Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.10.2021, Qupperneq 18

Víkurfréttir - 27.10.2021, Qupperneq 18
Á fimmta hundraðmanns tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu sem haldin var á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn laugardag. Æfingar á flugvellinum eru stærstu hópslysa- æfingar sem haldnar eru á Íslandi. Æfingar af þessu tagi eru afar mik- ilvægar fyrir heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um er að ræða flugslys eða önnur hópslys. Stór flugslysaæfing er haldin á þriggja til fjögurra ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem boðið er upp á áætlunarflug. Æfingar eru tvær til fjórar á ári hverju. Isavia hefur staðið fyrir um sextíu flug- slysaæfingum frá árinu 1996. Undir- búningur fyrir æfingar sem þessa hefst um þremur mánuðum áður en til hennar kemur og er hún unnin í nánu samstarfi við viðbragðsaðila á hverjum stað. Þar á meðal eru starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningsaðilar, starfsfólk sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, rannsakendur, flugrekendur og flugafgreiðsluaðilar. Þátttakendur á æfingunni voru á fimmta hundrað, þar af um 150 sjálf- boðaliðar sem léku slasaða og að- standendur. Sett var á svið flugslys þar sem þota brotlenti á flugbraut og endar vestan við hana. Kveikt var í bílflökum sem ætlað var að líkja eftir flugvélabúk til að gera vettvanginn sem raunverulegastan. Sjálfboðaliðar í hlutverki slasaðra voru farðaðir og allt gert til að líkja sem mest eftir raunverulegu slysi. „Æfingin gekk afar vel og nú hefst vinna við að rýna viðbrögðin,“ segir Elva Tryggvadóttir, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og æfingastjóri. „Það verður farið ítar- lega yfir þau atriði sem gengu vel á þessari æfingu og einnig það sem betur mætti fara.“ „Æfingarnar eru gríðarlega mikil- vægar fyrir okkur hjá Isavia en einnig fyrir viðbragðskerfið í nær- samfélagi við flugvellina,“ segir Friðfinnur Freyr Guðmundsson, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og fulltrúi í æfingastjórn. „Það var einstaklega gaman að sjá hvað allt gekk vel hér í dag og hversu mjög allir viðbragðsaðilar eru viðbúnir ef vá ber að höndum.“ „Við viljum þakka öllum þeim fjöl- mörgu aðilum sem komu að æfing- unni fyrir afskaplega gott samstarf,“ segir Elva. Um 500 manns í viðamikilli flugslysaæfingu Meðfylgjandi myndir voru teknar á flugslysaæfingunni á Keflavíkurflugvelli. Meðal þátttakenda voru 150 sjálfoðaliðar sem léku slasaða og aðstandendur. VF-myndir: pket 18 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.