Friðarboðinn og vinarkveðjur - 15.01.1946, Blaðsíða 4

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 15.01.1946, Blaðsíða 4
sameinuðu Alþingi, og að það sé þar rætt og um það gerðar ályktanir í lýðræðisanda. Vegna þess að ekkert forsetakjör fór fram síðastlið- ið sumar, þrátt fyrir löglegt framboð mitt og fram- boð Sveins Björnssonar, þá hafa lögin um framboð og kjör forseta verið svo herfilega brotin, að slíks; eru engin fordæmi um tröðkun á lögum og rétti. Ég skil- aði forsetaframboði mínu í hendur dómsmálaráðu- neytisins á réttum tíma og fylgdi þar nægileg tala (c. 2600) kosningabærra manna meðmælenda minna, hlutfallslega úr öllum landsfjórðungum, eins og lögin frá 8. febr. 1945 tilskilja. Framboð mitt til forseta- kjörs var í alla staði löglegt og óvefengjanlegt, eins og líka rit mín bera með sér, sem útgefin voru skömmu síðar, og er 1 þeim að finna þau bréf, sem ég skrifaði viðkomandi aðilum í þessu tilefni, og fylgja rit þau þessu bréfi. Þar sem nú forsetakjör fór aldrei fram, eins og áð- ur er fram tekið, þótt allt væri löglega í pottinn búið til forsetakjörsins, þjóðin svift kosningarrétti sínum, þá hefur þarna skeð ógeðslegt lögbrot, sem er land- inu óafmáanleg smán, bæði inn á við og ekki sízt út á við. Hvar hundurinn liggur grafinn, — hverjum lögbrotið er að kenna — skal ég ekkert um segja. Á ferðalögum mínum víðs vegar um ísland og fundahöldum gat mér ekki blandast hugur um það, að ég átti á meðal kjós:enda íslenzku þjóðarinnar miklu meira fylgi að fagna og að ég naut miklu meiri ástsældar í hug og hjarta fólksins en Sveinn Bjöms- 4

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.