Víkurfréttir - 24.11.2021, Blaðsíða 16
Árelía Eydís Guðmundsdóttir er alin upp í Keflavík en býr núna í vesturbæ Reykjavíkur þar
sem hún m.a. starfar sem dósent við Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Eftir hana liggja bæði
greinar og bækur á fræðilegu sviði en Árelía hefur lagt sig fram um að skrifa einnig handbækur
sem nýtast fólki við stefnumótun í lífi sínu. Hún hefur einnig haldið fjölmörg námskeið á því
sviði. Árelía Eydís er afkastamikill rithöfundur og gaf m.a. út tvær bækur á þessu ári, annars
vegar skáldsögu og hins vegar fræðilega handbók.
Þrjú sjálf
„Ég er með einskonar þrjú sjálf – eitt sjálfið er starfið mitt
sem dósent við Háskóla Íslands, annað sjálfið mitt er rit-
höfundurinn í mér og þriðja sjálfið er síðan kynningarnar
og námskeiðin sem fylgja útgáfunum og rannsóknunum,“
segir Árelía Eydís þegar hún var spurð hvað hún væri að
fást við í dag.
Árelía Eydís er núna í rannsóknarleyfi frá háskólanum
en hún fær slíkt leyfi í eitt misseri á sex missera fresti. Í
slíku leyfi er oft verið að viða að sér efni í rannsókn eða
að búa til rannsóknarsamstarf þannig að mjög oft fer
fólk erlendis til að vinna að verkefnum sem þessum. „Ég
fór til Spánar í sex vikur þar sem ég var að skrifa rann-
sóknartengt efni og í leiðinni að reyna að læra spænsku
og flamencó, mér varð reyndar ekki mjög ágengt í
spænskunáminu,“ sagði Árelía og skellti upp úr. „Það er
hins vegar gott að komast aðeins í burtu frá kennslunni
og hafa frelsið sem felst í þessu rannsóknarleyfi, bætti
hún við.“
Rithöfundurinn Árelía Eydís
Árelía Eydís gaf út á þessu ári tvær bækur, annars vegar
skáldsöguna „Slétt og brugðið“ og hins vegar handbókina
„Völundarhús tækifæranna“ sem fjallar um þær breyt-
ingar sem hafa orðið á vinnumarkaðnum á undanförnum
áratugum.
Árelía Eydís fann ákveðið frelsi í að að halda úti bloggi
sem hún byrjaði á fyrir mörgum árum síðan, sem síðan
þróaðist í að skrifa sögur sem eru algjörlega skáldaðar.
Skáldsagan sem kom út fyrr á þessu ári er þriðja skáld-
saga hennar. „Ég er mikill bókaormur, var mikið á bóka-
safninu á Mánagötunni í Keflavík og sökkti mér í alls-
konar bókmenntir á mínum uppvaxtarárum.“
„Slétt og brugðið“ fjallar um sex konur sem hafa
í fjöldamörg ár hist í saumaklúbbi. Dag einn ákveða
þær hins vegar að gera eitthvað allt annað en vanalega
þegar þær koma saman. Þetta hrindir af stað óvæntri
atburðarás sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf þeirra.
Konurnar standa flestar á krossgötum og þessi breyting
hjálpar þeim að takast á við erfið mál í einkalífi og starfi.
Völundarhús tækifæranna er hins vegar fræðileg
handbók unnin í samstarfi við Herdísi Pálu Pálsdóttur
mannauðsstjóra Deloitte og fjallar um þær breytingar
sem hafa orðið á vinnumarkaðnum á undanförnum
árum.
„Sú bók hefur beina tengingu við vinnuna mína,“ segir
Árelía Eydís.
„Í handbókinni er verið að rannsaka þær miklu tækni-
legu umbreytingar sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif
á daglegt líf okkar og munu veita fólki á vinnumarkaði
sem og atvinnurekendum ný og spennandi tækifæri.
Þessi umbylting getur orðið lykill að betra og innihalds-
ríkara lífi. Hinum svokölluðu giggurum fer stöðugt fjölg-
andi – fólki sem tekur að sér verkefni í takmarkaðan tíma
en hverfur svo á vit nýrra viðfangsefna; fólki sem selur
vinnu sína á markaðstorgi þekkingarinnar. Eðli starfa og
vinnustaða er að gjörbreytast og samband starfsfólks og
vinnustaðar mun verða með allt öðrum hætti en áður.
„Ég er síðan tengd handbókinni og í framhaldi af henni að
birta greinar um framtíðarvinnumarkað okkar og starfs-
feril, hvernig hann er að breytast og sérstaklega starfs-
feril kvenna. Það er töluverður munur á kynjunum og þá
sérstakalega þegar tekið er að líða á starfsferilinn. Ég fæ
reglulega predikunarþarfir þar sem ég finn mig knúna til
að kynna ýmislegt fyrir öðrum, eitthvað sem mér finnst
nauðsynlegt að aðrir þurfa að vita.
Mér finnst gaman að hafa marga bolta á lofti en þarf
samt að passa mig á því að færast ekki of mikið í fang. Ég
er þegar farin að hugsa næsta verkefni, fyrsta setningin
í næsta skáldverki er komin og ég veit ekki hvert hún
kemur til með að leiða mig,“ sagði Árelía Eydís að lokum.
Bókaormur af
Mánagötunni með
„slétt og brugðið“
Jón Hilmarsson
ungo@simnet.is
Árelía Eydís Guðmundsdóttir hefur gefið út tvær bækur á árinu
Byrjað verður að kveikja á jólaljósum í kirkjugarði Njarðvíkur
laugardaginn 27. nóvember kl. 13:00
Tengigjald er 4.000 kr. fyrir hverja tengingu.
Opnunartími eru sem hér segir:
Laugardagur 27. nóvember Frá 13:00 til 17:00
Þriðjudagur 30. nóvember frá 17:30 til 19:00
Fimmtudagur 2. desember frá 17:30 til 19:00
Laugardagur 4. desember frá 13:00 til 15:00
Fimmtudag 9. desember frá 17:30 til 19:00
Laugardagur 11. desember frá 13:00 til 15:00
Þriðjudagur 14. desember . frá 17:30 til 19:00
Laugardagur 18. desember frá 13:00 til 15:00
(síðasti opnunardagur)
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 660 3691
á milli 13-17 alla virka daga.
Vegna Covid-19 þurfa þeir sem koma að virða grímuskyldu.
Kirkjugarður Njarðvíkur
Jólalýsing
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
INGVAR G. GUÐMUNDSSON,
Stekkjargötu 1, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 13. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heimahjúkrunar og hjúkrunar-
deildar HSS.
Þeir sem vildu minnast hans er bent á Umhyggju, félag langveikra barna.
Hera A. Ólafsson
Hafsteinn Svanberg Ingvarsson Catarina Ingvarsson
Pétur Aðalsteinn Ingvarsson Kristín Kristmundsdóttir
Heba Ingvarsdóttir
Ruth Ingvarsdóttir Graziano Bagni
barnabörn og barnabarnabörn
16 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár