Lindin

Árgangur

Lindin - 02.08.1950, Blaðsíða 8

Lindin - 02.08.1950, Blaðsíða 8
3 89 koraið út um. Þaö var engu líkara en aó ég hefði 'breyzt í einhverja ófreskju, svo bjanalega glápti maðurinn á mig. wUd af den dör?" spurði hann. "Ja", sagði ég ennþá rólegri. "Men den er jo lukked", sagði hann þá og þaut þar raeð að hurðinni og þreif í hurðarhúninn og hurðin opnaðist. Hann varð svo his.sa, að hann gat ekki sagt eitt einasta orð og þarf þó mikið til þess að Dana verði orðfall. Ég þagði um ástæðuna fyrir því, ,að hurðin var opin og þegar ég sá að hann var búinn að jafna sig, spuröi ég hann, hvort að hinir væru ekki komnir út. Nei, hann hvað þá alla vera upp í turninum enn. tíg bað hann þá að vísa mér á leiðina upp í turninn, en hann tók því víðs fjarri og sagði, að þeir gætu komiö niöur aðra leið og ég síðan villst, svo það væri bezt fyrir mig aó setjast inn í kirkjuna og bíða eftir þeim. Mer varð hugsað til tilfinninga þeirra, sem gagntóku mig inni í kirkjunnu og samþykkti þessa tillögu. ág fór svo aftur inn um sömu dyrnar og ég hafði komið út um. NÚ heyröi ég, að hann snéri lykli í skránni, og þar með var lokuð sú leið til undankomu, ef eitthvað svipað henti mig aftur. Ég valai mér einn bekk framarlega í kirkjunni og settist þar og virti fyrir mér kirkjuna að innan. Eftir nokkra stund heyrði ég aálítinn hávaða í einu horninu og þar voru þá strákarnir komnir. Ég varð fegnari en frá verði sagt, sérílagi og sérstaklega, þegar ég sá, að einn þeirra, hann er nú reyndar kallaður Stanley, hélt á jakkanum mínum, honum hafði ég algjörlega gleymt í öllum þessum hamagangi. Stanley litli var dálítið kvíðinn á svipinn og fékk ég þaö upp úr honum, að eitt- hvað hefði dottið úr einum vasanum á jakkanum uppi í turni og alla leið niöur á botn í einhverju djúpi, sem ómögulegt var að komast niður í. Hann hélt að það hefði verið penninn rninn, en vió nánari rannsókn kom í ljós, að það var bara lítið glas, sem hafði að geyma það, sem eftir var af sjóveikispillunum mínum, sem ég ætlaði að eiga til minningar um sjóferðina, en hvað um það, það var ekki minna

x

Lindin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.