Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.10.2021, Síða 23

Víkurfréttir - 27.10.2021, Síða 23
Freysteinn Ingi skoraði tvö fyrir OB Ungur Njarðvíkingur fékk tækifæri til að æfa með U15 liði OB í Danmörku Freysteinn Ingi Guðnason, fjórtán ára leikmaður þriðja flokks Njarð- víkur, var nýlega í viku heimsókn hjá danska liðinu OB. Eftir góða frammistöðu á Íslandsmótinu og á Rey Cup fékk Freysteinn tækifæri til að heimsækja OB og æfa með U15 liði félagsins í viku. Unglingastarfið hjá OB er þekkt fyrir gæði og góðan árangur og er OB U15 meðal annars ríkjandi danskir meistarar. Freysteinn Ingi spilaði jafnframt leik með U15 ára liðinu þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3:1 sigri liðsins. Í framhaldi af dvölinni hjá OB hefur leikmanninum verið boðið að taka þátt í æfinga- og keppnisferð liðsins til Þýskalands síðar í vetur. Sigurður Ragnar aðalþjálfari karlaliðs Keflavíkur Keflvíkingar hafa gert breytingar á þjálfarateymi meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir næsta tímabil en Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður aðalþjálfari liðsins og honum til aðstoðar verður Haraldur Guð­ mundsson sem þjálfað hefur meist­ araflokk karla hjá Reyni Sandgerði síðustu ár. Sigurður Ragnar og Eysteinn Húni Hauksson hafa verið aðalþjálfarar meistaraflokks síðustu tvö ár en Ey­ steinn lætur nú af þjálfun meistara­ flokks, hann starfar ennþá hjá yngri flokkum Keflavíkur og á í viðræðum við félagið um stærra hlutverk í af­ reksstarfi þess. Saman komu þeir Eysteinn og Sigurður Ragnar Kefla­ víkurliðinu upp úr Lengjudeildinni á síðasta ári og hélt liðið sæti sínu í deildinni á liðnu sumri auk þess að komast í undanúrslit Mjólkur­ bikarsins. Sigurði til aðstoðar verður Har­ aldur Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og leikmaður og fyrirliði Keflavíkur til margra ára. Hann hefur þjálfað lið Reynis Sandgerði með góðum ár­ angri síðustu ár, tók við liðinu þegar það var í 4. deild og skilur Reynis­ menn í 2. deild. Sama þjálfarateymi hjá meistaraflokki kvenna Keflavík náði áframhaldandi samn­ ingum við þjálfarateymi meistara­ flokks kvenna fyrir næstu leiktíð og mun Gunnar Magnús Jónsson þjálfa liðið áfram. Hjörtur Fjeldsted verður aðstoðarþjálfari, Óskar Rúnarsson leikgreinandi, Freyr Sverrisson tækniþjálfari og Sævar Júlíusson sinnir markmannsþjálfun. Alfreð Elías tekur við Grindavík Grindvík hefur ráðið Al­ freð Elías Jóhannsson sem þjálfara karlaliðs Grindavíkur í knattspyrnu og er samning­ urinn til þriggja ára. Alfreð, sem er uppalinn í Grindavík og á að baki um 40 leiki með félaginu í efstu deild, hefur undanfarin fimm ár þjálfað kvennalið Selfoss og gerði hann liðið meðal annars að bikar­ meisturum árið 2019. Þar áður hefur hann þjálfað lið Ægis í Þorlákshöfn, ÍBV, BÍ/Bolungarvík og GG þar sem hann hóf sinn þjálf­ araferil árið 2006. Milan Stefán Jankovic verður aðstoðarþjálfari Al­ freðs en Janko hefur búið í Grindavík í þrjá áratugi og er vel tendgur knattspyrnu­ deild Grindavíkur. Ásamt því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks mun hann sinna afreksþjálfun hjá félaginu. Janko var síðast aðstoðarþjálfari hjá Grindavík á árunum 2016 til 2018. Jón Óli stýrir Grindavík áfram Jón Ólafur Daníelsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Grindavíkur um áframhaldandi þjálfun meistaraflokks kvenna en Jón Óli tók við liðinu síðasta vetur og undir hans stjórn endaði Grindavík í sjötta sæti Lengjudeildar kvenna í sumar. Grindvíkingar hafa sett stefnuna á að bæta árangur sinn á næstu leiktíð og frekari frétta af leikmannamálum kvennaliðs Grindavíkur og þjálfarateymi þessi er að vænta á næstu dögum og vikum. Eiður Ben tekur við Þrótti Vogum Þróttur Vogum hefur ráðið Eið Benedikt Eiríksson, sem af mörgum er talinneinn efnilegasti þjálfari landsins, til að taka við þjálfun meist­ araflokks karla í knattspyrnu fyrir komandi tímabil. Eiður Ben er fæddur árið 1991 og uppalinn hjá Fjölni. Undanfarin ár hefur hann þjálfað lið Íslands­ meistara Vals í efstu deild kvenna ásamt Pétri Péturssyni en samstarf þeirra skilaði Val tveimur Íslandsmeistara­ titlum á þremur árum. Þróttur Vogum varð deildarmeistari 2. deildar karla í ár og mun félagið því leika í fyrsta sinn í næstefstu deild á næsta tímabili ásamt því að fagna 90 ára afmæli sínu. Reynismenn eru að vinna í sínum þjálfaramálum Eftir að Haraldur Guðmundsson sagði starfi sínu lausu sem þjálfari Reynis er ljóst að Reynismenn eru á höttunum eftir arf­ taka hans. Sigursveinn Bjarni Jónsson, for­ maður félagsins svaraði fyrirspurn Víkur­ frétta á þann veg að Reynismenn ættu í viðræðum við ónefnda(n) aðila og búast megi við yfirlýsingu frá þeim fljótlega. Heimamennirnir Sigurður og Arnar áfram hjá Víði Sigurður Elíasson og Arnar Smárason tóku við Víðisliðinu fyrir síðustu leiktíð eftir að liðið féll úr 2. deild árið á undan. Báðir eru þeir fyrrverandi leik­ menn Víðis, Sigurður lék 88 leiki fyrir Víði og Arnar 65. Þeir félagar munu setja allt kapp á að koma Víði aftur upp í 2. deild á næsta tímabili en Víðismönnum gekk ekki sem skildi í ár og endaði í sjötta sæti 3. deildar. kNattSPYrNuSaMaNtekt Sigurður Ragnar verður áfram, Eysteinn gengur frá borði. Sama Þjálfarateymi verður með meistaraflokk kvenna. Alfreð Elías. Eiður Ben. Undir stjórn Jóns Óla hélt Grindavík sér í Lengjudeildinni. Haraldur fer til Keflavíkur eftir frábært starf með Reyni. Víðismenn vilja án efa komast aftur í 2. deild. Knattspyrnudeild Keflavíkur auglýsir laust til umsóknar starf Framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri Keflavíkur hefur yfirsýn yfir alla starfsemi deildarinnar og fylgir eftir stefnu og markmiðum stjórnar. Þá sér Framkvæmdastjóri um að samræma störf starfs- manna deildarinnar og sjálfboðaliða. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildarinnar þarf að hafa reynslu og þekkingu á rekstri, geta sett saman og staðið við fjárhagsáætlanir og vinna ötullega að því að viðhalda og finna nýjar leiðir til að afla tekna fyrir deildina. Framkvæmdastjóri gætir hagsmuna Keflavíkur í hvívetna gagnvart hagsmunaaðilum. Hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur starfar yfirmaður knattspyrnumála sem vinnur náið með framkvæmdastjóra að málefnum knattspyrnuliða, barna- og unglingaráðs og afreksstefnu. Ekki er gert krafa um reynslu úr knattspyrnuheiminum en brennandi áhugi á íþróttinni er nauðsynlegur. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur n Fylgja eftir stefnu og markmiðum stjórnar n Samræma störf starfsmanna og sjálf- boðaliða n Sjá um sölu og kaup á leikmönnum í samráði við yfirmann knattspyrnumála n Útbúa og standa við fjárhagsáætlanir n Viðhalda viðskiptasamböndum og afla tekna fyrir deildina n Samskipti við samfélag og hagsmunaaðila n Skipulag á leikdögum í samráði við starfsmenn og sjálfboðaliða n Menntun sem nýtist í starfi n Reynsla af rekstri n Þekking á gerð fjárhagsáætlana n Sjálfstæð vinnubrögð n Leiðtogahæfni n Afburða samskiptahæfni Keflavík er eitt sigursælasta knattspyrnulið landsins. Félagið heldur úti meistaraflokki karla og kvenna sem bæði leika í efstu deild. Þá er starfrækt mjög öflugt barna- og unglingastarf en mikil áhersla er lögð á það hjá félaginu að efla það enn frekar. Félagið er samfélagslega mikilvægt og tekur hlutverk sitt í samfélaginu mjög alvarlega. Gerð er krafa um að starfsmenn félagsins séu félaginu til sóma í hvívetna og tileinki sér þau gildi sem félagið starfar eftir. Helstu verkefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur Umsóknir um starfið berist á alfred.is Stöðugar uppfærslur og úrslit íþróttaleikja vf.issport vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 23

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.