unnið með YAP-verkefnið frá
árinu 2015. Á Skógarási er lögð mikil áhersla á hreyfingu
nemenda. Skipulögð hreyfing er fyrir alla tvisvar í viku og
börn með frávik fá einnig aukalega hreyfingu tvisvar í viku.
„Þetta hefur gengið bara mjög vel.
Það eru sjö ár síðan ég byrjaði
hér og þá hóf ég strax að vera
með skipulagða hreyfingu. Síðan
kynntist ég Önnu Karólínu sem
er framkvæmdastjóri Special
Olympics á Íslandi og hún setti
þetta verkefni fyrir mig sem heitir
Young Athletes Program, YAP. Ég
heillaðist mjög mikið af því. Það er
mjög einfalt og þarf ekki mikið af
tækjum eða tólum í það og ég sá að
það hentaði mjög vel í það sem ég
var með þegar fyrir. Ég sá líka að
þetta prógram hentaði mjög vel ein-
staklingum með frávik en YAP er
upphaflega gert fyrir einstaklinga
með frávik, s.s. einstaklinga með
ADHD, einstaklinga á einhverfurófi
og einnig einstaklinga sem þurfa
meiri líkamlega þjálfun og bæta
hreyfiþroska.“
Það hefur sýnt sig að hreyfingin
er að hjálpa þessum ungmennum
sem eru með þessar greiningar?
„Já, mjög mikið. Við sjáum mikinn
mun á milli mánaða í rauninni. Ég
get nefnt einstakling með slæman
hreyfiþroska og eftir þrjá mánuði
sáum við talsverðan mun. Ein-
staklingur sem gat ekki hoppað inn
í hring, hann er allt í einu farinn að
geta hoppað inn í hringinn og út úr
honum aftur án þess að stoppa.“
Hvernig byggir þú upp þetta pró-
gram hérna í stuttu máli?
„Þessu er skipt niður í átta þætti.
Við byrjum á grunnfærni og síðan
höldum við áfram að byggja ofan á
hana þannig að börnin fara að fram-
kvæma flóknari æfingar þar sem
við krefjum þau um að hugsa um
það sem þau eru að gera og krefjum
þau um meiri færni.“
Nú er vitað að mörg börn greinast
í kringum sjö ára aldurinn. Eruð
þið þá að sjá þessar greiningar
birtast í börnum á leikskólanum?
„Já. Við sjáum þó nokkra sem eru
með ADHD hér. Það eru einstakl-
ingar sem við tökum þá aukalega og
vinnum með í ákveðnu prógrammi
sem er byggt á því sem við erum
þegar að gera en við gerum áherslu-
breytingar á því sem við viljum
þjálfa þau í. Til dæmis er ekki bara
að þau fái þessa útrás, því það er
talað um að ADHD-börn þurfi að fá
þessa útrás heldur þurfa þau líka að
fókusa á hluti. Þau þurfa að læra að
einbeita sér og fara eftir réttri röð,
hvað er fyrst og hvað kemur næst.“
Eruð þau sem eru að greinast að fá
meiri hreyfingu og meira prógram?
„Já, við gerum það. Allir leikskóla-
nemendur koma tvisvar sinnum í
viku. Þeir sem eru með einhver
frávik eða að við sjáum að þurfa
aðeins meira koma tvisvar sinnum
í viðbót, þannig að þau eru fjórum
sinnum í viku. Tvisvar með sínum
hóp og svo tvisvar í pörum þar sem
tveir og tveir eru teknir.“
Það er alltaf talað um að hreyfing
sé mikilvæg fyrir eldra fólk og
einnig þá yngri. Er algengt að
íþróttakennarar séu á leikskólum?
„Nei, því miður þá er það alls ekki
algengt en auðvitað ættu íþrótta-
kennarar að vera á hverju einasta
leikskóla því þar er grunnurinn að
heilinn þroskist á eðlilegan hátt, þar
sem skipulögð hreyfing fer fram.
95% af heila barns er þroskaður
fyrir fimm ára aldur. Það er því
mjög mikilvægt að það séu kenn-
arar sem eru í rauninni að þjálfa.“
Þetta prógram sem þú byggir á, er
það af alþjóðlegri fyrirmynd?
„Þetta er alþjóðleg fyrirmynd og
kemur frá alþjóðasamtökum Special
Olympics. Það eru tveir háskólar í
Bandaríkjunum sem þróuðu og út-
bjuggu þessa áætlun í Massachu-
setts og Boston. Það eru heilmikil
fræði á bak við þetta og þessu er
ekki bara hent fram. Það er byrjað
á grunni og svo byggt upp í flóknari
færni og það er mjög mikil hugsun
á bak við þetta.“
Hvað eru margir skólar á landinu
að fylgja þessu verkefni?
„Ég myndi segja að virkir skólar
séu fjórir en við erum endalaust að
reyna að bera út boðskapinn. Það
gengur frekar illa því það vantar
íþróttakennara til að taka þetta og
setja inn. Þetta er ótrúlega þægilegt
og einfalt prógram og ég mæli með
því að leikskólar ráði inn íþrótta-
kennara.“
Þegar við hittum þig þá ertu búin
að vera að fræða nemendur í
íþróttafræði í Háskóla Íslands. Það
hlýtur að vera ánægjulegt?
„Það er mjög skemmtilegt og ég
vona svo sannarlega að þau fari
eftir því sem ég er að segja þeim og
sæki um starf á leikskóla þannig að
leikskólarnir verði bara vel útbúnir
af íþróttakennurum.“
YAP, Young Athletes Program, hefur að markmiði að stuðla að snemmtækri
íhlutun á sviði hreyfifærni, sérstaklega fyrir börn með sérþarfir eða frávik.
Heilsuleikskólinn Skógarás, Ásbrú hefur m.a. verið leiðandi samstarfsaðili
Íþróttasambands fatlaðra frá upphafi við innleiðingu YAP á Íslandi. Í starfi sínu
sem íþróttakennari hefur Ásta Katrín Helgadóttir íþróttakennari og fagstjóri
í hreyfingu sýnt frumkvæði og leitt innleiðingarferlið með markvissri hreyfi-
þjálfun og rannsóknum á árangri. Hún hefur náð að tengja hugmyndafræði
YAP við dagleg verkefni og nám í samstarfi við samstarfsfólk.
Ásta Katrín hefur aðstoðað Önnu Karólínu
Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra Special
Olympics á Íslandi, við kynningarstarf á lands-
vísu, skipulagt verklega sýnikennslu á YAP
kynningardögum og kynnt árangursríka að-
ferðafræði innleiðingar í heilsuleikskólanum
Skógarási. Þar hafa öll börnin notið góðs af en
sérstakur markhópur hefur verið börn með
slaka hreyfifærni, hegðunarvandkvæði, hreyfi-
virkni eða ADHD og einnig nemendur sem eru
t.d. óöruggir eða tvítyngdir.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á heilsu-
leikskólanum Skógarási hafa sýnt framfarir
í hreyfifærni en einnig jákvæð áhrif YAP
verkefnisins á félagsleg samskipti, vellíðan,
sjálfsöryggi og gleði, sjálfstjórn og tjáningu.
Rannsókn á viðhorfi foreldra leikskólabarna
í Skógarási til YAP verkefnisins, sýndi fram á
að foreldrar töldu sig meðvitaðri um að auka
og fylgjast með hreyfiþroska barnsins og þeir
töldu að YAP verkefnið hafi haft jákvæð áhrif á
hreyfiþroska, samskipti, félagsfærni og hegðun.
Rannsókn sýndi einnig að kennarar leikskólans
töldu YAP verkefnið hafa haft mjög jákvæð
áhrif á hreyfiþroska og félagsfærni og einnig
jákvæð áhrif á samskipti og hegðun nemenda.
Markmið er að YAP verkefnið styrki börnin,
geri þau hæfari til að stíga fyrstu skrefin í
íþróttum og stuðli þannig að jákvæðri upplifun
og þátttöku allra barna í íþróttastarfi.
Nemendur í íþróttafræði við Háskóla Ís-
lands voru gestir heilsuleikskólans Skógaráss
í síðustu viku þar sem þeir kynntu sér YAP hjá
þeim Ástu Katrínu og Önnu Karólínu. Víkur-
fréttir fengu að fylgjast með. Nánar verður
fjallað um málið í Suðurnesjamagasíni á næst-
unni.
SKÓGARÁS LEIÐANDI Í INNLEIÐINGU YAP Á ÍSLANDI
YAP HENTAR MJÖG VEL
EINSTAKLINGUM MEÐ FRÁVIK
Ásta Katrín Helgadóttir, fagstjóri í hreyfingu
á Heilsuleikskólanum Skógarási:
Ásta Katrín Helgadóttir, fagstjóri í hreyfingu á
Heilsuleikskólanum Skógarási, kynnir YAP fyrir
nemendum í íþróttafræði við Háskóla Íslands.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
14 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár