Verndarinn : blað Jósefsfélagsins - 01.04.1938, Síða 2

Verndarinn : blað Jósefsfélagsins - 01.04.1938, Síða 2
2 VERNDARINN Vivian, Mamie og Rússland. Vivian gekk um og leitaði að Mamie. Hann fann hana loksins í matjurtagarðinum, þar sem hún var að naga epli. Þar stóð kassi upp í loft; hann settist á hann og byrjaði á því, sem hon- um lá á hjarta. ,,Það lítur alveg hræðilega út núna í Rúss- landi, Mamie,“ sagði hann. „Heyrðu, hættu nú að háma í þig og taktu eftir.“ „Ég get vel gert hvort tveggja í einu, bæði borðað og hlustað," sagði Mamie, sem var átta ára, lítil, ljóshærð og kringluleit, en Vivian, sem var níu ára var mjór vexti og dökkhærður. „Það er búið að loka næstum því öllum kirkj- um Rússlands,“ sagði Vivian. „Það er búið að búa til úr nokkrum þeirra hræðileg söfn, þar sem gert er gys að Guði. Og börnin læra í skólunum, að enginn Guð sé til og þau mega ekki biðja, og fjöldi af prestum og öðru fólki, sem trúir á Guð, situr í fangelsi fyrir það. Og þar eru líka margir — fleiri hundruð, held ég — sem búið er að drepa. Þess vegna verðum við bæði að snúa Rússlandi. Svo að þú verður að leggja dálítið á þig.“ „Heldurðu að við tvö — ég og þú — getum snúið Rússlandi?" spurði Mamie. „Já, alveg ákveðið — ef að við leggjum dá- lítið á okkur. Við skulum reyna í einn mánuð.. Nú skaltu fá að heyra hvað ég hefi hugsað mér. Fyrst skulum við biðja 3 liði af Rósa- kransinum á hverjum degi.“ „En það höfum við áður gert.“ „Já, það veit ég ósköp vel, en nú skulum við biðja þá reglulega vel, en bara að reyna ekki að koma þeim af eins og við svo oft gerum. Svo skulum við færa 3 fórnir á hverjum degi.“ „3 — það eru nú samt sem áður margar,“ skaut Mamie inn í. „Jú — en bara í einn mánuð. Svo skulum við hætta að segja nokkuð ljótt um nokkurn eða við nokkum.“ „Það var nú erfiðara!" sagði Mamie. „Hugs- aðu þér nú, hvað oft þú segir asninn þinn og þess háttar!“ „Þú verður nú samt sem áður að reyna, ekki satt? Væri það nú samt ekki dásamlegt ef að búið væri að snúa Rússlandi eftir mánuð?“ „Svo yrðum við kannske dýrðlingar?“ „Nei, því að við skulum náttúrlega ekki segja neinum frá því, sem að við höfum gert, því að það væri bara að hrósa sér. En væri það ekki yndislegt ef að allar vondu manneskjurnar yrðu góðar, finnst þér ekki, Mamie?“ Jú, ég skal reglulega leggja að mér. Og ég bið kannske stundum 4 liði af Rósakransin- um.“ Næsta dag, fyrsta mánaðarins, byrjuðu þau svo á verki sínu og tóku því með mikilli al- vöru. Vivian opnaði skólakortið sitt og fletti upp Rússlandi og lagði það á borðið svo að hann gæti séð hversu afar stóru landi hann væri með í að snúa. Mamie fannst það afar skemmtilegt að færa þessar smáfórnir — ekki aðeins þrjár. Nokkrar þeirra voru afar litlar en þær voru þó betri en engar, og hún sagði engum það og ekki einu sinni Vivian. Báðum þeirra fannst, að því meira sem þau gjörðu, því meir mundi það hjálpa. Rússland var nú eins og þau ættu það og þau yrðu að gjöra allt sem þau gætu fyrir það. Þau báðu Guðs Móður að hjálpa sér í hinu mikla fyrir- tæki sínu og þau tíndu á hverjum degi ný blóm til þess að láta við líkneski hennar, því, eins og Vivian sagði, var það erfitt verk, sem þau voru að vinna, og þau þurftu á allri þeirri hjálp að halda sem þau gátu fengið. Það var ótrúlegt, hversu mánuðurinn var fijótur að líða; en það kom líklegast til af því, að það var eins og það væri meira spennandi, þegar maður hafði ástæðu til þess að gjöra það leynilega og eins vel og hægt var. Námið, leikirnir og gönguferðirnar — allt gat það orðið að bæn, aðeins að maður gerði það ailt á réttan hátt og gæfi Guði það allt. Seinasti dagur mánaðarins var haldinn sér- staklega hátíðlegur með aukabænum og skrúð- göngu í gegnum garðinn; og það kvöld fóru þau Frh. á bls. 8.

x

Verndarinn : blað Jósefsfélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verndarinn : blað Jósefsfélagsins
https://timarit.is/publication/1662

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.