Víkurfréttir - 27.10.2021, Side 18
Á fimmta hundraðmanns tóku þátt
í umfangsmikilli flugslysaæfingu
sem haldin var á Keflavíkurflugvelli
síðastliðinn laugardag. Æfingar á
flugvellinum eru stærstu hópslysa-
æfingar sem haldnar eru á Íslandi.
Æfingar af þessu tagi eru afar mik-
ilvægar fyrir heildarviðbragðskerfi
Íslands hvort sem um er að ræða
flugslys eða önnur hópslys.
Stór flugslysaæfing er haldin
á þriggja til fjögurra ára fresti á
hverjum flugvelli á Íslandi þar sem
boðið er upp á áætlunarflug. Æfingar
eru tvær til fjórar á ári hverju. Isavia
hefur staðið fyrir um sextíu flug-
slysaæfingum frá árinu 1996. Undir-
búningur fyrir æfingar sem þessa
hefst um þremur mánuðum áður en
til hennar kemur og er hún unnin í
nánu samstarfi við viðbragðsaðila
á hverjum stað. Þar á meðal eru
starfsmenn flugvallarins, lögregla,
slökkvilið, sjúkraflutningsaðilar,
starfsfólk sjúkrahúsa, almannavarnir,
björgunarsveitir, Rauði krossinn,
rannsakendur, flugrekendur og
flugafgreiðsluaðilar.
Þátttakendur á æfingunni voru á
fimmta hundrað, þar af um 150 sjálf-
boðaliðar sem léku slasaða og að-
standendur. Sett var á svið flugslys
þar sem þota brotlenti á flugbraut og
endar vestan við hana. Kveikt var í
bílflökum sem ætlað var að líkja eftir
flugvélabúk til að gera vettvanginn
sem raunverulegastan. Sjálfboðaliðar
í hlutverki slasaðra voru farðaðir og
allt gert til að líkja sem mest eftir
raunverulegu slysi.
„Æfingin gekk afar vel og nú hefst
vinna við að rýna viðbrögðin,“ segir
Elva Tryggvadóttir, verkefnastjóri
neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og
æfingastjóri. „Það verður farið ítar-
lega yfir þau atriði sem gengu vel á
þessari æfingu og einnig það sem
betur mætti fara.“
„Æfingarnar eru gríðarlega mikil-
vægar fyrir okkur hjá Isavia en
einnig fyrir viðbragðskerfið í nær-
samfélagi við flugvellina,“ segir
Friðfinnur Freyr Guðmundsson,
verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá
Isavia og fulltrúi í æfingastjórn. „Það
var einstaklega gaman að sjá hvað
allt gekk vel hér í dag og hversu mjög
allir viðbragðsaðilar eru viðbúnir ef
vá ber að höndum.“
„Við viljum þakka öllum þeim fjöl-
mörgu aðilum sem komu að æfing-
unni fyrir afskaplega gott samstarf,“
segir Elva.
Um 500 manns í viðamikilli flugslysaæfingu
Meðfylgjandi myndir voru teknar á flugslysaæfingunni á Keflavíkurflugvelli.
Meðal þátttakenda voru 150 sjálfoðaliðar sem léku slasaða og aðstandendur. VF-myndir: pket
18 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár